Page 1 of 1

BMW ráðleggingar

PostPosted: Thu 19. Feb 2004 01:11
by E 220T
Sælir, ég er reyndaer Benz maður en ég er staddur í London hjá félaga mínum. Hann er að spá í bmw 5-series station '97-98. Við erum að fara að skoða í fyrramálið tvo bíla, annars vegar 523i og 528i, báðir með full bmw service history. Báðir bílar eru eknir 70 þúsund mílur. Munurinn í verði er 1000 pund. Hvað ber að varast og skoða sérstaklega?Einhverjar ráðleggingar varðandi hvor vélin hefur komið betur út?

kv.
Hálfdan

PostPosted: Thu 19. Feb 2004 08:45
by bebecar
Ég veit ekki hvort það er hjálp í einhverju umfram þetta hefðbundna - þessir bílar eru bara afskaplega solid. Þjónustubók, ótjónaður og vel með farin ætti að duga. Þessir tveir sem þú nefndir eru líka ekkert voða mikið keyrðir þannig að þeir ættu að vera í fínu lagi.

PostPosted: Thu 19. Feb 2004 13:09
by gstuning
ef það er bara 1000pund þá myndi ég fara extra vel yfir þá og ef 2.8 bíllinn er nálægt því eða betri en 2.3 bílinn þá myndi ég taka 2.8bílinn

PostPosted: Thu 19. Feb 2004 13:21
by arnib
Sérstaklega þar sem ég efast stórlega um að það muni miklu í eyðslu á þeim, en munar örugglega töluverðu í blinga blinga!

PostPosted: Thu 19. Feb 2004 16:45
by bjahja
Það er ágætis munur á M52 2,5l og 2,8 en samt enginn gígantískur. Ég myndi velja bílinn sem er betur farinn og lítur betur út.

PostPosted: Thu 19. Feb 2004 16:59
by Jói
Góð bresk síða með umsagnir um BMW e39

En passaðu þig bara að hafa stýrið réttu megin. :wink:

528 er vitaskuld meira spennandi og hentar þessari stærð gríðarlega vel. Ef félagi þinn má við 1000 pundum þá finnst mér, að öðru jöfnu, að hann ætti að taka 528.

1000 pund finnst mér alls ekki mikið fyrir þennan mun, sem er nú samt talsverður. Það munar alveg sekúndu í uppstarti (0-100 km hraða) á þessum bílum. 523 er skv. mínum heimildum skráður vera 8,3 sek í 100, en 528 er skráður 7,3 sek í 100. Þarna er mikill munur. 528 er með 23 hö meira og togið er enn meira.

Auðvitað er aðalatriðið að bera bílana saman, vega verðið á móti kraftinum. Munurinn í venjulegri keyrslu er alls ekki svo mikill.

PostPosted: Thu 19. Feb 2004 17:30
by Alpina
Jói wrote:Góð bresk síða með umsagnir um BMW e39

En passaðu þig bara að hafa stýrið réttu megin. :wink:

528 er vitaskuld meira spennandi og hentar þessari stærð gríðarlega vel. Ef félagi þinn má við 1000 pundum þá finnst mér, að öðru jöfnu, að hann ætti að taka 528.

1000 pund finnst mér alls ekki mikið fyrir þennan mun, sem er nú samt talsverður. Það munar alveg sekúndu í uppstarti (0-100 km hraða) á þessum bílum. 523 er skv. mínum heimildum skráður vera 8,3 sek í 100, en 528 er skráður 7,3 sek í 100. Þarna er mikill munur. 528 er með 23 hö meira og togið er enn meira.

Auðvitað er aðalatriðið að bera bílana saman, vega verðið á móti kraftinum. Munurinn í venjulegri keyrslu er alls ekki svo mikill.




Fín ummæli hjá þér ,,Jói,,

PostPosted: Thu 19. Feb 2004 22:18
by bebecar
Athyglisvert að uppgefin hröðun á 528 er sú sama og á Mercedes Benz E420 (W124) eða 7.2 sekúndur. :shock: EN sá bíll er með V8 vél og 286 hestöfl... og virkar allavega sneggri en 7.2 í hundrað. Góður vinur minn á slíkann bíl og hann er frábær.