Page 1 of 1

Mustang- og Kvartmíluklúbburinn halda bíósýningu.

PostPosted: Wed 15. Sep 2010 11:08
by Jón Bjarni
Næstkomandi Miðvikudagskvöld, 15. September nk. kl. 20.00 ætla Kvartmíluklúbburinn og Íslenski Mustang klúbburinn að taka höndum saman og sýna, í aðeins eitt skipti, kvikmyndina "Gone in 60 Seconds" frá árinu 1974.

Sýningin fer fram í Sal 1 í Laugarásbíó kl. 20.00 og er miðaverð aðeins 1.000 kr. og rennur ágóði af söluandvirði miðans til Kvartmíluklúbbsins.

Allir sem hafa einhvern áhuga á bílum og kvikmyndum vita hvaða mynd þetta er, en í henni er 40 mínútna bílaeltingarleikur sem er einn sá þekktasti sem sögur fara af. Myndin var endurgerð árið 2000 og fóru þá Nicholas Cage og Angelina Jolie með aðalhlutverkin.

Aðeins eru um 300 miðar í boði þannig að það er eins gott að hafa hraðar hendur.

Hægt er að kaupa miða í forsölu með því að leggja 1.000kr. inn á reikning KK,
sem er 1101-26-111199 Kt.660990-1199 og framvísa kvittun á staðnum.

Gott er að gefa sér góðan tíma og mæta tímanlega fyrir sýningu, og er fólk á "Sparibílum" er sérstaklega hvatt til að mæta og mynda skemmtilega stemningu fyrir utan bíóið svona í lok sumars.

Ef þetta gengur vel eftir er mikill möguleiki á að þetta verði endurtekið og þá með annari gamalli bílamynd.

Látið orðið berast og sjáumst í bíó á Miðvikudagskvöldið!! 8-)


Hægt er að nálgast .PDF auglýsingu hér, og prenta út.


Image

Re: Mustang- og Kvartmíluklúbburinn halda bíósýningu.

PostPosted: Wed 15. Sep 2010 12:36
by Jón Ragnar
Alveg nóg að auglýsa einu sinni :wink:



viewtopic.php?f=16&t=46997

Re: Mustang- og Kvartmíluklúbburinn halda bíósýningu.

PostPosted: Wed 15. Sep 2010 16:46
by SteiniDJ
John Rogers wrote:Alveg nóg að auglýsa einu sinni :wink:



viewtopic.php?f=16&t=46997


Mikið meira kjöt í þessari auglýsingu. 8)

Re: Mustang- og Kvartmíluklúbburinn halda bíósýningu.

PostPosted: Wed 15. Sep 2010 16:59
by Jón Bjarni
John Rogers wrote:Alveg nóg að auglýsa einu sinni :wink:



viewtopic.php?f=16&t=46997


ég var samt á undan :):)

Re: Mustang- og Kvartmíluklúbburinn halda bíósýningu.

PostPosted: Wed 15. Sep 2010 17:09
by tinni77
Búinn að kaupa miða

Re: Mustang- og Kvartmíluklúbburinn halda bíósýningu.

PostPosted: Thu 16. Sep 2010 02:05
by Danni
Sniðugt að setja inn auglýsingu innan við 12 tímum áður en atburðurinn gerist :lol:

Re: Mustang- og Kvartmíluklúbburinn halda bíósýningu.

PostPosted: Thu 16. Sep 2010 08:48
by gardara
:bawl:

Meiri fyrirvara næst takk!

Re: Mustang- og Kvartmíluklúbburinn halda bíósýningu.

PostPosted: Thu 16. Sep 2010 13:05
by kalli*
Hahah shit ég ætlaði að reyna mæta, en hélt að þetta var í kvöld. :lol:

Re: Mustang- og Kvartmíluklúbburinn halda bíósýningu.

PostPosted: Thu 16. Sep 2010 13:29
by Solid
Var eitthvað smá vesen með rispur á diskinum þarna í gær hehehe