Page 1 of 1
innkaup frá www.bmwspecialisten.dk

Posted:
Thu 05. Feb 2004 12:35
by BMWmania
Veit einhver hversu mikill kostnaður bætist við verðin hjá
www.bmwspecialisten.dk við það að flytja vöruna hingað? Þeir gefa upp verð excl. moms og eitthvað, hefur einhver ykkar reynslu af þessu? og hvað tekur þetta langan tíma?
Kveðja
BMWmania

Posted:
Thu 05. Feb 2004 15:00
by Gunni
Danska krónan er um 12 kr íslenskar. Danski vsk (moms) er 25%. Þú bætir s.s. 25% við verðið úti, og reiknar yfir í ísl kr. Svo bætirðu við flutningskostnaði, og svo geturðu eiginlega bara gert þá tölu * 1,5 og þá færðu ca. verð á dótinu komið í þínar hendur!
Já við lifum í landi hafta og tolla


Posted:
Thu 05. Feb 2004 17:01
by Bjarki
Ég fæ momsinn alltaf til baka þegar ég versla þarna úti! Þarft nú varla að borga hann þegar þú færð sent.
Ég læt stimpla á reikninginn þegar ég fer út úr EU svo faxa ég reikninginn til þeirra og þeir leggja þetta inn á reikninginn minn.

Posted:
Thu 05. Feb 2004 17:13
by BMWmania
og hvað er flutningskostnaðurinn mikill?

Posted:
Thu 05. Feb 2004 17:18
by gstuning
flutningskostnaður er misjafnn
ég myndi segja að það sem það kostar úti x 2 er svona gott viðmið,
þ.e það sem það kostar úti án MOMS(VSK)

Posted:
Thu 05. Feb 2004 17:19
by BMWmania
Hmmm og af hverju fær maður momsinn endurgreiddan?? Ekki það að það sé slæmt..hehe

Posted:
Thu 05. Feb 2004 17:23
by Bjarki
BMWmania wrote:Hmmm og af hverju fær maður momsinn endurgreiddan?? Ekki það að það sé slæmt..hehe
Þetta er eins og TaxFree nema þeir borga manni þetta beint og maður fær alla upphæðina. Þetta er af því við erum ekki í EU og þess vegna fáum við danska virðisaukaskattinn til baka


Posted:
Thu 05. Feb 2004 17:24
by gstuning
Því að í raun ertu ekkert að fá hann endurgreiddan hann er bara ekki lagður á vörur sem eru fluttar út,
alveg eins og fólk sem myndi panta af netinu eitthvað frá íslandi borgar ekki íslenskan VSK, það myndi ekki ganga að tví Virðisaukaskattleggja hluti

Posted:
Thu 05. Feb 2004 17:38
by BMWmania
ég skil, thanks guys


Posted:
Fri 06. Feb 2004 10:18
by Jói
Gunni wrote:Já við lifum í landi hafta og tolla

Er til eitthvað land í heiminum þar sem ekki eru tollar?

Posted:
Fri 06. Feb 2004 11:18
by gstuning
Bandarikin eru ansi laus í þessu
engir tollar frá evrópu eins og ég veit best

Posted:
Fri 06. Feb 2004 11:47
by Jói
Ég veit ekki nákvæmlega hvernig þetta er í USA en Bandaríkjamenn hafa verið þekktir fyrir ofurtolla á t.d. stáli til að vernda stálframleiðendur í USA. Ég gæti vel trúað að eitthvað svoleiðis væri einnig með aðra hluti, þ.e. tollar til að vernda framleiðendur í USA. En ég veit ekki um hvort það eigi við hér.
Mér fannst bara spaugilegt að Gunni var að tala um DK og Ísland í sama svarinu og talaði um Ísland sem eitthvað sérstakt tollaríki. En í DK og einnig í Noregi eru þvílíkir tollar á bíla að venjulegir nýjir bílar kosta miklu meira en hérna. Mig minnir að tollar í DK séu 100% á bíla.


Posted:
Fri 06. Feb 2004 12:13
by iar
BMWmania wrote:ég skil, thanks guys

Ég skil ekki.
Smella þeir hjá BMWSpecialisten Moms skattinum á vörur sem þeir senda til Íslands?
Ég veit að ef maður kaupir hjá þeim úti og fær þar afhent þá borgar maður Moms en getur svo á leiðinni heim fengið stimplað og svo endurgreitt eins og Bjarki lýsir.

Posted:
Fri 06. Feb 2004 12:23
by Alpina
Smella þeir hjá BMWSpecialisten Moms skattinum á vörur sem þeir senda til Íslands?
[/quote]
Alls ekki.. VSK kemur bara í staðinn hér heima