BMW kraftur - aukin umsvif #2..
Jæja félagar.
Ég (Sæmi) og Gunni Lorenz erum búnir að vera að spjalla svolítið saman og búnir að móta stefnu fyrir klúbbinn svona í bili.
Við ætlum að vinna að því að láta gefa út félagsskírteini fyrir meðlimi í klúbbnum, sem myndi þá verða til þess að við gætum fengið afslátt hjá B&L og fleirum. Ég fer á fund með kynningarstjóra B&L þann 11.12. að ræða þau mál.
Til að viðkomandi geti gerst félagi, þurfum við að fá eftirfarandi upplýsingar:
Fullt nafn, kennitala, sími, email og heimilisfang. Ásamt því viljum við að menn gefi lýsingu á BMW ökutæki sínu (ef þeir eiga slíkt). Sendið þessar upplýsingar á skraning@bmwkraftur.com . Þetta verður sett inn á sér hluta á vefnum, þar sem allir félagar verða listaðir upp ásamt lýsingu á bílnum og mynd. (Svo væri einnig góð hugmynd að hafa mynd af félögunum líka, svo maður þekki nú hvorn annan þegar maður mætir félaganum.. ekki bara bílnum
)
Það er verið að vinna að þessarri uppsetningu og þegar hún verður komin á hreint verður þetta sett upp í einum grænum. Þannig að það væri frábært ef þið félagar tækjuð ykkur til og settuð saman smá lista yfir bílana ykkar, hvað er búið að gera við þá, búnað osfrvs. Gunni er búinn að senda inn póst um þetta áður og þetta er bara svona til að ýta á eftir mönnum að senda upplýsingarnar til hans.
Þegar þetta verður svo tilbúið og menn hafa skráð þetta hjá okkur, fá þeir væntanlega útgefið félagsskírteini. Við stefnum að því að hafa þetta ókeypis í byrjun, færast ekki of mikið í fang í byrjun, en stefna svo að því að klúbburinn verði öflugri síðar þegar meiri reynsla er komin á þetta. Þá yrðum við jafnvel með árgjald og meðlimir í BMW Europa, sem sagt alvöru félagssamtök.
En svona í fyrstu ætlum við að einbeita okkur að því að betrumbæta vefinn, ásamt því að standa fyrir samkomum líkt og verið hefur.
Ásamt því að setja inn á vefinn okkar safn með upplýsingum um bíla meðlima, myndir og texta sem lýsa gripunum, munum við svo gera smá útlitsbreytingar á vefnum og endurskoðun á spjallflokkum (bæta við bilanadálki, sponsor-linkum ofl).
Varðandi samkomur, þá ætlum við að hafa grillpartí snemma á næsta ári til að byrja með. Húsnæðið er til staðar, bjórinn er ekkert að fara og við alltaf jafn hressir.
Með kveðju
Gunni og Sæmi