bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Mr. X - official 2010 þráður - dagur 1 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=43087 |
Page 1 of 7 |
Author: | bimmer [ Wed 17. Feb 2010 22:04 ] |
Post subject: | Mr. X - official 2010 þráður - dagur 1 |
Nú er vorið að nálgast sem þýðir að vorboðinn fer að láta sjá sig...... Hr. X ætlar að mæta á svæðið í fjórða sinn til að mappa, delimita og hvaðeina sem menn vilja láta krukka í mótortölvunni. Gríðarlega vinsælt að láta kreista meira úr dísilbílum ![]() Dæmi: - eldsneytis og kveikjumöppun eftir breytingar - eldsneytis og kveikjumöppun á stock bíl til að auka afl - hraðatakmarkari fjarlægður - rev limit hækkað - launch control (E39 M5) - full throttle shifting (E39 M5) - "sport" stilling helst inni þótt drepið sé á bílnum (E39 M5) Nákvæm dagsetning er ekki komin enn þó að miðað sé við apríl - maí. Verðið er 400 evrur ef vinnan er undir 4 tímum en ef svo ólíklega vill til að þetta taki meira þá er hver auka klukkutími á 100 evrur. Það má geta þess að aðeins tveir bílar fóru yfir 4 tíma í fyrra vegna bilanagreininga/viðgerða. Hvernig gengur þetta fyrir sig? Til að byrja menn senda menn email á rngtoy@rngtoy.com (ekki EP) með upplýsingum um hvaða bíl þeir eru með. Ég safna síðan saman lista og sendi á karlinn og hann segir til um hvað hann getur gert. Þegar það er komið á hreint borga menn staðfestingargjald sem er 100 evrur og fæst ekki endurgreitt nema að Hr. X mæti ekki. Þannig að ef menn hafa áhuga - sendið póst á rngtoy@rngtoy.com með upplýsingum um nafn, símanúmer og bíltegund. Það hefur verið mikil ánægja með vinnuna hjá karlinum hingað til ![]() Hér eru nokkrar myndir frá fyrri heimsóknum: ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | Alpina [ Wed 17. Feb 2010 22:37 ] |
Post subject: | Re: Mr. X - official 2010 þráður |
þekki einn sem á 315 blöndungsbíl frá 1982,, getur þessi meistari tryllt hrossin eitthvað þannig að hann fari að geta spyrnt og slædað.. veit að bíllinn hefur mega potential,, eða svo segir eigandinn sagan segir að þetta sé einn heitasti chick-vagninn á götunni,,,, ![]() |
Author: | Schulii [ Wed 17. Feb 2010 22:51 ] |
Post subject: | Re: Mr. X - official 2010 þráður |
Er GRÍÐARLEGA ánægður með muninn á mínum bíl frá því í fyrra. Mæli eindregið með því að diesel eigendur íhugi þetta vel. Get ekki ímyndað mér ódýrari hestafla og tog aukningu. |
Author: | Alpina [ Wed 17. Feb 2010 22:54 ] |
Post subject: | Re: Mr. X - official 2010 þráður |
Schulii wrote: Er GRÍÐARLEGA ánægður með muninn á mínum bíl frá því í fyrra. Mæli eindregið með því að diesel eigendur íhugi þetta vel. Get ekki ímyndað mér ódýrari hestafla og tog aukningu. Eins og áður sagt..... töffið lekur af honum og jafnan bætt á með Faxekondi en það er aldrei hægt að taka af honum að hann veit sínu viti virkilega flinkur í ECU uppgrade osfrv,, í sérflokki að mínu mati |
Author: | IvanAnders [ Wed 17. Feb 2010 23:16 ] |
Post subject: | Re: Mr. X - official 2010 þráður |
bimmer wrote: - "sport" stilling helst inni þótt drepið sé á bílnum (E39 M5) Getur hann ekki látið sætishitarann haldast inni á E39? ![]() |
Author: | SteiniDJ [ Wed 17. Feb 2010 23:18 ] |
Post subject: | Re: Mr. X - official 2010 þráður |
Ekki ennþá kominn á bíl sem vit er í að tjúna; kannski vorið 2011. ![]() |
Author: | ValliB [ Wed 17. Feb 2010 23:40 ] |
Post subject: | Re: Mr. X - official 2010 þráður |
Alpina wrote: Schulii wrote: Er GRÍÐARLEGA ánægður með muninn á mínum bíl frá því í fyrra. Mæli eindregið með því að diesel eigendur íhugi þetta vel. Get ekki ímyndað mér ódýrari hestafla og tog aukningu. Eins og áður sagt..... töffið lekur af honum og jafnan bætt á með Faxekondi en það er aldrei hægt að taka af honum að hann veit sínu viti virkilega flinkur í ECU uppgrade osfrv,, í sérflokki að mínu mati Ég skil engan veginn hvað þú meinar með þessu.. ![]() ? |
Author: | gunnar [ Wed 17. Feb 2010 23:43 ] |
Post subject: | Re: Mr. X - official 2010 þráður |
mymojo wrote: Alpina wrote: Schulii wrote: Er GRÍÐARLEGA ánægður með muninn á mínum bíl frá því í fyrra. Mæli eindregið með því að diesel eigendur íhugi þetta vel. Get ekki ímyndað mér ódýrari hestafla og tog aukningu. Eins og áður sagt..... töffið lekur af honum og jafnan bætt á með Faxekondi en það er aldrei hægt að taka af honum að hann veit sínu viti virkilega flinkur í ECU uppgrade osfrv,, í sérflokki að mínu mati Ég skil engan veginn hvað þú meinar með þessu.. ![]() ? Hafðu ekki áhyggjur, það skilur hann enginn heldur almennilega ![]() |
Author: | bimmer [ Wed 17. Feb 2010 23:45 ] |
Post subject: | Re: Mr. X - official 2010 þráður |
mymojo wrote: Alpina wrote: Schulii wrote: Er GRÍÐARLEGA ánægður með muninn á mínum bíl frá því í fyrra. Mæli eindregið með því að diesel eigendur íhugi þetta vel. Get ekki ímyndað mér ódýrari hestafla og tog aukningu. Eins og áður sagt..... töffið lekur af honum og jafnan bætt á með Faxekondi en það er aldrei hægt að taka af honum að hann veit sínu viti virkilega flinkur í ECU uppgrade osfrv,, í sérflokki að mínu mati Ég skil engan veginn hvað þú meinar með þessu.. ![]() ? Hr. X drekkur mikið af þessu, verður að vera til, er á ridernum hjá honum..... ![]() |
Author: | doddi1 [ Thu 18. Feb 2010 00:05 ] |
Post subject: | Re: Mr. X - official 2010 þráður |
er þetta peninganna virði fyrir mig? þetta er um 70þúsund gætirðu sent honum email og athugað hvað er sniðugt að gera? *edit* ég veit að ég á að senda email, er bara að flýta mér... sendi á morgun ![]() |
Author: | akajoi [ Thu 18. Feb 2010 20:04 ] |
Post subject: | Re: Mr. X - official 2010 þráður |
hvað væri hægt að gera við e31 m70b50? |
Author: | Alpina [ Thu 18. Feb 2010 21:50 ] |
Post subject: | Re: Mr. X - official 2010 þráður |
akajoi wrote: hvað væri hægt að gera við e31 m70b50? örugglega eitthvað |
Author: | IvanAnders [ Fri 19. Feb 2010 14:46 ] |
Post subject: | Re: Mr. X - official 2010 þráður |
Alpina wrote: akajoi wrote: hvað væri hægt að gera við e31 m70b50? örugglega eitthvað Núna skil ég af hverju þú ert með 20k+ pósta |
Author: | HemmiR [ Fri 19. Feb 2010 21:06 ] |
Post subject: | Re: Mr. X - official 2010 þráður |
IvanAnders wrote: Alpina wrote: akajoi wrote: hvað væri hægt að gera við e31 m70b50? örugglega eitthvað Núna skil ég af hverju þú ert með 20k+ pósta ![]() |
Author: | jeppakall [ Mon 22. Feb 2010 10:27 ] |
Post subject: | Re: Mr. X - official 2010 þráður |
Hefur hann eitthvað verið að tjúna Land Cruiser 100 dísel bílinn? Ég er með 2007 módel Hefuru einhverja hugmynd hvað aflaukning gæti verið? |
Page 1 of 7 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |