Page 1 of 2

uppboð á e36

PostPosted: Fri 16. Jul 2010 21:42
by sigridurma
Ef einhver er að bjóða í þennan bíl http://bilauppbod.is/auction/view/4788-bmw-3-320i þá er 1-2 cm hola í boddýinu í vélarsalnum og einnig 1-2 cm rifa í samskeytunum sem þarf mjög líklega að sjóða í, bæði hægra meginn, þannig að þið vitið af því af því. Og hann er mun tjónaðari en hann virðist á myndunum.

Re: uppboð á e36

PostPosted: Fri 16. Jul 2010 21:48
by GunniT
453.000 :lol:

Re: uppboð á e36

PostPosted: Fri 16. Jul 2010 23:08
by sigridurma
sem er meira en ég fékk fyrir hann.. gaurinn sem setti hann á uppboð var svooo viss um að hann fengi ekki hærra boð en 200þús...

Re: uppboð á e36

PostPosted: Fri 16. Jul 2010 23:20
by kalli*
Kannski ætti maður að prófa að setja bílinn sinn þarna. :lol:

Re: uppboð á e36

PostPosted: Sat 17. Jul 2010 08:21
by bErio
sigridurma wrote:sem er meira en ég fékk fyrir hann.. gaurinn sem setti hann á uppboð var svooo viss um að hann fengi ekki hærra boð en 200þús...


What þú átt að fá yfir 300 borgað út myndi ég telja !

Re: uppboð á e36

PostPosted: Sat 17. Jul 2010 12:08
by sigridurma
ég átti að fá fyrst 200þúsund og ekki græjurnar til baka, ég fékk 436þús plús græjurnar, átti að fá 450 en bifreiðagjöldin drógust frá.. ég á að fá meiri pening ef bílinn fer á meira

Re: uppboð á e36

PostPosted: Sat 17. Jul 2010 12:24
by bErio
Það er samt í raun fínn peningum miðað við gamlan BMW

Re: uppboð á e36

PostPosted: Sat 17. Jul 2010 13:10
by IceDev
Ég myndi nú ekkert vera að telja seðlana áður en gengið er frá þessu. Ekki óalgengt að fólk hætti við tilboðin þarna

Re: uppboð á e36

PostPosted: Sat 17. Jul 2010 13:18
by gardara
IceDev wrote:Ég myndi nú ekkert vera að telja seðlana áður en gengið er frá þessu. Ekki óalgengt að fólk hætti við tilboðin þarna



Tilboðin eru bindandi. Hæsta tilboð í hvert ökutæki eða hlut er sýnilegt. Tilboðgjafi verður því að gera hærra tilboð en sýnt er. Ef annar tilboðsgjafi gerir hærra tilboð, getur annar tilboðsgjafi gert nýtt og hærra tilboð. Öll verð eru staðgreiðsluverð. Ef lágmarksverð næst ekki er það ákvörðun seljanda hvort hann selur á hæsta tilboðsverði. Eftir sem áður er tilboðsgjafi bundin að sínu tilboði.


http://bilauppbod.is/pages/view/skilmalar

Re: uppboð á e36

PostPosted: Sat 17. Jul 2010 13:19
by IceDev
Ef notandi verður uppvís af því að misnota vefinn t.d. með því falla frá tilboði sem hann hefur gert í ökutæki eða hlut þá getur hann verið útilokaður frá að nota uppboðsvef Króks bílastöðvar ehf.

Re: uppboð á e36

PostPosted: Mon 19. Jul 2010 13:43
by hjolli
550k!! hvaða rugl

Re: uppboð á e36

PostPosted: Mon 19. Jul 2010 13:44
by arnibjorn
Ég er að spá í að breyta söluauglýsingunni minni í tjónauppboð nema bara mínus tjónið og sjá hvað gerist :lol:

Re: uppboð á e36

PostPosted: Mon 19. Jul 2010 13:49
by ///M
Ætli fólk haldi að það sé að bjóða í 2005 árgerð? :lol:

Re: uppboð á e36

PostPosted: Mon 19. Jul 2010 13:55
by hjolli
///M wrote:Ætli fólk haldi að það sé að bjóða í 2005 árgerð? :lol:


eg var einmitt að spa i þvi... sumt fólk veður ekki alveg í vitinu

Re: uppboð á e36

PostPosted: Mon 19. Jul 2010 14:16
by Zed III
arnibjorn wrote:Ég er að spá í að breyta söluauglýsingunni minni í tjónauppboð nema bara mínus tjónið og sjá hvað gerist :lol:


Það er ekkert mál að græja eins og eitt gott tjón á hann ef þú vilt. Bíllinn þarf ekki að vera tjónaður.

Annars getur þú bara sett verð sem þú ert sáttur við sem viðmiðun, ef það er boðið lægra en það ræður þú hvort þú selur eða ekki.