Page 1 of 2

Turbine felgur

PostPosted: Tue 27. Jan 2004 15:24
by Logi
Þar sem það er búin að skapast alveg ótrúlega mikil umræða um þessar umdeildu túrbínu-felgur, þá datt mér í hug að skella inn könnun. Ég er að sjálfsögðu að miða við það að felgurnar séu undir BMW M5 E34, ekki einhverjum öðrum bílum.

PostPosted: Tue 27. Jan 2004 16:05
by Kull
Betra að hafa myndir með.

Image

Image

PostPosted: Tue 27. Jan 2004 19:07
by Moni
Mér finnst þær MJÖG ekkifallegar!!! Sorry (þ.e.a.s. ef þú ert að fá þér svona felgur)

PostPosted: Tue 27. Jan 2004 19:17
by GK
ég er alveg að fíla þær:D mjög cool að mínu mati

PostPosted: Tue 27. Jan 2004 20:30
by bebecar
Það kemur mér bara rosalega á óvart hve margir fíla þetta! Gaman að þessu!

PostPosted: Tue 27. Jan 2004 20:33
by bjahja
Það sem fékk mig til að segja að þær væru flottar er hversu vle þær virka og sleeper effectið :twisted:

PostPosted: Tue 27. Jan 2004 20:35
by bebecar
Þú kannst semsagt að meta hönnunina á þessu...

Reyndar eitt í þessu, mér finnst þær koma mun betur út á ljósum bílum en dökkum.

PostPosted: Tue 27. Jan 2004 21:29
by Logi
Já vá hvað ég er ánægður með menn! Hélt að það væru ekki svona margir hérna sem fíla þetta :D

Það er einmitt sleeper factorinn sem er flottast við þær 8)

PostPosted: Tue 27. Jan 2004 23:25
by Jss
Mér finnst þær mjög smekklegar, alltaf gaman þegar "form follows function" = útlitið mótast af notkuninni (meira eða minna)

PostPosted: Fri 30. Jan 2004 10:38
by bebecar

PostPosted: Fri 30. Jan 2004 15:53
by Haffi
hmmmm .... mér finnst þetta bara TÖFF ;)

PostPosted: Fri 30. Jan 2004 16:23
by iar
Ég svaraði nú könnuninni að þær væru ljótar. Þetta er agalega ljótar felgur svona útlitslega séð. Það var jú það sem var verið að spyrja að ekki satt? ;-)

Sama hversu flott hönnun þetta er upp á kælingu og þessháttar og ekki hægt annað en að dást að því þá eru þetta bara mjög koppalegar felgur. Punktur! :-)

PostPosted: Fri 30. Jan 2004 16:38
by bebecar
En er það ekki bara hégómi að finnast þær ljótar bara vegna þess að þær líkjast koppum? :wink:

PostPosted: Fri 30. Jan 2004 18:26
by iar
bebecar wrote:En er það ekki bara hégómi að finnast þær ljótar bara vegna þess að þær líkjast koppum? :wink:


Afhverju er það hégómi? Þetta væru líka ljótir koppar. :-)

PostPosted: Fri 30. Jan 2004 23:21
by gstuning
IAR rétt hjá þér

I fyrsta lagi hvað er mikið function í þessum koppum(felgum) hvorteð er, eru þær eitthvað betri en M5 throwing star felgurnar sem blása lofti frá diskunum og út??