Page 1 of 2
Sælir, getiði sagt mér hvernig ég segi mig úr klúbbnum?

Posted:
Mon 01. Mar 2010 12:34
by hjalmar87
Sælir drengir, hef engann áhuga á að segja skilið við kraftinn en langar að segja upp skírteininu mínu og sleppa við þennan litla pening sem ég þarf að borga til að fá það, þarf að spara á öllum m0gulegum sviðum þessa daganna:/
Endilega ef þið vitið hvert ég á að snúa mér þá væri það vel þegið að þið ritið það hérna fyrir neðan.
Takk fyrir
Hjálmar
Re: Sælir, getiði sagt mér hvernig ég segi mig úr klúbbnum?

Posted:
Mon 01. Mar 2010 12:46
by gstuning
Sleppir bara að borga.
Re: Sælir, getiði sagt mér hvernig ég segi mig úr klúbbnum?

Posted:
Mon 01. Mar 2010 16:28
by hjalmar87
En fær maður þá ekki bara Intrum og eitthvað eða vexti og rugl?
Re: Sælir, getiði sagt mér hvernig ég segi mig úr klúbbnum?

Posted:
Mon 01. Mar 2010 16:30
by gstuning
Nei, þetta er ekki á gjaldaga.
Re: Sælir, getiði sagt mér hvernig ég segi mig úr klúbbnum?

Posted:
Mon 01. Mar 2010 16:31
by Zed III
Klúbburinn hefur yfirleitt sparað sér intrum og sent bara handrukkara strax.
Re: Sælir, getiði sagt mér hvernig ég segi mig úr klúbbnum?

Posted:
Mon 01. Mar 2010 16:54
by iar
hjalmar87 wrote:En fær maður þá ekki bara Intrum og eitthvað eða vexti og rugl?
Þú sleppir því bara að borga reikninginn, þetta er valfrjáls greiðsluseðill og þarft ekki að hafa áhyggjur af rukkurum.

Ég held að þú getir líka hent reikningnum úr öllum heimabönkum. Aðgerðin heitir afskrá kröfu eða eitthvað ámóta.
Re: Sælir, getiði sagt mér hvernig ég segi mig úr klúbbnum?

Posted:
Mon 01. Mar 2010 17:45
by hjalmar87
Hehe ok takk fyrir þetta strákar, þá veit ég það ef handrukkararnir byrja að banka heima hjá mér;)
Re: Sælir, getiði sagt mér hvernig ég segi mig úr klúbbnum?

Posted:
Mon 01. Mar 2010 18:40
by hjalmar87
Nú kemur samt eindagi á þetta hjá mér, og enginn valmöguleiki að segja sig úr neinu eða neitt þannig..
Re: Sælir, getiði sagt mér hvernig ég segi mig úr klúbbnum?

Posted:
Mon 01. Mar 2010 18:54
by iar
hjalmar87 wrote:Nú kemur samt eindagi á þetta hjá mér, og enginn valmöguleiki að segja sig úr neinu eða neitt þannig..
Já, það er eindagi á reikningnum en þetta fer ekki í neina rukkun eða neitt slíkt þó hann verði ekki greiddur. No worries..

En svo þér líði aðeins betur þá er ég búinn að fella kröfuna niður okkar megin, hún ætti þá að hverfa fljótlega úr bankanum hjá þér.

Re: Sælir, getiði sagt mér hvernig ég segi mig úr klúbbnum?

Posted:
Mon 01. Mar 2010 19:15
by SteiniDJ
Zed III wrote:Klúbburinn hefur yfirleitt sparað sér intrum og sent bara handrukkara strax.
Góður.

Re: Sælir, getiði sagt mér hvernig ég segi mig úr klúbbnum?

Posted:
Mon 01. Mar 2010 20:12
by hjalmar87
Hehe ok gott að hafa þetta á hreinu:)
Re: Sælir, getiði sagt mér hvernig ég segi mig úr klúbbnum?

Posted:
Tue 02. Mar 2010 00:30
by Birgir Sig
Zed III wrote:Klúbburinn hefur yfirleitt sparað sér intrum og sent bara handrukkara strax.
og er það árnibjörnin sjálfur

Re: Sælir, getiði sagt mér hvernig ég segi mig úr klúbbnum?

Posted:
Tue 02. Mar 2010 01:03
by Kristjan PGT
Heyrðu nú af einum sem borgaði ekki reikninginn sem lenti í því að vera tekinn í ruglaða píningu af Árna Crossfit á meðan Aron Andrew starði í augun á honum með seiðandi brosið...
Hann er ennþá að jafna sig
Re: Sælir, getiði sagt mér hvernig ég segi mig úr klúbbnum?

Posted:
Tue 02. Mar 2010 01:08
by IceDev
Mynd náðist af Andrew á öryggismyndavél á svæðinu
Við birtum hana hér til að vara við þessum manni, hann er þekktur fyrir sín seiðandi bros og tælandi augnagægjur

Re: Sælir, getiði sagt mér hvernig ég segi mig úr klúbbnum?

Posted:
Tue 02. Mar 2010 01:16
by Aron Andrew
IceDev wrote:Mynd náðist af Andrew á öryggismyndavél á svæðinu
Við birtum hana hér til að vara við þessum manni, hann er þekktur fyrir sín seiðandi bros og tælandi augnagægjur

Þessi mynd
