Page 1 of 2

Fór með bílinn í skoðun í dag

PostPosted: Thu 30. Sep 2010 22:29
by jens
Fór með bílinn í skoðun í morgun sem endaði með að bíllinn var upp á lyftu í tæpa 60 mín og fimm skoðunarmenn skoðuðu hann.
Fékk mánaðarfrest til að skipta út complet fjöðrunarkerfinu, það fékk fall einkun.
Eftir að ég neitaði að skrifa undir skoðunarskýrsluna og skoðunarmennirnig gátu ekki bent svo ekki væri vafi í handbók skoðunarmanna var fenginn yfirmaður á staðinn sem þekkti coil overs kerfi og gaf grænt ljós á fjöðrunina.

Ég hef farið að mig minnir fjórum sinnum í gegnum skoðun án athugasemda, finnst leiðilegt að þurfa að standa í útistöðum við þessa ágætu skoðunarmenn í hvert skipti sem ég kem með bílinn. Mér finnst eins og ég verði fyrir fordómum þegar ég kem með bílinn minn í skoðun af því hann er ekki uppsettu fyrir miðaldra menn sem velja mikt og þægindi og það er farið að pirra mig. Ég er ákveðinn að skipta um skoðunarstöð næst þegar ég fer í skoðun. Vona að ég sé einn um þetta en verið bara ákveðnir þegar kemur að þessum málum.

Re: Fór með bílinn í skoðun í dag

PostPosted: Thu 30. Sep 2010 22:30
by Einarsss
:shock:

Voru þetta einhverjir snillingar á akranesi?

Re: Fór með bílinn í skoðun í dag

PostPosted: Thu 30. Sep 2010 22:38
by ömmudriver
Leiðinlegt að heyra en gott að þetta reddaðist!

Síðast þegar ég fór með blæjuna í skoðun rétt komst hún inná lyftuna hjá þeim og í bremsutestið án þess að stranda. Svipurinn á skoðunarkallinum þegar hann leit undir bílinn var alveg epic fordómasvipur en ég hló bara og fékk skoðun á hann athugarsemdarlaust :lol: :) Og þetta var BTW áður en að ég setti Bilstein Sport dempana og H&R Cabrio lækkunargormana í bílinn þannig að hann var verulega lár og með handónýta framdempara en samt fékk bíllinn skoðun og það athugasemdarlaust :shock: Sem sýnir bara vankunnáttu skoðunarmannsins.

En aftur á móti þegar ég hef farið með bonestock stífbónuðu sjöuna í skoðun þá halda skoðunarkarlarnir ekki vatni yfir henni :lol:

Re: Fór með bílinn í skoðun í dag

PostPosted: Thu 30. Sep 2010 22:42
by srr
Þessi coilover kerfi, eru þau ekki með einhverri TUV vottun eða einhverju sem hægt er að kasta í andlitið á þeim?

Re: Fór með bílinn í skoðun í dag

PostPosted: Thu 30. Sep 2010 22:53
by gstuning
srr wrote:Þessi coilover kerfi, eru þau ekki með einhverri TUV vottun eða einhverju sem hægt er að kasta í andlitið á þeim?


Ég er nokkuð vissum að ég hafi aldrei sótt um svoleiðis :lol:

Hvað voru þeir að reyna setja út á í sambandi við coilover kerfið?

Re: Fór með bílinn í skoðun í dag

PostPosted: Thu 30. Sep 2010 22:54
by srr
gstuning wrote:
srr wrote:Þessi coilover kerfi, eru þau ekki með einhverri TUV vottun eða einhverju sem hægt er að kasta í andlitið á þeim?


Ég er nokkuð vissum að ég hafi aldrei sótt um svoleiðis :lol:

Hvað voru þeir að reyna setja út á í sambandi við coilover kerfið?

Hey hvað veit ég, stundum fylgir það bara með.... :alien:

Re: Fór með bílinn í skoðun í dag

PostPosted: Thu 30. Sep 2010 23:25
by gunnar
Ég hef nú aldrei lent í svona meðferð áður með kerfið hjá mér :shock:

Re: Fór með bílinn í skoðun í dag

PostPosted: Thu 30. Sep 2010 23:42
by jens
gstuning wrote:
srr wrote:Þessi coilover kerfi, eru þau ekki með einhverri TUV vottun eða einhverju sem hægt er að kasta í andlitið á þeim?


Ég er nokkuð vissum að ég hafi aldrei sótt um svoleiðis :lol:

Hvað voru þeir að reyna setja út á í sambandi við coilover kerfið?


Skoðunarmaðurinn var að reyna sýna fram á að kerfið fjaðraði ekki, ekki millimeter.

...og Einar þetta var Frumherji hesthálsi ekki út á landi eitthvað.

Re: Fór með bílinn í skoðun í dag

PostPosted: Thu 30. Sep 2010 23:47
by gunnar
Hélt að menn vissu að það á ALDREI að fara í Frumherja á Hesthálsi... :lol:

Án þess að vita þó nokkuð um slíkt þá hefur maður heyrt sögurnar þaðan, ansi margar.

Re: Fór með bílinn í skoðun í dag

PostPosted: Fri 01. Oct 2010 00:14
by sh4rk
Ég fer ekki með mína bíla í skoðun á Akranesi eða í Borgarnesi.
Hef farið með báða uppá Hestháls og hef í öll skiftin farið nánast atugasemdalaust en alltaf út með fulla skoðun og núna síðast fór ég með 740i bílinn í vor og fékk fulla skoðun án atugasemda þrátt fyrir að vera með brotna framrúðu og báða háageislana brotna, þannig að ég heff ekkert annað en gott um þá að segja uppá Hesthálsi

Re: Fór með bílinn í skoðun í dag

PostPosted: Fri 01. Oct 2010 07:45
by Einarsss
Fór einmitt síðast uppá hestháls og fékk athugasemd fyrir að vera ekki með viðvörunarþríhyrning annað var OK :)

Ætla samt að prófa að fara annað í vor :) einhverjar tillögur á hvar mað kemst í gegn með filmur í hliðarrúðum að framan? :mrgreen:

Re: Fór með bílinn í skoðun í dag

PostPosted: Fri 01. Oct 2010 07:51
by sh4rk
Var viðvörunarþríhyrningur orginal í bílnum??

Re: Fór með bílinn í skoðun í dag

PostPosted: Fri 01. Oct 2010 08:59
by urban
sh4rk wrote:Ég fer ekki með mína bíla í skoðun á Akranesi eða í Borgarnesi.
Hef farið með báða uppá Hestháls og hef í öll skiftin farið nánast atugasemdalaust en alltaf út með fulla skoðun og núna síðast fór ég með 740i bílinn í vor og fékk fulla skoðun án atugasemda þrátt fyrir að vera með brotna framrúðu og báða háageislana brotna, þannig að ég heff ekkert annað en gott um þá að segja uppá Hesthálsi



þér semsagt finnst það gott mál að menn vinni ekki vinnuna sína og það sé þá væntanlega bílar þarna úti í umferðinni sem að eru ekki einsog þeir eigi að vera ?

þegar að ég hef farið með bíla í skoðun þá hef ég einmitt fylgt skoðunarköllum eftir og fylgst með því sem að þeir eru að gera
þar sem að ég vill jú að bílar séu í lagi

Re: Fór með bílinn í skoðun í dag

PostPosted: Fri 01. Oct 2010 09:26
by Einarsss
sh4rk wrote:Var viðvörunarþríhyrningur orginal í bílnum??



hef ekki hugmynd um það

Re: Fór með bílinn í skoðun í dag

PostPosted: Fri 01. Oct 2010 09:46
by Jón Ragnar
urban wrote:
sh4rk wrote:Ég fer ekki með mína bíla í skoðun á Akranesi eða í Borgarnesi.
Hef farið með báða uppá Hestháls og hef í öll skiftin farið nánast atugasemdalaust en alltaf út með fulla skoðun og núna síðast fór ég með 740i bílinn í vor og fékk fulla skoðun án atugasemda þrátt fyrir að vera með brotna framrúðu og báða háageislana brotna, þannig að ég heff ekkert annað en gott um þá að segja uppá Hesthálsi



þér semsagt finnst það gott mál að menn vinni ekki vinnuna sína og það sé þá væntanlega bílar þarna úti í umferðinni sem að eru ekki einsog þeir eigi að vera ?

þegar að ég hef farið með bíla í skoðun þá hef ég einmitt fylgt skoðunarköllum eftir og fylgst með því sem að þeir eru að gera
þar sem að ég vill jú að bílar séu í lagi



Sumir eru samt bara jerks og eru illa við svona bíla :lol: