Page 1 of 1

leiðbeiningar óskast varðandi felgur og dekk á e46

PostPosted: Sat 05. Jun 2010 19:57
by Tonsinn
Sæl var að fá mér 17" felgur styling 116 á þessari síðu http://felgenkatalog.auto-treff.com/ er í smá vanda
það eru dekk á felgunum 225/50 R17 og þau eru að rekast í þegar ég fer á sumar hraðahindranir

getur einhver leiðbeint mér hvað ég gæti gert til þess að losna við þetta ??

Re: leiðbeiningar óskast varðandi felgur og dekk á e46

PostPosted: Sat 05. Jun 2010 20:37
by Haffi
Fá sér dekk með minni prófíl ?

Re: leiðbeiningar óskast varðandi felgur og dekk á e46

PostPosted: Sat 05. Jun 2010 20:50
by Tonsinn
já það er næst á dagskrá að fá minni prófíl enn ég er ekki veit ekki hvort að það sé nóg :S

Re: leiðbeiningar óskast varðandi felgur og dekk á e46

PostPosted: Sat 05. Jun 2010 20:54
by JOGA
Hmm, eru þetta ekki felgur undan E60 fimmu?

Þá ert þú alls ekki að fara að geta notað 225/50. Það eru orginal stærð fyrir E60 :wink:
Þessar felgur eru að öllum líkindum með Offset upp á 20. Það þýðir að þær standa ca. +/- 2 cm utar en orginal E46 felgur í sömu breidd og stærð. Í raun eru þessar felgur ekki gerðar til að passa undir E46.

Það er þó vinsælt að nota fimmu felgur undir þrista. Samanber t.d. minn bíll. Þetta er gert til að felgur fylli betur út í hjólaskálina en hverfi ekki inn í eins og stundum vill verða með orginal felgur.
Þannig að til þess að þú fáir þetta til að passa þarft þú að nota dekk sem eru mjög nett. Veit ekki hvað kemur orginal á E46 en líklega þarftu að skoða 215/45 eða minna hugsanlega 215/40 eða 205/45.

Þetta breytir hæð dekkjanna mv. orginal og því kemur smá skekkja í hraðamæli. Því rétt að reyna að halda sig sem næst orginal dekkjastærð (fyrir E46 á 17"). Einnig er oft meiri þörf á að lækka til að svona komi vel út vs. venjulegar felgur.

Það er einmitt á listanum hjá mér en ég er einmitt með ET20 (og 8" breiðar) felgur undir þristi (E36).

Re: leiðbeiningar óskast varðandi felgur og dekk á e46

PostPosted: Sat 05. Jun 2010 22:10
by ///MR HUNG
Þetta eru E60 felgur og þessi jeppadekk eiga ekki heima undir E46.

17" E46 kemur á 225/45 og 245/40 minnir mig að aftan ef þær eru staggered.

Re: leiðbeiningar óskast varðandi felgur og dekk á e46

PostPosted: Sun 06. Jun 2010 08:41
by hauksi
///MR HUNG wrote:Þetta eru E60 felgur og þessi jeppadekk eiga ekki heima undir E46.

17" E46 kemur á 225/45 og 245/40 minnir mig að aftan ef þær eru staggered.


Leiðrétting:
245/40 17" að aftan
255/35 18" að aftan

ég er að keyra 255/40/17

Re: leiðbeiningar óskast varðandi felgur og dekk á e46

PostPosted: Sun 06. Jun 2010 09:02
by JonHrafn
hauksi wrote:
///MR HUNG wrote:Þetta eru E60 felgur og þessi jeppadekk eiga ekki heima undir E46.

17" E46 kemur á 225/45 og 245/40 minnir mig að aftan ef þær eru staggered.

255/40 að aftan


245/40/17 segir í hurðastafnum :þ Ég er samt að runna núna 255/45/70 að aftan á style 68 felgum , lækkaður sirka 30mm á mtech suspension, bara milli í að hann rubbi.

Ef þú ætlar að runna fimmufelgum á e46 þá þýðir það bara mjórri dekk eins og talað var um hérna fyrir ofaon 215/45 eða 215/40. Ég mátaði fimmufelgur undir hjá mér að aftan reyndar með svoldið lágt offset og þær stóðu sirka tommu út fyrir brettin.