Page 1 of 1

Að nota bara M-Tec framstuðara á E46

PostPosted: Sat 23. Jan 2010 14:18
by ppp
Spurning, ætli það myndi virka að nota ekki full kit? Ég hef séð svoleiðis virka mjög vel á E60, en aldrei rekist á E46 með bara frontal.

Eru M-Tec hliðarbrettin að lækka E46 eitthvað mikið eða? Einhver sem veit þetta?

Re: Að nota bara M-Tec framstuðara á E46

PostPosted: Sat 23. Jan 2010 14:56
by danmodan
ég mundi bara hafa m-tech frammstuðara kemur flott út þanning :thup:

Re: Að nota bara M-Tec framstuðara á E46

PostPosted: Sat 23. Jan 2010 15:24
by ppp
Fokkit, ég prófa þetta bara. Þeir eru á góðu tilboði á umnitza.com og ég get ekki hamið mig.

Re: Að nota bara M-Tec framstuðara á E46

PostPosted: Sat 23. Jan 2010 15:32
by ///MR HUNG
Sílsarnir standa meira út en orginal og þú þarft nýjar festingar fyrir stuðarann.

Re: Að nota bara M-Tec framstuðara á E46

PostPosted: Sat 23. Jan 2010 15:35
by ppp
///MR HUNG wrote:Sílsarnir standa meira út en orginal og þú þarft nýjar festingar fyrir stuðarann.

Nú skil ég ekki, afhverju þarf ég nýjar festingar ef ég nota ekki hliðar og aftur kittið líka? Þetta er ekki einusinni tengt saman? Eða ertu að meina að ég þarf festingar til að koma m-tech á? Kemur þetta ekki allt yfirleitt með í svona pökkum?

P.s. Ég held ég sé að meina M-tech II -- ef það breytir einhverju. Annars er ég að skoða þetta núna.

Re: Að nota bara M-Tec framstuðara á E46

PostPosted: Sat 23. Jan 2010 15:53
by ppp
Nevermind, sýnist skv. þessu að M-tech II sé fyrir coupe, og alveg sama look á M-tech. En æi ég prófa þetta bara. Ég ætlaði ekkert að kaupa stuðara en fyrst þeir eru á góðu tilboði og ég var á annað borð að kaupa annað á þessari síðu þá hendi ég bara einum með í leiðinni. Ef þetta er ekki að gera sig þá bara verður því reddað.

P.s. Spes. TB býður þónokkuð betra verð á þessu þegar maður tekur inn shipping+tolla heldur en búðir sem ég hef verið að skoða. Það er sérstaklega shippingið sem er ansi blóðugt, þannig að ég held að málið sé bara að panta þetta hjá þeim á góða verðinu.

Re: Að nota bara M-Tec framstuðara á E46

PostPosted: Sat 23. Jan 2010 17:22
by JonHrafn
Mtech II er ekki bara fyrir coupe. Er með orginal Mtech II á touring hjá mér.


716 M AERODYNAMICS PACKAGE II

Fyrst þú varst að pæla í hæðinni á sílsunum þá skellti ég mér út í rigninguna fyrir þig og mældi þá, sirka 12.5cm háir að framan og síkka aftur í sirka 15cm. Veit ekki hvað þetta er hátt á orginal bílum. Ef þú mælir þetta hjá þér þá eru þetta málin á plasdraslinu sjálfu upp að stál sílsanum undir hurðunum.

Það sést aðeins á þessari mynd hérna fyrir neðan hvað nafni er að tala um að þeir standi utar, það kemur brot sirka í miðjum sílsa sem brotnar út og breikkar sílsan.

Annars eru þessir bílar alveg að looka vel bara með framspoilerinn. Hugsa að það væri hálf kjánalegt að taka fram og hliðarsílsa en sleppa síðan afturstuðaranum. Þannig að, að mínu mati bara framstuðari eða allan hringin.

Image

Re: Að nota bara M-Tec framstuðara á E46

PostPosted: Sat 23. Jan 2010 17:27
by ppp
Takk fyrir það.

Re: Að nota bara M-Tec framstuðara á E46

PostPosted: Sat 23. Jan 2010 17:55
by ppp
Stock side skirtin virðast vera jafn há, ég amk mældi rúma 15cm hérna núna. Þá ætti bara front bumper að virka vel. Ég hafði aðallega áhyggjur að mtech framstuðarinn yrði augljóslega mikið lægri en restin af bílnum, en svo virðist ekki vera.

Re: Að nota bara M-Tec framstuðara á E46

PostPosted: Sat 23. Jan 2010 18:38
by ///MR HUNG
Stýringarnar á endunum á stuðaranum eru öðruvísi.
S.s stýringarnar á brettunum.

Hliðarplöstin passa beint á enn eru ekki eins í útliti.