bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Ert þú með bílskúr? Og algjör bílagrúskari? Vantar pening? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=43356 |
Page 1 of 1 |
Author: | ppp [ Thu 04. Mar 2010 02:57 ] |
Post subject: | Ert þú með bílskúr? Og algjör bílagrúskari? Vantar pening? |
... þá er þessi þráður kannski eitthvað fyrir þig. Þannig er mál að ég keypti mér glænýja týpu af angel eyes hringjum í E46 sem voru svo loksins að koma í pósti í dag, en er um leið í þeirri skemmtilegu stöðu að ég hef bæði engan bílskúr til að vinna í sjálfur, né þekkinguna sem ég myndi vilja hafa til þess að fara að grugga í þessu alveg sjálfur. Eina tæknihjálpin sem ég hef aðgang að (fyrir utan það að fara á eitthvað verkstæði) er líka úti á landi að vinna fram í næstu viku, og þar sem ég er alveg hræðilega óþolinmóður andskoti ákvað ég að sjá hvort það væri einhver áhugi hjá einhverjum fyrir því að krukka í svona eins til tveggja tíma tops verkefni fyrir mig, gegn greiðslu. Ég var að pæla kannski 5-10þús kall fyrir þetta, eftir því hvort þetta fer yfir klukkutímann eða hvað? Þetta á í raun að vera sáraeinfalt fyrir fólk sem þekkir til í þessu, bara spurning um að smella ljósin opin, þræða víra í gegn og hooka við 12v víra með klippum. Hér er t.d. þráður með myndum sem sýnir nokkurnvegin hvað ég er að tala um. Eini munurinn er að angel eyein sem að ég er með eru betri (massífari vírar bæði og betri ljós), og að bíllinn minn er facelift xenon (en samt ekki með coupe ljós sem þarf að baka í ofni til að opna!) http://forums.bimmerforums.com/forum/sh ... p?t=905125 Ég gæti komið strax á morgun (fimmtudag) þessvegna, eiginlega hvenær sem er svo lengi sem það er eftir kl 15 og á höfuðborgarsvæðinu. Ef þetta hljómar spennandi, þá endilega látið mig vita. P.s. Ég verð samt örugglega aðeins hikandi við að taka við boðum frá fólki sem er ekki aktívt hérna á spjallinu. Bæði vegna þess að þessi ljós kostuðu svona skítsæmilega mikla bið og pening að fá hingað til landsins, og vegna þess hversu brothætt þau eru. P.p.s. Ef þið viljið senda skilaboð frekar en að svara í þræðinum þá getiði gert það líka. Ég fylgist alveg með inboxinu. |
Author: | ppp [ Thu 04. Mar 2010 03:00 ] |
Post subject: | Re: Ert þú með bílskúr? Og algjör bílagrúskari? Vantar penin |
Og já ég hefði líklega átt að setja þetta í tæknilegar umræður frekar en almennar. Oh well. Hér er mynd í skaðabætur. Framleiðandinn er semsagt Weisslicht, og þetta er nýkomið út og á að vera drullu bjart og fínt. ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |