Page 1 of 1

540 á bílauppboð.is ???

PostPosted: Wed 13. Jan 2010 17:41
by Höfuðpaurinn
þekkir einhver sögu þessa bíls?
er eitthvað ac snitcher dót í honum annað en útlitslegt?

http://bilauppbod.is/auction/view/3708-bmw-5

Re: 540 á bílauppboð.is ???

PostPosted: Thu 14. Jan 2010 01:18
by birkire
750þús :rofl:

Re: 540 á bílauppboð.is ???

PostPosted: Thu 14. Jan 2010 09:11
by Einarinn
Það er búið að bjóða allt of hátt í bílinn. Allar upplýsingar um hann eru líka rangar eins og að hann sé nýskr. ´03, þetta er ´99 bíll. Bílar eru líka ekki með -9 gíra. Skrítið að fyrirtæki eins og Avant leggi ekki aðeins meiri metnað í hlutina.

Það gæti allt eins allt verið ónýtt í þessum bíl, ekki sérlega gáfulegt að bjóða 750þ. í bílinn og það sem er enn sorglegra er að það mun örugglega einhver toppa hann.

Re: 540 á bílauppboð.is ???

PostPosted: Thu 14. Jan 2010 09:13
by Zed III
birkire wrote:750þús :rofl:


maður hefur nú sé meiri rugl verð en þetta, þ.e. ef þetta yrði lokaverðið.

Um 300 þús í viðgerðir á þennan og hann er orðinn góður. Ekkert að því að eiga 540 fyrir það verð.

Re: 540 á bílauppboð.is ???

PostPosted: Thu 14. Jan 2010 10:38
by Thrullerinn
Verðin þarna eru orðin ansi há engu að síður.

Re: 540 á bílauppboð.is ???

PostPosted: Thu 14. Jan 2010 15:16
by Höfuðpaurinn
Einarinn wrote:Það er búið að bjóða allt of hátt í bílinn. Allar upplýsingar um hann eru líka rangar eins og að hann sé nýskr. ´03, þetta er ´99 bíll. Bílar eru líka ekki með -9 gíra. Skrítið að fyrirtæki eins og Avant leggi ekki aðeins meiri metnað í hlutina.

Það gæti allt eins allt verið ónýtt í þessum bíl, ekki sérlega gáfulegt að bjóða 750þ. í bílinn og það sem er enn sorglegra er að það mun örugglega einhver toppa hann.


ég var nú búinn að komast að því að þetta væri '99 módel... og var nú alveg viss um að hann væri ekki -9 gíra :lol:

er alveg hjartanlega sammála ykkur með þetta verð... þegar ég vippaði inn spurningunni var hæsta boð 350 þús... og ég var svona að spá í því að kíkja á hann... en 750 þús og ennþá 5 tímar eftir :roll:

Re: 540 á bílauppboð.is ???

PostPosted: Thu 14. Jan 2010 15:33
by 20"Tommi
Fóruð þið nokkuð á uppboð hjá tollinum um daginn ?

Maður nokkur keypti 12 lakk brúsa í kassa á 18.000.kr.og hann vissi ekki einu sinn litinn á þeim .

En þetta verð er orðið ansi hátt fyrir 1999 bíl.

Re: 540 á bílauppboð.is ???

PostPosted: Thu 14. Jan 2010 15:50
by Steini B
20"Tommi wrote:Fóruð þið nokkuð á uppboð hjá tollinum um daginn ?

Maður nokkur keypti 12 lakk brúsa í kassa á 18.000.kr.og hann vissi ekki einu sinn litinn á þeim .

En þetta verð er orðið ansi hátt fyrir 1999 bíl.

Spraybrúsa?

Re: 540 á bílauppboð.is ???

PostPosted: Thu 14. Jan 2010 18:21
by Vargur
Ég efast um að sá sem á hæsta boð í þennað bíl standi við tilboðið þegar sigurvíman yfir að hafa "unnið" uppboðið rennur af honum.

Re: 540 á bílauppboð.is ???

PostPosted: Thu 14. Jan 2010 20:18
by Zed III
853 þús

slatti