Söluþræðir á kraftinum, bull í gangi og ósætti
Ég er ekki alveg að skilja hvert allt þetta er að fara hérna á kraftinum síðustu viku varðandi söluþræði.
Að mínu mati skiptist fólk hér í 2 flokka:
Hópur A sem vill að söluþráðurinn sem það býr til sé þráðurinn þeirra og einungis athugasemdir sem þeim er að skapi rati þangað inn.
Hópur B sem vill að fólki leyfist að setja inn á hvað sem er hér á kraftinum (söluþræðir meðtaldir), athugasemdir og innlegg sem því finnst viðeigandi (frátalið bull og niðrandi orð, ærumeiðingar o.þ.h., það er bannað á kraftinum).
Ég hef alltaf aðhyllst skoðun B. Reyndar er ég þannig að ég er seinþreyttur til reiði og tek hlutum með jafnaðargeði, en geri mér grein fyrir því að það eru ekki allir þannig. Þegar ég set eitthvað inn hér og annar notandi hraunar yfir mig þá tek ég því mátulega hátíðlega. Ég vil meina að með aðferð A, þá verði spjallið ópersónulegra. Þá verður til sölu dálkurinn eins og sótthreinsað sjúkrahús. Engar skoðanir og einu bömpin verða ttt þess sem setti inn auglýsinguna. Ómögulegt að sjá í fljótu bragði hvaðan bíllinn kemur, tjón/tjónlaus, fyrrverandi eigendur o.s.frvs. ef metnaður og vitneskja seljenda er ekki til þess að setja það inn. Ég hugsa að margir seljendur geri sér ekki grein fyrir hvað það er mikið atriði hér að sjá innlegg sumra notenda varðandi bíla sem þeir eru að selja, með tilliti til sölu bílanna. Þá er ég að tala um hvetjandi og jákvætt fyrir söluna.
Að sama skapi skil ég vel að það hafi neikvæð áhrif fyrir marga sem eru að selja sítrónur (bíla sem eru kötturinn í sekknum ,,,,(slæmir bílar)). En hvert erum við komnir, ef það er slæmt þegar verið er að benda á (eða leiða getgátur) að því að eitthvað sé slæmt við ákveðinn bíl? Viljum við að hér inni sé látið kyrrt liggja þegar verið er að selja bíl þar sem maðkur er í mysunni? Er þá ekki betra að komið sé með aðfinnslu/athugasemd/spurningu og seljandi svari fyrir sig?
Ég hef sagt það áður og segi enn. Ef sá sem er að auglýsa getur ekki réttlætt það verð sem hann er að auglýsa bíl á, eða staðið við það með einhverju móti þá er eitthvað að. Fólk getur verið að auglýsa bíl og verðlagt hann hátt. Bíl sem er einungis til sölu fyrir ákveðið verð. Það er bara í góðu lagi. Ég hef margoft gert slíkt hið sama. Verið með bíl til sölu jafnvel í ár eða svo. Ég hef fengið í þræði mína athugasemdir um háa verðlagningu og hitt og þetta. En ég hef aldrei, ALDREI talið það vera að skemma fyrir söluþræðinum þó svo að inn í þráðinn minn sé sett eitthvað varðandi verðlagningu. Ef að hefur verið ýjað að því að ég sé að selja of dýrt, þá hef ég rökstutt verðlagningu mína. Þeir sem eru með toppstykkið í lagi (og yfirleitt þeir sem eru með peningana) þeir sjá alveg í gegnum bullið og vitleysuna í söluþráðunum. Þeir taka svar seljandans gott og gilt þegar það er rökrétt og rökstutt og ekki rengt með rökstuðningi frá öðrum.
Nú nýverið hafa komið upp dæmi þar sem höfundar auglýsinga hér á kraftinum verða alveg brjálaðir yfir því sem er skrifað á söluþræði þeirra. Er það ekki eigingirni að ætlast til þess að í söluþræðina hér sé bannað að setja inn allt sem þeim sé á móti skapi, að þeir "eigi sína auglýsingu". Það er bara ekki þannig að hægt sé að banna allt sem ekki er auglýsanda að skapi. Þetta er ekki Fréttablaðið, þetta er opinn vettvangur spjallverja allra.
Krafturinn er fljótandi og síbreytilegur vettvangur. Ásýnd has er fljót að breytast og nýtt fólk kemur inn og setur mark sitt á hann. Stundum aðeins tímabundið. En hann er með fastan kjarna, fólk sem er ekki að hlaupa til og skrifa inn í alla þræði, en kemur frekar með innlegg við og við sem skilja meira eftir í huga annarra en innsláttur sumra með margfalt fleiri innlegg. Fólk sem er ekki endilega að setja inn það sem þeim finnst um allt og alla en hefur samt ákveðnar skoðanir á málunum. Ég hef þá trú að í þessu málefni hafi aðeins komið fram vilji hins háværa minnihluta.
Ég veit og skil að fólk er þreytt á þessu bulli sem hefur ratað hér inn undanfarið, en hvað á að gera. Á að stoppa þann sem setur inn kurteisislega ábendingu um verðlagningu, finnst of hátt verðlagt. Á að stoppa hann af bara af því að hann er að "kommenta á verðlagningu" í trássi við óskir höfundar? Eða á að stoppa eigandann sem bregst við með offorsi og hótunum á móti?
Á ekki bara að stoppa þann fyrsta sem hættir að vera málefnalegur. Þann sem fer að vera með skítkast og dónalegheit? Líkt og verið hefur hér á kraftinum? Höfum við sem stjórnendur ekki bara linast og sofnað á verðinum, eða nýjir notendur gengið á lagið og komist upp með allt of mikið??
Hvað finnst ykkur spjallverjum, hvað á að gera? Endilega greiðið atkvæði og setjið inn póst um hvað ykkur finnst.