Page 1 of 1

Vantar smá aðstoð

PostPosted: Mon 14. Dec 2009 10:15
by GunniSteins
Góðan daginn.

Jæja þá er eitthvað að hrjá bílinn hjá mér :evil:

Þetta s.s. lýsir sér þannig að ég var að keyra heim og er á bensínljósinu en þá drepur hann á sér [alveg eins og þegar hann verður bensínlaus] svo ég hleyp með hann restina heim.

Ég setti bensín á hann í gærkvöldi og prófa að starta og hann dettur í gang en gengur svo ekki nema í svona 3-5 sec og þá drepur hann á sér, svo að ég starta aftur og þá ríkur hann í gang svo að ég gef smá bensín þannig hann drepur strax á sér og tekur svo ekki við sér aftur eftir það.

Klukkan var orðin svo seint að ég ákvað að fara að sofa en núna þegar það var komið að því að fara í vinnuna kl hálf 8 í morgun þá gerist það sama hann ríkur í gang en gengur ekki lengi, svo ég skipti um kerti og þau eru alveg svartari en negrinn í næsta húsi af sóti.

Svo starta ég en alltaf það sama gerist svo ég spyr, hvað er að angra mig?

BTW þetta er bmw e23 1985

Re: Vantar smá aðstoð

PostPosted: Mon 14. Dec 2009 11:53
by 20"Tommi
Láttu hann ganga í 10 min ekki snerta bensingjöfina

Er innspýting ?

Re: Vantar smá aðstoð

PostPosted: Mon 14. Dec 2009 12:18
by GunniSteins
20"Tommi wrote:Láttu hann ganga í 10 min ekki snerta bensingjöfina

Er innspýting ?


Já það er innspýting á honum.

En hann getur ekki gengið í 10 min, því ef ég starta og snerti ekki gjöfina að þá gengur hann í 3 eða mestalagi 5 sek og þá drepur hann á sér.

Ég var að spá þarsem ég var svona bensíntæpur í gær, hvort það gæti hafið komist raki í bensínsíuna hjá mér eða e-ð álíka?
Því t.d. í frosti að ef ég keyri bílinn ekki með ísvara blandað í bensínið þá höktir hann eins og hann fái borgað fyrir það en lagast alveg 100% þegar ég er búinn að blanda við hann Ísvara

Re: Vantar smá aðstoð

PostPosted: Mon 14. Dec 2009 12:23
by Axel Jóhann
Bensíndælan er slöpp.

Re: Vantar smá aðstoð

PostPosted: Mon 14. Dec 2009 15:20
by Grétar G.
Axel Jóhann wrote:Bensíndælan er slöpp.


Mitt atkvæði fer á bensíndæluna líka

Re: Vantar smá aðstoð

PostPosted: Mon 14. Dec 2009 15:41
by GunniSteins
Ég athuga hana í kvöld :)

Re: Vantar smá aðstoð

PostPosted: Mon 14. Dec 2009 17:29
by crashed
loft á kerfinu og bensíndælann slöpp haltu bara áfram að starta honum og statu bensíngjöfina í botni þetta gemur í lag fljót þannig og sótið á kertunum er eðlilegt þvi hann er ekki að fá rétta blöndu af bensíni og lofti semsagt of lítið bensín :D þetta er algengt vandamál með svona gamla bíla E36 bíllinn hjá mér lét svona þegar ég varð bensínlaus á gömlu bensíndæluni

Re: Vantar smá aðstoð

PostPosted: Mon 14. Dec 2009 22:43
by JonHrafn
ATH bensínsíuna líka.

Re: Vantar smá aðstoð

PostPosted: Sun 20. Dec 2009 19:00
by BMW_Owner
skipta um afturhurð

Re: Vantar smá aðstoð

PostPosted: Wed 23. Dec 2009 00:04
by Tommi Camaro
setturu ekki meira en 5 lítra á hann ?,

Re: Vantar smá aðstoð

PostPosted: Sat 02. Jan 2010 15:38
by GunniSteins
Tommi Camaro wrote:setturu ekki meira en 5 lítra á hann ?,


Jú en ekki fyrr en daginn eftir, hann fór samt ekki í gang

Það var nú ekki búið af tanknum þótt hann hafi verið tæpur, en hann er kominn í gang núna

Re: Vantar smá aðstoð

PostPosted: Sat 02. Jan 2010 20:28
by 20"Tommi
crashed wrote:loft á kerfinu og bensíndælann slöpp haltu bara áfram að starta honum og statu bensíngjöfina í botni þetta gemur í lag fljót þannig og sótið á kertunum er eðlilegt þvi hann er ekki að fá rétta blöndu af bensíni og lofti semsagt of lítið bensín :D þetta er algengt vandamál með svona gamla bíla E36 bíllinn hjá mér lét svona þegar ég varð bensínlaus á gömlu bensíndæluni


þetta er málið ! þetta er það sem ég vildi meina .