Page 1 of 2

Hvernig er ástand á veginum til Akureyrar

PostPosted: Sun 13. Jun 2010 12:11
by GunniT
Veit einhver hvort það séu eitthvað af nýlögðum klæðningum og þess háttar??

Re: Hvernig er ástand á veginum til Akureyrar

PostPosted: Sun 13. Jun 2010 22:00
by gunnar
GunniT wrote:Veit einhver hvort það séu eitthvað af nýlögðum klæðningum og þess háttar??


Ég var að koma að norðan.

Það er nýbúið að leggja klæðningu rétt hjá Borgarnesi, var ekkert spes þar og olíumölin aldrei skemmtileg. Líka orðið ofsalega mikið af ójöfnun sem lækkaðir bílar sem eru mikið lestaðir eru ekkert hrifnir af.

Svo eru þessar helvítis bætur sem er búið að setja í hjólförin víða á leiðinni. Búið að keyra þetta að mestu niður. Þetta var verst í haust þegar ég fór á E30 suður, bílinn var ein tjara og Cr7 felgurnar mínar voru í steik eftir þetta.

Edit: Er alla vega búinn að taka ákvörðun um að ég fer ekki á E30 aftur norður eða for that matter út fyrir höfuðborgina mikið. Þjóðvegirnir á Íslandi eru svo mikið sorp að ég nota frekar eitthvað af hinum bílunum mínum í þetta.

Re: Hvernig er ástand á veginum til Akureyrar

PostPosted: Sun 13. Jun 2010 23:02
by BirkirB
Fór rvk-hzk á föstudaginn og minn er allur í tjöruslettum. Ekki svona litlum doppum heldur slettum.
Nýjir klæðningarblettir í kringum Varmahlíð líka en ég man ekki eftir neinni lausri möl á leiðinni. Hundleiðinlegt samt að keyra þar sem er búið að setja í hjólför.

Re: Hvernig er ástand á veginum til Akureyrar

PostPosted: Sun 13. Jun 2010 23:04
by Einarsss
Held ég haldi mér bara í bænum :D

Re: Hvernig er ástand á veginum til Akureyrar

PostPosted: Sun 13. Jun 2010 23:31
by jon mar
vælukjóar..........

Re: Hvernig er ástand á veginum til Akureyrar

PostPosted: Mon 14. Jun 2010 00:03
by BjarkiHS
Djöfull er gott að vera bara á gömlum og ryðguðum Patrol , og þurfa ekki að láta ástand vega stoppa mig í að fara það sem ég vill.

Re: Hvernig er ástand á veginum til Akureyrar

PostPosted: Mon 14. Jun 2010 09:33
by gunnar
jon mar wrote:vælukjóar..........


Váááá mig vantar eitt stórt kaldhæðnisskilti Jón minn :lol: :lol:

Gluggaðu nú aðeins í þráðinn hjá þér fyrst áður en þú segir að menn séu vælukjóar ef þeir vilja bílana sína ekki alla í tjöru við að keyra norður. Veit nú ekki betur en að þú hafir fengið smá slag fyrir ekki svo löngu síðan útaf lakkinu hjá þér.

Re: Hvernig er ástand á veginum til Akureyrar

PostPosted: Mon 14. Jun 2010 11:49
by jon mar
gunnar wrote:
jon mar wrote:vælukjóar..........


Váááá mig vantar eitt stórt kaldhæðnisskilti Jón minn :lol: :lol:

Gluggaðu nú aðeins í þráðinn hjá þér fyrst áður en þú segir að menn séu vælukjóar ef þeir vilja bílana sína ekki alla í tjöru við að keyra norður. Veit nú ekki betur en að þú hafir fengið smá slag fyrir ekki svo löngu síðan útaf lakkinu hjá þér.


Já, ég veit :mrgreen:

En ég er samt ekki hræddur við að keyra bílinn minn milli landshluta og hef aldrei verið :wink:

Re: Hvernig er ástand á veginum til Akureyrar

PostPosted: Mon 14. Jun 2010 22:11
by GunniT
var að koma til ak og vegirnir eru í fínu lagi eða allavega vel þolanlegir. Eina sem ég var hræddur við ef það væri einhver nýlögð klæðning en svo er ekki. Eða ekki allavega lausamöl

Re: Hvernig er ástand á veginum til Akureyrar

PostPosted: Mon 14. Jun 2010 22:17
by gulli
GunniT wrote:var að koma til ak og vegirnir eru í fínu lagi eða allavega vel þolanlegir. Eina sem ég var hræddur við ef það væri einhver nýlögð klæðning en svo er ekki. Eða ekki allavega lausamöl

Þúrt bara pempía :mrgreen:

Re: Hvernig er ástand á veginum til Akureyrar

PostPosted: Mon 14. Jun 2010 22:40
by GunniT
gulli wrote:
GunniT wrote:var að koma til ak og vegirnir eru í fínu lagi eða allavega vel þolanlegir. Eina sem ég var hræddur við ef það væri einhver nýlögð klæðning en svo er ekki. Eða ekki allavega lausamöl

Þúrt bara pempía :mrgreen:

:oops:

Re: Hvernig er ástand á veginum til Akureyrar

PostPosted: Tue 15. Jun 2010 13:05
by ValliB
Var að koma norður í gærkvöldi eftir skrautlega Ibiza ferð.
Fulllestaður ólækkaður Benz fór ágætlega yfir ójöfnur, en ég hefði aldrei fyrir mitt litla líf farið á mínum 60/40 lækkaða bíl fulllestuðum yfir 80 eftir Blönduós

Re: Hvernig er ástand á veginum til Akureyrar

PostPosted: Tue 15. Jun 2010 14:06
by gunnar
ValliB wrote:Var að koma norður í gærkvöldi eftir skrautlega Ibiza ferð.
Fulllestaður ólækkaður Benz fór ágætlega yfir ójöfnur, en ég hefði aldrei fyrir mitt litla líf farið á mínum 60/40 lækkaða bíl fulllestuðum yfir 80 eftir Blönduós


Fór á mínum lestaða E36 60/40 lækkuðum og það slapp alveg, en eins og þú segir þá þurfti maður stundum að hægja verulega á sér útaf ójöfnum.

Rak hann þó aldrei upp undir sem var ánægjulegt :shock:

Re: Hvernig er ástand á veginum til Akureyrar

PostPosted: Tue 15. Jun 2010 14:10
by arnibjorn
Ég er bara nokkuð feginn að vera fara á einhverjum jeppa í þetta skiptið. Maður hefur alltaf þurft að keyra mega hægt til að rústa ekki pústinu sínu :lol:

Re: Hvernig er ástand á veginum til Akureyrar

PostPosted: Tue 15. Jun 2010 16:57
by Jón Ragnar
Feginn að guli hefur ekki ennþá röbbað hjá mér.


Er reyndar feginn að fara á einhverjum jeppa bara núna :mrgreen: