bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Þrif á leðri (Með myndum)
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=46423
Page 1 of 1

Author:  Fatandre [ Mon 16. Aug 2010 09:45 ]
Post subject:  Þrif á leðri (Með myndum)

Jæjæ. Ég fór með bílinn á verkstæði en þegar ég fékk bílinn til baka, þá hélt ég myndi fara að gráta þegar ég sá sætin. Þau voru öll í olíu skítug og ég veit ekki hvað. Auðvitað var ég ekki sáttur og sagði að ég muni ekki borga fullt verð fyrir svona vinnubrögð. Við komumst að samkomulagi og um leið og ég kom heim þreif ég sætin.


Svona voru sætin þegar ég tók við bílnum:

Image
Image


Þessi efni voru notuð:

Image


Svona var niðurstaðan:

Image
Image


Þetta var hreinlega mikill léttir þegar ég var buinn :D

Author:  Mazi! [ Mon 16. Aug 2010 19:40 ]
Post subject:  Re: Þrif á leðri (Með myndum)

:shock:

hvaða verkstæði var þetta ef ég mætti vita ?

bara lélegt

Author:  SteiniDJ [ Tue 17. Aug 2010 01:17 ]
Post subject:  Re: Þrif á leðri (Með myndum)

Leiðinleg vinnubrögð og ekki síst þegar það kemur að svona kerru. Flottur árangur hjá þér og gott að þú sættir þig ekki við þetta.

Fékk bílinn minn af sprautuverkstæði um daginn, þá var eins og hann hafði keyrt í gegnum hveitiverksmiðju. Ég gerði nú ekkert mál úr því (kannski er þetta oftast svona, útaf einhverri asnalegri ástæðu) en var mjög ósáttur þegar ég komst að því að þeir höfðu eyðilagt lykilinn minn.

Author:  ValliB [ Tue 17. Aug 2010 07:32 ]
Post subject:  Re: Þrif á leðri (Með myndum)

Fékk einu sinni bílinn minn svona, nema sá bíll var með ljósu pluss eða eitthvað, 320i

Krafðist þess að þetta yrði djúphreinsað, enda bara fáranlegt að kaupa þjónustu af mönnum sem maður þarf að hreinsa eða taka til eftir.

Author:  Fatandre [ Sat 21. Aug 2010 13:35 ]
Post subject:  Re: Þrif á leðri (Með myndum)

Sem betur fer reddaðist þetta. Veit ekki hvort ég fari með bíllinn aftur til þeirra.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/