Sælir félagar, ég vildi bara koma þessum þræði að ef einhverjum skyldu vera boðnar felgurnar mínar eða vissi hvar þær eru niðurkomnar.
Þær eru svosem ekkert fallegar, en þetta eru vetrarfelgurnar og já, svo á ég þær! Þeim var stolið fyrir utan Bifreiðaþjónustu Gísla í Kópavoginum þar sem þær höfðu staðið úti yfir nótt fyrir misskilning. Þær eru frekar illa farnar og sést hreinlega mikið á þeim. Ég læt þessar myndir fylgja en þær segja kanski ekki mikið.


Það var vont að missa þessar gömlu elskur, ekki vil ég keyra um á Alpinunum í vetur.
Endilega látið heyra í ykkur ef þið hafið orðið varir við þetta.