bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Hvaða bimma byrjar maður á því að fá sér??
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=4143
Page 1 of 2

Author:  BMW_Driver [ Thu 22. Jan 2004 21:21 ]
Post subject:  Hvaða bimma byrjar maður á því að fá sér??

Hellú, ég var að spá:
Fæ bílpróf í haust og þá væri ekki slæmt að fá sér bimma. Er hægt að fá sér allveg ágætis bimma fyrir kannski 400.000 eða minna?

Er ekkert á leiðinni að kaupa kannski núna en það kemur að því eitthverntíman sept-okt og þá er gott að vita af öllu svona ;)

Author:  Haffi [ Thu 22. Jan 2004 21:26 ]
Post subject: 

flytjinn :)

Author:  Moni [ Thu 22. Jan 2004 21:27 ]
Post subject: 

Ja´já, þú færð ágætis 3 línu BMW E36 316 og 318...

Author:  bjahja [ Thu 22. Jan 2004 22:36 ]
Post subject: 

Ég held að það borgi sig ekki að flytja inn bíl fyrir þetta lítinn pening........nema þú finnir gott eintak af E30.
En þú getur fundið fína 6 cyl E30 fyrir þennan pening

Author:  arnib [ Fri 23. Jan 2004 16:46 ]
Post subject: 

Það er alveg rétt að það borgar sig ekki að flytja inn bíl
fyrir svona litla upphæð.

Ástæðan er einfaldlega sú að þegar um svona litla fjárhæð er
að ræða verður flutningskostnaðurinn svo ofboðslega stór partur
af dæminu. Síðan þegar tollur, vaskur og allt þetta skrafs hefur
verið dregið af er lítill peningur eftir fyrir sjálfum bílnum úti.

Fyrir 400 þúsund ættiru að geta fengið þér E36 316 eða 318 bíl,
og jafnvel ef þú ert heppinn 320i.

Ef þú ætlar útí E30 þá ættiru að geta, með svona fjármunum, fengið
nokkurnveginn hvaða bíl sem er. Mjög fáir E30 bílar fara uppí svona tölur, nema þeir séu eitthvað project sem búið er að spandera miklu í.

Fyrir bestu bensínnotkun myndi ég segja E36 316i/318i.
Fyrir mestu akstursskemmtun (kraftur... :)) myndi ég segja E30 325i,
Fyrir mestu þægindin (og þá meiri eyðslu :S) myndi ég segja E34 fimmu.

:)

Author:  BMW_Owner [ Wed 28. Jan 2004 12:22 ]
Post subject: 

ég sá fallega 7-Línu 735 minnir mig hann er bara með leðri og svona en hann var reyndar keyrður eitthvað um 200þús+- en það er alveg tilgangslaust að vera kaupa sér bíl sem eyðis miklu um leið og maður fær bílprófið því þegar bílprófið kemur þá stoppar maður ekki fyrir en svona eftir 19-20 ára:D og þá er eitthvað af aurum farið í tankinn.

kv.BMW_Owner :burn:

Author:  Svezel [ Wed 28. Jan 2004 12:23 ]
Post subject: 

Á skemmtilegum bíl þá sér maður ekki eftir bensíninu... :roll:

Author:  Jss [ Wed 28. Jan 2004 13:27 ]
Post subject: 

Svezel wrote:
Á skemmtilegum bíl þá sér maður ekki eftir bensíninu... :roll:


Heyr heyr! :clap: :clap:

Hef ekki séð eftir einum einasta dropa á minn. :D En hann eyðir heldur ekkert svo miklu. :D

Author:  bjahja [ Wed 28. Jan 2004 14:35 ]
Post subject: 

Jss wrote:
Svezel wrote:
Á skemmtilegum bíl þá sér maður ekki eftir bensíninu... :roll:


Heyr heyr! :clap: :clap:

Hef ekki séð eftir einum einasta dropa á minn. :D En hann eyðir heldur ekkert svo miklu. :D

Nei, ekki ég heldur. En ég er alveg handviss um að hann eyði minna ef ég fylli á hann, ég er svona 20 sinnum lengur að klára fullan tank heldur en hálf fullan ;)

Author:  Schulii [ Wed 28. Jan 2004 20:02 ]
Post subject: 

bjahja wrote:
Jss wrote:
Svezel wrote:
Á skemmtilegum bíl þá sér maður ekki eftir bensíninu... :roll:


Heyr heyr! :clap: :clap:

Hef ekki séð eftir einum einasta dropa á minn. :D En hann eyðir heldur ekkert svo miklu. :D

Nei, ekki ég heldur. En ég er alveg handviss um að hann eyði minna ef ég fylli á hann, ég er svona 20 sinnum lengur að klára fullan tank heldur en hálf fullan ;)


ég er svooooo sammála þér Bjarni.. mér finnst þetta vangefið en þegar ég kaupi bensín fyrir 1000 kall get ég alveg eins keyrt bara beint á næstu bensínstöð að taka bensín
en þegar ég fyll´ann þá dugar það tæpar tvær vikur.. :D

Author:  Raggi M5 [ Thu 29. Jan 2004 23:46 ]
Post subject: 

Gerðu bara einsog ég fyrsti Bimminn minn var bara 340hö M5 og ég var nýlega orðin 18 :wink: :D

Author:  Kull [ Fri 30. Jan 2004 00:06 ]
Post subject: 

340 hö? hóst hóst :P

Author:  oskard [ Fri 30. Jan 2004 00:09 ]
Post subject: 

Kull wrote:
340 hö? hóst hóst :P


word! ;)

Author:  Svezel [ Fri 30. Jan 2004 00:16 ]
Post subject: 

Í þessum klúbbi gilda aðeins dynomæld hestöfl :lol:

Author:  Jss [ Fri 30. Jan 2004 00:22 ]
Post subject: 

Svezel wrote:
Í þessum klúbbi gilda aðeins dynomæld hestöfl :lol:


En minn er 200 hestöfl +++++ ;)

Hann er sko með breyttu pústi og svona. ;)

Ég verð nú bara að játa það að minn er 193 original og síðan er búið að skipta um aftasta kút. (ég bara neyddist til að setja þetta komment inn)

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/