Jæja, enn einu sinni búið að brjótast inn í bílana mína á Geymslusvæðinu.
Það er búið að brjóta hjá mér 5 rúður síðan í vor. Það virðist vera faraldur í gangi núna, bílarnir hafa fengið að vera í friði hingað til.
Engu hefur verið stolið að ráði hingað til, fyrr en nú. Nú fór einhver og náði sér í svartan bílstjóra- E32/E34 leðurstól. Comfort með rafmagni. Stóllinn var eins og nýr. Að sjálfsögðu braut viðkomandi rúðu í bílnum og rótaði öllu dótaríinu úr bílnum og skildi það eftir þannig í haug.
Ef einhver rekur augun í að skyndilega er kominn brand-spanking-new stóll í staðinn fyrir gamla ljóta, í einhvern bíl sem þeir kannast við, mega þeir gjarnan láta mig vita.
Svo mega þeir sem eru að skemma þetta fyrir mér alveg hætta því, ég er leiður á að teipa plast og skipta um glugga í bílunum mínum.....





