bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Heilsprautun, nokkrar spurningar https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=46061 |
Page 1 of 1 |
Author: | geirisk8 [ Sun 25. Jul 2010 12:34 ] |
Post subject: | Heilsprautun, nokkrar spurningar |
Ég er að velta fyrir mér heilsprautun á bíl og hef nokkrar spurningar. Hvar teljið þið besti en samt sem áður ekki dýrasti þjónustuaðili sem sér um að sprauta ? Getur einhver sagt mér af reynslu hvað kostaði að sprauta eitt stykki e39 bíl alveg frá toppi til táar ? Hvort er dýrara, þjónustan eða grunnurinn, liturinn og lakkið ? Ég er að velta því fyrir mér hvort ég myndi spara á að kaupa mér grunninn, litinn og lakkið sjálfur að utan og fara síðan einhvert að láta heilsprauta e39 bílinn minn. |
Author: | Sezar [ Sun 25. Jul 2010 13:21 ] |
Post subject: | Re: Heilsprautun, nokkrar spurningar |
Þú mundir spara á því að sjá um að rífa bílinn og raða honum saman sjálfur. Það er betra að láta málarann sjá um efniskaup, því hann ákvarðar best magn sem þarf á stykkin. Það er ekkert hægt að skjóta eitthvað fast verð á svona vinnu án þess að skoða bílinn, þeir eru mis ryðgaðir,beyglaðir,grjótbarðir ofl ofl. En verð á efni í almálningu er ekki undir 100þús,,,,þetta er megadýrt stöff. |
Author: | BMW728i [ Wed 28. Jul 2010 09:40 ] |
Post subject: | Re: Heilsprautun, nokkrar spurningar |
Sezar wrote: Þú mundir spara á því að sjá um að rífa bílinn og raða honum saman sjálfur. Þegar talað er um að rífa bílinn, þá er væntanlega verið að tala um að strípa hann niður í ekkert nema grindina? Vél, innréttingar, listar o.þ.h. allt fjarlægt, eða hvað? (spyr sá sem ekkert veit) ![]() |
Author: | Alpina [ Wed 28. Jul 2010 09:49 ] |
Post subject: | Re: Heilsprautun, nokkrar spurningar |
BMW728i wrote: Sezar wrote: Þú mundir spara á því að sjá um að rífa bílinn og raða honum saman sjálfur. Þegar talað er um að rífa bílinn, þá er væntanlega verið að tala um að strípa hann niður í ekkert nema grindina? Vél, innréttingar, listar o.þ.h. allt fjarlægt, eða hvað? (spyr sá sem ekkert veit) ![]() Vél og þessháttar er afar sjaldan tekið úr nema um sé að ræða að heilsprauta í öðrum lit.. en listar .. stuðarar osfrv,, JÁ best er að gera þetta í samráði við málarann |
Author: | geirisk8 [ Wed 28. Jul 2010 10:04 ] |
Post subject: | Re: Heilsprautun, nokkrar spurningar |
Já ég var bara að velta þessu fyrir mér, emkert stress. Lakkið er orðið svo helvíti illa farið. Húddið er alveg doppótt og svo er byrjað að springa uppúr lakkinu. Það eru nokkrar smávægilegar skemmdir hér og þar í lakkinu og smá blettir þar sem er mikil hætta á ryði. Ég myndi vilja þjónustu þar sem hann yrði tekinn í gegn og kæmi út eins og splunkunýr úr verksmiðjunni. |
Author: | BMW728i [ Wed 28. Jul 2010 11:20 ] |
Post subject: | Re: Heilsprautun, nokkrar spurningar |
Er ekki málið að fara á nokkra staði og kanna málið? Heyra hvað fagmennirnir hafa að segja. Annars hef ég nú orðið var við það að hún er misjöfn fagmennskan. Ég fór með bíl sem þurfti að laga eftir tjón og það var skipt um hurðir og bretti, ég hefði nú haldið að sprautun á svona löguðu væri ansi basic, en það kom annað á daginn þegar ég sótti bílinn, nennti bara ekki að standa í miklu veseni út af þessu þar sem þetta var ekki merkileg bíldrusla. En ef menn geta ekki sprautað bíldruslu sæmilega vel, þá myndi ég alls ekki treysta þeim fyrir eðalvagni ![]() btw þetta sprautuverkstæði er í Auðbrekku. En ég myndi halda ef þú ætlar að láta taka bílinn almennilega í gegn að það myndi margborga sig að leita til alvöru fagmanns og borga frekar aðeins meira og vera ánægður með útkomuna - frekar en hinn möguleikinn allavega! |
Author: | geirisk8 [ Wed 28. Jul 2010 11:38 ] |
Post subject: | Re: Heilsprautun, nokkrar spurningar |
Já algjörlega, það skiptir öllu að þetta sé fagmannlega gert. Ég las grein á Mbl einhverntímann um að þad væri svo rosalegur munur á milli staða sem sjá um svona. Ég er staðsettur á Ísafirði og fæ ekki tækifæri á hverjum degi til að fara og athuga svona, en ég ætti samt að gera það við næsta tækifæri. |
Author: | siggi litli [ Fri 30. Jul 2010 00:01 ] |
Post subject: | Re: Heilsprautun, nokkrar spurningar |
Þekki einn FAGMANN sem er skuggalega góður |
Author: | saemi [ Fri 30. Jul 2010 01:07 ] |
Post subject: | Re: Heilsprautun, nokkrar spurningar |
siggi litli wrote: Þekki einn FAGMANN sem er skuggalega góður og er hann sprautari ??? ![]() |
Author: | ///MR HUNG [ Fri 30. Jul 2010 01:18 ] |
Post subject: | Re: Heilsprautun, nokkrar spurningar |
Ohh ég þekki engann FAGMANN ![]() |
Author: | oddur11 [ Fri 30. Jul 2010 02:04 ] |
Post subject: | Re: Heilsprautun, nokkrar spurningar |
hvar er ódýrast en samt vel gert? |
Author: | gardara [ Fri 30. Jul 2010 08:18 ] |
Post subject: | Re: Heilsprautun, nokkrar spurningar |
///MR HUNG wrote: Ohh ég þekki engann FAGMANN ![]() Ég hélt einmitt að þú værir svona FAG-maður ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |