Page 1 of 3
Fyrsti BMW E30 electro

Posted:
Wed 24. Feb 2010 12:35
by jens
Jæja nú breyti ég bílnum mínum í rafmagnsbíl...................
Fór á ódýrustu bensínstöðina sem ég fann,dældi sjálfur með ódýrasta bensíninu á 4bangerinn minn og það kostar 9200 krónur að kaupa rúma 45 lítra á þennan litla bíl, það sjá það allir að þetta gengur ekki til lengdar

Re: Fyrsti BMW E30 electro

Posted:
Wed 24. Feb 2010 12:46
by Einarsss
haha, það er gaman að vera með 60L tank sem maður setur bara v power/98 á og bíllinn eyðir 20L/100km ef maður keyrir eins og maður á að keyra

Re: Fyrsti BMW E30 electro

Posted:
Wed 24. Feb 2010 12:46
by arnibjorn
Ertu svona hneykslaður að þú varðst að búa til tvo þræði um sama málið?
viewtopic.php?f=16&t=43162Ég held að það viti allir af þessari hækkun..... en hvað getur maður gert í því?
Þýðir lítið að væla á netinu, það lækkar víst ekki verðið

Re: Fyrsti BMW E30 electro

Posted:
Wed 24. Feb 2010 13:11
by jens
Þú mátt eyða báðum þráðunum.
Re: Fyrsti BMW E30 electro

Posted:
Wed 24. Feb 2010 13:14
by arnibjorn
jens wrote::shock:
Þú mátt eyða báðum þráðunum.
Við eyðum ekki þráðum á kraftinum, þetta má alveg vera hérna.
Fínn staður fyrir menn sem þurfa fá smá útrás útaf þessari verðhækkun
Þú ert þó heppinn að þinn bíll sé 4banger!
Re: Fyrsti BMW E30 electro

Posted:
Wed 24. Feb 2010 13:22
by Zed III
arnibjorn wrote:en hvað getur maður gert í því?
Eru ekki allir að sniðganga N1 ?
hehe
Re: Fyrsti BMW E30 electro

Posted:
Wed 24. Feb 2010 16:07
by oddur11
ég er bara fegin að ég sé ekki að eiða bensíni í bílinn hjá mer, hef voða litið við bensín að gera þar sem það er ekki mótor í honum
en ég á eftir að fá hjartaáfal þegar bilinn kemur aftur á götuna

Re: Fyrsti BMW E30 electro

Posted:
Wed 24. Feb 2010 19:21
by Thrullerinn
Er ekki einhver varahlutaverslun sem er sambærileg N1 uppi á höfða, finnst verðin þar orðin pirrandi..
Re: Fyrsti BMW E30 electro

Posted:
Wed 24. Feb 2010 19:27
by Alpina
Thrullerinn wrote:Er ekki einhver varahlutaverslun sem er sambærileg N1 uppi á höfða, finnst verðin þar orðin pirrandi..
Fálkinn er með virkilega góðar vörur
Re: Fyrsti BMW E30 electro

Posted:
Wed 24. Feb 2010 20:00
by gunnar
Ef maður er með sæmilegan afslátt hjá N1 þá er það ódýrasta verðið iðulega sem þú finnur..
Hef einstaka sinnum fundið ódýrari vörur hjá AB eða Poulsen, en Stillingar menn eru alveg búnir að gera í buxurnar.
Re: Fyrsti BMW E30 electro

Posted:
Wed 24. Feb 2010 23:23
by JOGA
Keypti diska og klossa að framan í Súbbann okkar um daginn.
Það munaði ca. 11þús á dýrasta verði (N1) og ódýrasta (Stilling með diska og Poulsen með klossa).
Finnst það svolítið grófur verðmunur á samskonar "patern" varahlutum.
Re: Fyrsti BMW E30 electro

Posted:
Wed 24. Feb 2010 23:27
by Lindemann
spurning um að fara bara að brugga og keyra svo á alkóhóli................... kannski dálítið mikill kostnaður í sykur, er ekki klár á því
Re: Fyrsti BMW E30 electro

Posted:
Thu 25. Feb 2010 17:27
by siggir
Thrullerinn wrote:Er ekki einhver varahlutaverslun sem er sambærileg N1 uppi á höfða, finnst verðin þar orðin pirrandi..
Ég versla ekki við N1 nema þeirra verð sé talsvert lægra en annarra. Það endar nefnilega yfirleitt með því að ég þarf að fara þangað aftur þar sem þeir láta mig alltaf hafa vitlausa hluti!
Re: Fyrsti BMW E30 electro

Posted:
Fri 26. Feb 2010 05:53
by Vlad
Plús það að einhver snillingurinn í N1 á Selfossi vissi ekki hvað miðjuhringir í felgur væru þó svo það fór fínn tími í að útskýra þetta... hélt ég væri að tala um felgumiðjur og þess háttar... hélt ég yrði ekki mikið eldri þarna inni.
Re: Fyrsti BMW E30 electro

Posted:
Fri 26. Feb 2010 07:45
by Alpina
Vlad wrote:Plús það að einhver snillingurinn í N1 á Selfossi vissi ekki hvað miðjuhringir í felgur væru þó svo það fór fínn tími í að útskýra þetta... hélt ég væri að tala um felgumiðjur og þess háttar... hélt ég yrði ekki mikið eldri þarna inni.
Ég misskildi einmitt einhverja stúlku hérna all hrikalega þegar hún spurði það sama........
ég hélt að hún væri að meina plasthringinn.......
en nei hún meinti allt annað
