Page 1 of 1

Lestur villukóða fyrir OBD I. Og nú með DIY :-)

PostPosted: Wed 01. Sep 2010 19:26
by JOGA
Sælir,

Datt í hug að spyrja hvort einhver búi svo vel að eiga græju til að lesa af OBD I bíl (318is 1995).

Langaði að reyna að virkja þetta US stomp test. Það er orginal á US bílum en á að vera að hægt að virkja það á Euro bílunum.
Hefur einhverjum hér tekist þetta?

Ætlaði að nota bara test lampa en ég fatta ekkert hvert ég á að tengja þetta :oops:

Re: Getur einhver hér lesið af OBD I bíl hjá mér í skúrnum?

PostPosted: Wed 01. Sep 2010 19:33
by gulli
Hvað er US stomp test :?

Re: Getur einhver hér lesið af OBD I bíl hjá mér í skúrnum?

PostPosted: Wed 01. Sep 2010 19:35
by JOGA
gulli wrote:Hvað er US stomp test :?


Virkar bara á US bílum
http://e30world.com/fuel/BMW-E30-DME-Motronic-fault-codes

Edit: Þetta er fyrir E30 en þetta á að virka á öllum OBD I bílum frá US of A

Re: Getur einhver hér lesið af OBD I bíl hjá mér í skúrnum?

PostPosted: Wed 01. Sep 2010 21:00
by JOGA
http://www.bimmerforums.co.uk/forum/f99/diagnose-for-pre-95-e36s-obd-i-diy-t47837/

Gerði það sem hér er lýst. Þ.e. tengdi ljós við vír nr. 8 í X20 tenginu og náði í 12v í F10 (Öryggi 10). Virkar ef ég sæki jörð í boddý (þ.e. þá kviknar á ljósinu) en ég fæ þetta stomp test ekki til að virka.

Einhver?

Re: Getur einhver hér lesið af OBD I bíl hjá mér í skúrnum?

PostPosted: Thu 02. Sep 2010 09:14
by JOGA
Hefur enginn gert þetta hérna?

Tölvan í bílnum er samkvæmt Realoem Motronic 1.7.2
Hún á að geta gert þetta.

Tengdi plögg við vírinn sem kemur úr tengi nr. 8 á X20 tenginu við demparaturninn. Sting prufuljósinu í það og sæki 12v í öryggi nr. 10
Þetta er allt eins og mér skillst að eigi að gera þetta.

Dettur ekkert í hug. Væri gaman að komast að því hvað er að bögga.
Getur nýst mörgum hérna...

Re: Getur einhver hér lesið af OBD I bíl hjá mér í skúrnum?

PostPosted: Thu 02. Sep 2010 20:11
by JOGA
Hah nú er ég súperstolltur :mrgreen:

Náði að tengja fram hjá þessu og fá þetta til að virka :thup:
Fékk villukóða 1222 sem er skv. Bentley Súrefniskynjari eða falskt loft (þar sem bíllinn er ríkur er líklegra að það sé skynjarinn skilst mér)

Þetta btw ekkert mál þegar maður finnur út úr þessu og must fyrir alla með eldri BMW að kunna

Re: Getur einhver hér lesið af OBD I bíl hjá mér í skúrnum?

PostPosted: Thu 02. Sep 2010 20:24
by GunniT
Og hvernig geriru þetta??

Re: Getur einhver hér lesið af OBD I bíl hjá mér í skúrnum?

PostPosted: Thu 02. Sep 2010 20:45
by JOGA
GunniT wrote:Og hvernig geriru þetta??


Þetta virkar víst bara á bílum með Bosch tölvur framleiddir 1995 og fyrr (t.d. ekki hægt á mínum 328i framleiddur 1995 sem er með Siemens tölvu).

Svona gerði ég þetta:
Það eru tvö hringlaga plögg með gúmmíhettum bílstjóramegin í húddinu.
Plöggið sem er nær demparaturninum er kallað X20.

Tók gúmmíhettuna ofan af plögginu og fann pinna nr. 8 sem var hjá mér grár vír.
Klippti hann í sundur og setti tengi á báða enda.
Keypti ódýran test lampa í verkfærasölunni Síðumúla. Svona skrúfjárnslíki með ljós í endanum og rafmagnsnúru.
Klippti snúruna í sundur á test lampanum og í stað klemmu setti í flatt rafmagnstengi.

Tengdi snúruna við öryggi nr. 10 sem gefur 12v.
Tengdi saman skónna við X20 tengið, setti flata skóinn aðeins framhjá kvk tenginu og stakk "testljósaskrúfjárnathinginu" í kvk tengið. (Þetta var smá vandamál hjá mér, held það sé líka nóg að tengja bara við vírinn sem liggur að hvalbak)

Þegar þetta er komið fer maður inn í bíl og svissar á, þá kemur ljós á lampann. Um leið og bíllinn er kominn á on þá ýtir maður nokkuð hratt fimm sinnum á bensíngjöfina. Alveg í botn.

Þá kemur langt ljós (einu sinni eða tvisvar man ekki). Þá byrja kóðarnir að koma. Blikka stutt með langt bil á milli. Hjá mér var það: blikk-bil-blik blikk-bil-blikk blikk -bil-blikk blikk.

Svo endurtekur hann þennan kóða hjá mér bara aftur og aftur þar til þú svissar af.

Ég geng svo frá þessu þannig að ég bara tengi saman skónna aftur við tengi nr. 8 og þá er þetta alveg eins og þetta var áður en ég snerti við þessu....

Vonandi að þetta skiljist hjá mér.

Re: Lestur villukóða fyrir OBD I. Og nú með DIY :-)

PostPosted: Fri 03. Sep 2010 10:56
by Kristjan
ef ég myndi gera eitthvað svona þá myndi þetta enda á eina vegu...



Image

Re: Lestur villukóða fyrir OBD I. Og nú með DIY :-)

PostPosted: Tue 07. Sep 2010 01:55
by Sarot
Kristjan wrote:ef ég myndi gera eitthvað svona þá myndi þetta enda á eina vegu...



Image


Haha sama hér. Eitt af því sem ég á í rosalegu basli með við bmw eða bara bíla yfir höfuð er einmitt rafkerfin og svoleiðis "tæknilegt" stöff. Ég kann jú á öryggin :P

Re: Lestur villukóða fyrir OBD I. Og nú með DIY :-)

PostPosted: Fri 10. Sep 2010 00:07
by Saxi
Þetta er þrælsniðugt. Ég er ekki viss um að ég þori þessu samt. Kannski ef ég sæi myndir.

Veistu nokkuð um þráð þar sem þessu er lýst bæði í máli og myndum?

kv.

Re: Lestur villukóða fyrir OBD I. Og nú með DIY :-)

PostPosted: Fri 10. Sep 2010 11:24
by JOGA
Saxi wrote:Þetta er þrælsniðugt. Ég er ekki viss um að ég þori þessu samt. Kannski ef ég sæi myndir.

Veistu nokkuð um þráð þar sem þessu er lýst bæði í máli og myndum?

kv.


Þetta er nú reyndar ósköp einfalt. Þessi þráður sem ég vísaði í hér að ofan er með einhverjar myndir.

Annars er bara um að gera að spyrja ef þú ert í vandræðum (þó svo að ég sé reyndar enginn snillingur í þessu).

Re: Getur einhver hér lesið af OBD I bíl hjá mér í skúrnum?

PostPosted: Fri 10. Sep 2010 11:36
by srr
JOGA wrote:Þetta btw ekkert mál þegar maður finnur út úr þessu og must fyrir alla með eldri BMW að kunna

JOGA wrote:Þetta virkar víst bara á bílum með Bosch tölvur framleiddir 1995 og fyrr (t.d. ekki hægt á mínum 328i framleiddur 1995 sem er með Siemens tölvu).


Það sem sumir kalla eldri BMWa :shock: :lol:

Re: Getur einhver hér lesið af OBD I bíl hjá mér í skúrnum?

PostPosted: Fri 10. Sep 2010 13:23
by JOGA
srr wrote:
JOGA wrote:Þetta btw ekkert mál þegar maður finnur út úr þessu og must fyrir alla með eldri BMW að kunna

JOGA wrote:Þetta virkar víst bara á bílum með Bosch tölvur framleiddir 1995 og fyrr (t.d. ekki hægt á mínum 328i framleiddur 1995 sem er með Siemens tölvu).


Það sem sumir kalla eldri BMWa :shock: :lol:


:lol: jæja BMW frá 1988 - 1995 þá.

Annars held ég að það sé samkvæmt ströngustu skilgreiningu gamalt. Það sem þú átt er bara eld-gamalt :thup: