Page 1 of 3

Innbrot í bílana mína á geymslusvæðinu

PostPosted: Wed 11. Aug 2010 16:43
by saemi
Jæja, enn einu sinni búið að brjótast inn í bílana mína á Geymslusvæðinu.

Það er búið að brjóta hjá mér 5 rúður síðan í vor. Það virðist vera faraldur í gangi núna, bílarnir hafa fengið að vera í friði hingað til.

Engu hefur verið stolið að ráði hingað til, fyrr en nú. Nú fór einhver og náði sér í svartan bílstjóra- E32/E34 leðurstól. Comfort með rafmagni. Stóllinn var eins og nýr. Að sjálfsögðu braut viðkomandi rúðu í bílnum og rótaði öllu dótaríinu úr bílnum og skildi það eftir þannig í haug.

Ef einhver rekur augun í að skyndilega er kominn brand-spanking-new stóll í staðinn fyrir gamla ljóta, í einhvern bíl sem þeir kannast við, mega þeir gjarnan láta mig vita.

Svo mega þeir sem eru að skemma þetta fyrir mér alveg hætta því, ég er leiður á að teipa plast og skipta um glugga í bílunum mínum.....

Re: Innbrot í bílana mína á geymslusvæðinu

PostPosted: Wed 11. Aug 2010 16:55
by gstuning
Bara pæling, heldurru að það væri kannski sniðugt þegar menn eru með bíla þarna að hafa kannski gott cover sem er þá læsanlegt?

Re: Innbrot í bílana mína á geymslusvæðinu

PostPosted: Wed 11. Aug 2010 17:13
by saemi
gstuning wrote:Bara pæling, heldurru að það væri kannski sniðugt þegar menn eru með bíla þarna að hafa kannski gott cover sem er þá læsanlegt?


Nú skil ég ekki,... cover?

Re: Innbrot í bílana mína á geymslusvæðinu

PostPosted: Wed 11. Aug 2010 17:17
by bimmer
Yfirbreiðsla.

Re: Innbrot í bílana mína á geymslusvæðinu

PostPosted: Wed 11. Aug 2010 18:11
by Birkir
Ég hélt að það væri gæsla 24/7 á geymslusvæðinu, er það rangt ?

Re: Innbrot í bílana mína á geymslusvæðinu

PostPosted: Wed 11. Aug 2010 18:13
by Alpina
BARA pirrandi :x :x

Re: Innbrot í bílana mína á geymslusvæðinu

PostPosted: Wed 11. Aug 2010 20:30
by Giz
Bara fyrir forvitnissakir, hvaða geymslusvæði er rætt um??

Re: Innbrot í bílana mína á geymslusvæðinu

PostPosted: Wed 11. Aug 2010 20:44
by Aron

Re: Innbrot í bílana mína á geymslusvæðinu

PostPosted: Wed 11. Aug 2010 21:02
by saemi
gstuning wrote:Bara pæling, heldurru að það væri kannski sniðugt þegar menn eru með bíla þarna að hafa kannski gott cover sem er þá læsanlegt?


Þá held ég að ég væri með rifið cover og brotna rúðu :)

Re: Innbrot í bílana mína á geymslusvæðinu

PostPosted: Wed 11. Aug 2010 21:23
by ömmudriver
Ég er alveg blásaklaus þar sem að sætin í bílunum mínum eru sem ný :mrgreen:

En leiðinlegt að heyra Sæmi :(

Re: Innbrot í bílana mína á geymslusvæðinu

PostPosted: Wed 11. Aug 2010 21:43
by gstuning
saemi wrote:
gstuning wrote:Bara pæling, heldurru að það væri kannski sniðugt þegar menn eru með bíla þarna að hafa kannski gott cover sem er þá læsanlegt?


Þá held ég að ég væri með rifið cover og brotna rúðu :)


enn samt þá myndi það fela það sem er inní bílnum þannig að mögulega hjálpar það eitthvað.

Re: Innbrot í bílana mína á geymslusvæðinu

PostPosted: Wed 11. Aug 2010 22:06
by Haffi
Eða vekja meiri áhuga á bílnum þar sem hann væri undir ábreiðu?

Re: Innbrot í bílana mína á geymslusvæðinu

PostPosted: Wed 11. Aug 2010 22:08
by srr
Meiri óþverralýður alltaf :?

En er geymslusvæðið ekkert skaðabótaskylt þar sem þetta er læst svæði?

Re: Innbrot í bílana mína á geymslusvæðinu

PostPosted: Thu 12. Aug 2010 00:30
by Mazi!
Ég myndi nú bara ekkert vera setja dót inná geymslusvæðið sé manni eitthvað annt um það,

bílar ryðga illa þarna, enda gjarnan beyglaðir og skemmdir + að drasli er gjarnan stolið þaðan, gæslan er þannig þarna að það er virkilega auðvellt að komast inná svæðið yfir hábjartan dag og allir geta gramsað í öllu draslinu klukkutímunum saman og farið með það út án vandræða

það er leiðinlegt að lenda í þessu en get ekki sagt að ég sé eitthvað hissa á þessu :|

Re: Innbrot í bílana mína á geymslusvæðinu

PostPosted: Thu 12. Aug 2010 00:40
by ///MR HUNG
Það er fínt að vita að þú sért einn af þeim sem eru að laumast þarna inn í leyfisleysi.