Page 1 of 2
Kaup á E39 M5

Posted:
Mon 15. Feb 2010 20:11
by Karlf
Halló allir hér, ég er nýr notandi hér þar sem ég á nú bara eitthvað VW hræ en er núna að koma í hóp stóru strákanna og fjárfesta í einu stykki M5 E39 svona í tilefni af því að bensín er á svo góðu verði í dag.
Hvaða aðilar á höfuðborgarsvæðinu sérhæfa sig í þjónustu á þessum bílum?
Hvað þarf ég að skoða vel áður en ég kaupi svona bíl?
Hverju þarf maður að passa sig á?
Með fyrirfram þökk og öll önnur comment eru vel þegin.
Re: Kaup á E39 M5

Posted:
Mon 15. Feb 2010 20:18
by Einarsss
Einfaldasta svarið við öllu þessu er: Eðalbílar ehf
Færð þá til að skoða bílinn áður en þú kaupir, þeir sjá um viðgerðir og þjónustu á bmw og eru með mikla mikla reynslu.
Re: Kaup á E39 M5

Posted:
Mon 15. Feb 2010 21:29
by ///MR HUNG
Það eina sem þú þarft að passa þig á ert þú sjálfur og löggan!
Re: Kaup á E39 M5

Posted:
Mon 15. Feb 2010 21:45
by Ampi
///MR HUNG wrote:Það eina sem þú þarft að passa þig á ert þú sjálfur og löggan!
Klárt mál tek undir þetta,
Re: Kaup á E39 M5

Posted:
Mon 15. Feb 2010 22:48
by x5power
og eiga slatta af auka pening í viðhald!

Re: Kaup á E39 M5

Posted:
Mon 15. Feb 2010 22:56
by Alpina
x5power wrote:og eiga slatta af auka pening í viðhald!

Gott að eiga auka dekk,,,, nóg af afturdekkjum

Re: Kaup á E39 M5

Posted:
Mon 15. Feb 2010 23:31
by ValliFudd
Það eru til dæmi um að farin kúpling endi í 2 mánuðum í Tækniþjónstu Bifreiða og 280 þúsund krónum.. Svo kauptu stórt veski og fylltu það af peningum

Re: Kaup á E39 M5

Posted:
Mon 15. Feb 2010 23:36
by ///MR HUNG
ValliFudd wrote:Það eru til dæmi um að farin kúpling endi í 2 mánuðum í Tækniþjónstu Bifreiða og 280 þúsund krónum.. Svo kauptu stórt veski og fylltu það af peningum

Haa????
Re: Kaup á E39 M5

Posted:
Tue 16. Feb 2010 00:29
by bimmer
///MR HUNG wrote:ValliFudd wrote:Það eru til dæmi um að farin kúpling endi í 2 mánuðum í Tækniþjónstu Bifreiða og 280 þúsund krónum.. Svo kauptu stórt veski og fylltu það af peningum

Haa????
Er ekki verið að vitna í stóra Burgerking málið.
Þetta voru verðin fyrir kreppu.
Re: Kaup á E39 M5

Posted:
Tue 16. Feb 2010 11:44
by Jet
Ef þú átt M5 ...þá ferðu til Eðalbíla. Punktur.
Það er ekki einu sinni almennileg tölva til aflesturs í TB...nema þeir hafi uppgreidað nýlega.
Re: Kaup á E39 M5

Posted:
Tue 16. Feb 2010 17:15
by Tombob
Þú ert smekk maður á bíla Karlf
Tek undir þar sem hér hefur verið sagt.
Ekki kaupa fyrr en þú hefur fengið strákana í Eðalbílum til að fara yfir hann. Verð á varahlutum í þessa bíla er mjög hátt þannig að það getur verið dýrt að kaupa köttinn í sekknum.
kv,
Tombob
Re: Kaup á E39 M5

Posted:
Tue 16. Feb 2010 17:16
by Grétar G.
Kaup á M5 = JÁ !
Re: Kaup á E39 M5

Posted:
Tue 16. Feb 2010 17:33
by Giz
Ég vera með.
Það er líka spurning um notkun hjá þér. Ég nota bílinn eiginlega ekki neitt, synd og að mínu mati ekki hollt að láta þetta standa...
Eðalbílar, ekki spurning m.v. mína reynslu allavega, þó hún sé ekki annarsstaðar frá.
Svo er bara að eiga þónokkuð af fé til almenns viðhalds. Ég er nokkuð viss um að flestir ef ekki allir eigengur geta tekið undir það. Ég keypti að flestra mati sem dæmi gott eintak, en er búinn að skipta um:
- Knastásskynjara
- Pakkningar
Eitthvað fleira smá dót líka, og svo þetta klassíska:
- Vatnslás
- Og bensíndælu
Njóttu þess bara að eiga svona bíl á Íslandi, bensín á Íslandi er skítbillegt m.v. í Evrópu.
G
Edit - Og að sjálfsögðu að eiga fulla skúffu af hinum ýmsustu skynjurum...
Re: Kaup á E39 M5

Posted:
Tue 16. Feb 2010 22:23
by batti
Menn fara fögrum orðum um Eðalbíla hægri vinstri...
Er málið að mæta með bíla sem menn eru að íhuga kaup á til þeirra fyrst og láta þá yfirfara þá? hvort sem menn eru að íhuga e34 520 eða e39 m5?
Hvað eru þeir að rukka fyrir svona þessa týpísku söluskoðun ?
Re: Kaup á E39 M5

Posted:
Tue 16. Feb 2010 22:34
by Einarsss
ég myndi nú varla fara með bíl í söluskoðun sem kostar 200k en ef það er verið að leggja ágætis upphæðir í notaða bíla þá myndi ég hiklaust fara með bmw til þeirra.