Page 1 of 1

Hvar er hagstæðast að versla hjólbarða ? + spurning

PostPosted: Thu 30. Sep 2010 21:28
by geirisk8
Sælir,

Eflaust hefur þetta komið upp áður hér á spjallinu og ég leitaði en fann ekki það sem ég var að leita að.

Spurningin er einföld:
Hver er hagstæðast að versla hjólbarða á netinu að utan ? Ég er mjög vanur að versla á eBay og öðrum síðum en finn enga góða síðu hjá fyrirtæki sem sendir til Íslands.

Hvað er sendingarkostnaður mikill að meðaltali á t.d. tveimur 255/35/18 ?

Aukaspurning: afturdekkin mín eru 255/35/18 90Y. Hvað stendur Y fyrir þarna aftast ?

Re: Hvar er hagstæðast að versla hjólbarða ? + spurning

PostPosted: Thu 30. Sep 2010 23:04
by BjarkiHS
Y er uppgefinn hámarkshraði fyrir þetta tiltekna dekk Y = 186 mph 300 km/h

Sjá meira hér http://www.tirerack.com/tires/tiretech/ ... ?techid=35

Hér er dekkjalisti í þinni stærð http://www.tirerack.com/tires/TireSearc ... &x=10&y=11

shopusa.is segir verð fyrir 2*280$ dekk vera 116k með öllu