Page 1 of 2

535i tjónaður/ónýtur

PostPosted: Thu 29. Jan 2004 21:33
by Bjarki
Ég vona að allir hafi komið heilir úr þessu, þetta er rosalegt svo ekki sé meira sagt.

http://www.live2cruize.com/phpBB2/viewtopic.php?t=3859

Image

Image

Image

PostPosted: Thu 29. Jan 2004 21:33
by fart
:shock:

PostPosted: Thu 29. Jan 2004 21:38
by moog
Synd og skömm, þetta var frábær bíll. Fékk að prófa hann þegar Bjarki átti hann. Vona að eigandi hafi sloppið án alvarlegra meiðsla. Samhryggist! :(

PostPosted: Thu 29. Jan 2004 21:58
by Stefan325i
þetta er helvíti leiðinlegt.

Vonandi eru allir heilir ur þessu, :(

PostPosted: Thu 29. Jan 2004 22:03
by Gunni
Ó sjitt! Vonandi er Jón Ragnar og hans föruneyti heil á húfi!

PostPosted: Thu 29. Jan 2004 22:08
by Haffi
já ég vissi af þessu....

Staurar sucka SVOOOOOOOO feitast !!

PostPosted: Thu 29. Jan 2004 22:10
by Heizzi
Haffi wrote:já ég vissi af þessu....

Staurar sucka SVOOOOOOOO feitast !!


Hvað gerðist eiginlega, bakkaði hann bara full blast á staur?

PostPosted: Thu 29. Jan 2004 22:55
by Haffi
koma úr hringtorgi og fór að renna til á leiðinni úr því og reyndi að réttann við og þá flaug hann í hina áttina og bossinn á staur.

Allavega það sem hann sagði mér

PostPosted: Thu 29. Jan 2004 23:00
by Svezel
MAN! djöfull vorkenni ég stráknum.

Hann hefur ekki verið jafn heppinn og ég í mínu hringtorgarslædi í dag :shock:

PostPosted: Thu 29. Jan 2004 23:09
by bebecar
Þetta hefur líklega verið fishtailing - svona hafa margir M5 endað lífið síðustu ár.

Vonandi eru allir ómeyddir.

PostPosted: Thu 29. Jan 2004 23:29
by Haffi
hann kenndi um eymsli í baki ...

PostPosted: Thu 29. Jan 2004 23:39
by Svezel
Það er slæmt, ekki gott að skaða á sér bakið sérstaklega svona ungur. Vona bara að hann nái sér sem fyrst líkamlega og ekki síður andlega.

PostPosted: Fri 30. Jan 2004 00:04
by Haffi
ég eyðilagði mig gjörsamlega ný orðinn 18 ára og tókst að stúta mér endanlega hálfu ári seinna ...... vona að hann endi ekki eins og ég !

PostPosted: Fri 30. Jan 2004 00:17
by bjahja
Jesús, alltaf leiðinlegt að sjá svona...........vona svo sannarlega að það sé allt í lagi með Jón Ragnar

PostPosted: Fri 30. Jan 2004 00:25
by Jss
Þetta er rosalegt, skottið gengið allrosalega inn. En það sem skiptir mestu er að ökumaður og farþegar hafi sloppið heilir úr þessu og vona ég að svo hafi verið og eymslin í bakinu séu ekki mikið. Það er nógu leiðinlegt að horfa á eftir bílnum fara svona svo ekki sé talað um sár á líkama og sál.