Page 1 of 2

Nú klæjar mig í enter puttann... M5 á Ebay...

PostPosted: Mon 09. Dec 2002 23:37
by saemi
http://cgi.ebay.de/ws/eBayISAPI.dll?Vie ... 55073&rd=1

Mig langar svo mig langar svo... hehehee ég er veikur.. ég veit það... Hjálp!

PostPosted: Mon 09. Dec 2002 23:40
by hlynurst
Þetta er sko alls ekki vitlaust... keyptu gripinn! :twisted:

PostPosted: Mon 09. Dec 2002 23:45
by Djofullinn
Þar sem ég er svo lélegur í þýsku verð ég að spyrja, afhverju er hann svona ódýr?

PostPosted: Mon 09. Dec 2002 23:50
by Kull
Góð spurning. Þegar menn bjóða upp bíla á Ebay án þess að setja reserve price þá er eitthvað skrýtið í gangi. Ég myndi allaveganna vilja skoða hann vel áður en ég myndi kaupa. Annars eiga verðin til að hækka ansi mikið á síðustu klukkutímunum á Ebay, hef tekið eftir því :)

PostPosted: Mon 09. Dec 2002 23:51
by gstuning
Oh my god, gerðu það fyrir mig komdu með þennan grip til landsins,

7000euro, humm það reiknast 600þús, komin inn fyrir millu ef þú keyrir hann, en kannski aðeins meir ef þú lætur senda hann og lendir í leiðinlegum tolla köllum,

PostPosted: Mon 09. Dec 2002 23:52
by hlynurst
Miða við það sem sagt er um bílinn þá virðist ekkert vera að nema c.a. sentimeters löng rispa við bensínlokið. Allt annað virðist vera í "perfect condition". Furðulegt. Enda ef einhver á pening og er tilbúinn í smá áhættu þá virðist þetta vera mjög gott, kannski of gott! :?

PostPosted: Mon 09. Dec 2002 23:55
by saemi
Ég giska nú á að þetta sé bara allt í lagi bíll. Þeir eru að fara niður í þetta á Mobile.de En reyndar líka meira.

Það er sett á hann 11.000 EUR

http://www.apa-automobile.de/

Hann fer ábyggilega á eitthvað svipað... ég giska á 8500-9500 EUR

Hrikalega freistandi ;) .... EN Too many Cars!

PostPosted: Tue 10. Dec 2002 00:14
by Djofullinn
saemi wrote:Hrikalega freistandi ;) .... EN Too many Cars!

Hehe gefðu mér bara sexuna þína :)

PostPosted: Tue 10. Dec 2002 00:28
by sh4rk
Maður væri til í þennan M5 en það er best að halda sig við það sem maður á núna.

Shark
BMW 735i E23
BMW 745i E23

PostPosted: Tue 10. Dec 2002 10:17
by Svezel
Taka þeir Euro og nýru :D

PostPosted: Tue 10. Dec 2002 14:11
by saemi
Djofullinn wrote:
saemi wrote:Hrikalega freistandi ;) .... EN Too many Cars!

Hehe gefðu mér bara sexuna þína :)



Ekkert mál.. Gefðu mér bara 1.200.000.- krónur... and I might ! ;)

PostPosted: Tue 10. Dec 2002 14:30
by Djofullinn
saemi wrote:
Djofullinn wrote:
saemi wrote:Hrikalega freistandi ;) .... EN Too many Cars!

Hehe gefðu mér bara sexuna þína :)



Ekkert mál.. Gefðu mér bara 1.200.000.- krónur... and I might ! ;)

Humm tekuru 520 og 525 uppí :)

PostPosted: Tue 10. Dec 2002 15:31
by íbbi
djöfull finnst mér nú flott þegar þasð er búið að samlita þá sona.. bíllin hjá RaggaM5? er með þeim flottari sem ég hef séð

PostPosted: Tue 10. Dec 2002 17:02
by Raggi M5
íbbi wrote:djöfull finnst mér nú flott þegar þasð er búið að samlita þá sona.. bíllin hjá RaggaM5? er með þeim flottari sem ég hef séð


Þakka þér fyrir það, og ég er nú alveg sammála þér því mér fynnst þetta miklu flottara. 'Eg þarf bara að láta dekkja afturljósin hjá mér, og henda dökku stefnuljósunum í að framan þá er þetta orðið helvíti gott :wink:

PostPosted: Wed 11. Dec 2002 02:27
by zx
Hversu mikið mál er að versla á ebay í þýskalandi og koma græju heim ? hef sjálfur verslað á ebay í ameríku, þar sem ég hafði ekki neina fyrri sögu um verslun og þar af leiðandi ekkert jákvætt response um trúverðugleika, þá þurfi ég að rigga símtölum og fara og hitta seljanda áður enn uppboði lauk svo boðið mitt væri tekið trúanlegt, var reyndar að bjóða í græju sem var stutt frá þar sem ég bjó í usa svo það var ekki stórmál fyrir mig að fara og hitta seljandann ! Reyndar fóru kaupin framhjá ebay að lokum, einnig þegar ég þurfti að selja bíl sem ég setti á ebay, þá lauk uppboði líka fyrir neðan reserve, en seldist til aðila sem hafði boðið og setti sig svo í samband við mig persónulega
kv, zx