Ég get mælt með Pelicanparts.com og svo er alltaf eBay. Til að versla á netinu þarftu að verða þér út um einhverskonar kredit kort (ég nota fyrirframgreitt, svokallað plúskort) og tengja það við PayPal. Eftir að þú færð kortið, þá tekur það ferli ca. viku til að ganga í gegn.
Því næst finnurðu þér einhvern sem selur það sem þú vilt og getur sent til landsins. Þú borgar og bíður þar til þú færð póst frá póstinum um að þú hafir fengið sendingu, en oft þarftu að skila reikningum til að þeir sjái hvað þú ert að kaupa og á hvaða verði.
Þetta er mjög einfalt, en borgar sig að fara hægt í þetta til að byrja með.
