Page 1 of 1

Felguboltavandamál

PostPosted: Mon 07. Jun 2010 16:21
by Gunni13
Góðan Daginn.
Eg lennti í því að bremsuborðarnir losnuðu á afturdekki hjá mér, og ætlaði að taka af eina felguna og kíkja á þetta, en við það var einn boltinn svo fastur að ég braut 3 toppa og skemmdi boltan á endanum. Mér var sagt að ég ætii að bora niður að skrúfu, þannig myndi hann losna, en ég er ekki með bor í það og langar ekki að vera að gera neina vitleysu, og ég get ekki farið með hann á neitt verkstæði, því hann fer ekki langt með bremsuborðan laf lausan. Veit eitthver um lausn á þessu, eða gæti eitthver af ykkur sem á bor til að losa þetta hjálpað mér með þetta?, ætla að setja eina mynd af þessu, bara svona til að útskýra aðeins betur..
Image

Kv. Gunnar.

Re: Felguboltavandamál

PostPosted: Mon 07. Jun 2010 16:52
by JOGA
Sá sem gaf þér ráðleggingar um að bora gerði líklegast ráð fyrir að þú værir með rær en ekki bolta.

Ég get því miður ekki sagt þér hvernig þú getur losað þetta en vildi bara benda á að ef þú borar boltan niður verður gangurinn af boltanum enn fastur í...

Re: Felguboltavandamál

PostPosted: Mon 07. Jun 2010 16:59
by gardara
Farðu með þetta í loftpressu... t.d. á næsta dekkjaverkstæði

Re: Felguboltavandamál

PostPosted: Mon 07. Jun 2010 17:17
by JonHrafn
Hvernig skemmdiru boltan? skrollaðiru toppinum á honum? Ertu með sexkant topp eða stjörnutopp? Sexkant toppur og gott átaksskaft losar eiginlega allt.

Re: Felguboltavandamál

PostPosted: Mon 07. Jun 2010 17:21
by Gunni13
ég var með sexkantaða toppa, 3 brotnuðu, og einn fór bara hringinn..

Re: Felguboltavandamál

PostPosted: Mon 07. Jun 2010 17:35
by JonHrafn
Er það þá ekki bara gasið og berja topp upp á sem er næsta stærð fyrir neðan?