Sælir,
Eflaust hefur þetta komið upp áður hér á spjallinu og ég leitaði en fann ekki það sem ég var að leita að.
Spurningin er einföld:
Hver er hagstæðast að versla hjólbarða á netinu að utan ? Ég er mjög vanur að versla á eBay og öðrum síðum en finn enga góða síðu hjá fyrirtæki sem sendir til Íslands.
Hvað er sendingarkostnaður mikill að meðaltali á t.d. tveimur 255/35/18 ?
Aukaspurning: afturdekkin mín eru 255/35/18 90Y. Hvað stendur Y fyrir þarna aftast ?

