bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Innflutningur og niðurskrúfaðir bílar... https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=4106 |
Page 1 of 2 |
Author: | bebecar [ Wed 21. Jan 2004 09:36 ] |
Post subject: | Innflutningur og niðurskrúfaðir bílar... |
Ég var búin að svara hér á einhverjum söluþráðnum þar sem Bjarki og Jss voru að ræða þessi mál. Svarið var orðið svo langt og því datt me´r nú í hug að flytja þetta hingað. Þetta er mesta meinið á bílaflutningi til Íslands. Maður heyrir "sögur" af því að nánast allir innfluttir bílar séu skrúfaðir niður en við vitum auðvitað að svo er ekki. Maður ber traust til ákveðinna innflytjenda og ég hef séð bílana sem þú flytur inn t.d. og þeir líta bara út fyrir að vera eknir það sem þeir eru eknir! Einnig finnst mér ótrúlegt að menn taki hreinlega þessa áhættu fyrir kannski 100 þús km, hvað er það 300 þúsund kall í virði í mesta lagi en þú ert að brjóta af þér og ég veit ekki betur en að þetta sé refsivert. Svo er nú annað að menn taka mikla áhættu með þessu og rústa gjörsamlega orðspori sínu þegar þetta kemst upp. Einnig geta menn lent í því að hlaupa að ástæðulausu yfir mikilvæga skoðun og af því geta hlotist skemmdir. Það væri hægt að taka ýkt dæmi af BMW t.d. sem að á að fara í skipti á tímareim/keðju á 150 þús km fresti..., hann er skrúfaður niður um 100 þús, niður í 100 þús t.d. úr 200 þús. Það er því líklegt að nýji eigandinn fari 50 þús fram yfir skiptin. Ef að tjón verður af þeim völdum þá er seljandi auðvitað ábyrgur fyrir því sem og verður hann að bæta skaðann eða taka bílinn tilbaka (skemmdan)... Auðvitað er svo ennþá verra að geta fengið bók með bílnum þrátt fyrir allt, það er ennþá sterkari ásetningur og ekkert frábrugðið því t.d. að fela skemmdir á fasteignum í sölu og auðvitað er þetta ekkert annað en hreinn og beinn þjófnaður! Ég held því að menn hljóti að gera kröfu um annað tveggja, víðtæka ástandsskoðun, bók og ferilsskrá annarsvegar og hinsvegar verulegan afslátt líkt og um tjónabíl sé að ræða ef að engar eru upplýsingarnar. Auðvitað má svo meta önnur atriði, það er nú staðreynd að ekki hirða menn alltaf um bók þó svo bíllinn fái góða umhirðu, ég hef oft séð það t.d. á bílum sem eru talsvert mikið eknir en kannski samt bara einn eða tveir eigendur að bílnum. Það út af fyrir sig er nokkuð traustvekjandi þó bókina vanti og eins og áður sagði þá er auðvitað hægt að fá falsaða bók. Persónulega er ég ekkert voðalega smeykur við að kaupa vel viðgerðan tjónabíl t.d. eða mikið keyrðan bíl, en ég vil vita hvað ég er að kaupa og ég vil borga rétt verð en ekki uppsprengt verð vegna svika. Ég er viss um að engin hér vill kaupa niðurskrúfaðann bíl nema þá á því verði sem sanngjarnt er og afsláttur verulegur. Svo væri nú gaman að fá viðbrögð og svör og hvort einhverjir hafa lennt í þessu. Sjálfur hef ég ekki keypt niðurskrúfaðann bíl, en einu sinni keypt tjónabíl af Toyota umboðinu. Ég fékk afslátt fyrir vikið en sölumaðurinn laug að mér eiganda fjöldanum. Hann sagði að það væru tveir eigendur fyrir utan þá en svo þegar ég reyndi að setja bílinn uppí BMW 320i E36 hjá IH (1993 gerist þetta) þá kemur í ljós að það voru 12eigendur að þessum 3 ára gamla bílá undan mér!!! Ég fór beint niður í Toyota og skilaði bílnum (var búin að eiga hann í tvö ár!!!) og þeir gátu ekkert annað gert en að taka við honum. Þetta var reyndar mjög góður bíll og klikkaði aldrei en verðið sem ég keypti hann á var ekki í samræmi við þá voru sem ég var að kaupa... |
Author: | saemi [ Wed 21. Jan 2004 10:03 ] |
Post subject: | |
Góð grein. Það er svolítið rætt um þetta þessa dagana. Ég er alveg sammála þessu sem þú ert að segja Ingvar. Ég er ekkert hræddur sjálfur við að kaupa bíl sem er ekinn 250.000 km, en þá vil ég líka vita hvað er búið að gera við hann og hafa bók með honum. En það virðist vera að almenningur kaupi ekki bíl ef hann er kominn mikið yfir 100.000 km (sem ég held að endurspegli hvernig landinn fer með bílana sína). Þess vegna er svo mikið um að innfluttir notaðir bílar eru skrúfaðir niður. Þetta eru fínir bílar, en fólk bara kaupir þá ekki því það er svo hrætt við þennan akstur! Innflytjandinn tekur þá þessa góðu viðhaldsbók, stimplaða af BMW umboði óaðfinnanlega og HENDIR HENNI skrúfar svo bílinn niður um 50-100.000 km og allir ánægðir. Pffffhhhhhh, pirrandi. |
Author: | bebecar [ Wed 21. Jan 2004 10:10 ] |
Post subject: | |
Þeta er náttúrulega mjög tvíbent!!! Í fyrsta lagi er nú bara heimskulegt að henda bók og skrúfa niður vegna þess að þá hefur þú ekki séns á aselja dellugaurunum sem er sennilega alveg sama með aksturinn ef bíllinn er góður - ég myndi t.d. telja að bók sé meira virði en 100 þúsund í kílómetrum. Bókin skráir alla ævi bílsins en 100 þús kílómetrar er kannski bara 2-3 ára notkun á bíl... |
Author: | saemi [ Wed 21. Jan 2004 10:13 ] |
Post subject: | |
Þetta er hundalógík, ég fer ekki ofan af því. En svona er fólk. Það vill frekar bíl sem stendur 97.000 km á mælinum, þó svo að það sé ekki bók með honum, heldur en bíl sem stendur 186.000 km og óaðfinnanleg þjónustubók með ![]() |
Author: | bebecar [ Wed 21. Jan 2004 10:17 ] |
Post subject: | |
Jújú - það er alveg hárrétt. En ég held samt að menn séu aðeins að gleyma því að þorri þess fólks sem kaupir bíla eftir þessum formerkjum er að kaupa McFries bíla (Toyota o.s.frv.) en ekki dýrari Benz og BMW. Þannig að ávinningurinn er kannski ekki eins mikill og ætla mætti og bottom line er eftirfarandi; viltu taka hættu á að missa þitt orðspor, fá sektir og lenda á skilorði fyrir það eitt að spara þér 300 þúsund kall í ásettu verði eða jafnvel minna!!! |
Author: | flamatron [ Wed 21. Jan 2004 10:33 ] |
Post subject: | |
bebecar wrote: er að kaupa McFries bíla (Toyota o.s.frv.)
![]() ![]() |
Author: | Svezel [ Wed 21. Jan 2004 10:42 ] |
Post subject: | |
Þetta er mjög góð grein hjá þér og margir góðir punktar. Það er bara staðreynd eins og þið segið að Íslendingar vilja almennt ekki kaupa bíla keyrða meir en 100þús svo tíðkast. Ég hef sjálfur keypt bíl sem var keyrður svona í meira lagi og það var mjög góður bíll í alla staði ef frá er talið að ég lenti akkúrat á slithlutatímanum. Ég held samt að ég myndi ekki setja fyrir mig töluverðan akstur fyrir góðan bíl með góða sögu ef og þegar ég flyt/læt flytja inn bíl. |
Author: | bebecar [ Wed 21. Jan 2004 10:48 ] |
Post subject: | |
Ég hef líka keyrt mikið af vel hirtum bílum á bilinu 200-300 þúsund og það er ENGIN munur á þeim og bílum sem eru eknir t.a.m 120 þúsund... Líta alveg jafn vel út, vinna alveg jafn vel og keyra alveg jafn vel... Ég keyrði nú einu sinni 1994 E200 ekinn 470 þúsund og hann var bara eins og nýr, nema það var reyndar komið stórt gat á bílstjórasætið og stýrið var orðið ansi lasið! |
Author: | Leikmaður [ Wed 21. Jan 2004 10:52 ] |
Post subject: | |
...Já drengir, ég er alveg sammála þessu, þetta er náttúrulega alveg fáránlegt og á ekki að líðast... En engu að síður þá er vinur minn úti í Þýskalandi í þessum rituðu orðum og búinn að vera síðan í október. Hann er að leita sér að E36 325 með blæju!! Og mun koma með hann heim.... Þar sem að hann er búinn að vera úti í nokkurn tíma þá hefur hann kynnst mikið af fólki og er alltaf verið að vara hann við að kaupa bíla af bílasölum, heldur að reyna að finna bíl í gegnum eigandann, sem sagt ekki í gegnum bílasölu. Því það er víst alþekkt þarna úti að bílasalarnir séu ansi duglegir við að skrúfa niður.....og eins og við vitum þá er MINNSTA mál að skrúfa þessar elskur niður ef réttu græjurnar eru við hendina ![]() ![]() Þannig að það eru ekki bara þessir smákrimmar hérna heima sem að gera þetta, heldur líka þeir sem að við ,,treystum" úti... P.S. Þá hélt ég að þetta niðurskrúfu mál væri hálfgerðar sögusagnir og mjög ýktar......þangað til að ég keypti sjálfur M.Benz hérna heima sem að var niðurskrúfaður!! Ég hef flutt inn tvo Bimma sjálfur og hélt að það væri ekki séns að ég myndi gera mistök í bílaviðskiptum, lét meira segja gaurana niður í ræsi (einn af þeim mjög góður vinur pabba) fara í gegnum bílinn.....ALGJÖRLEGA!! Og´þeir sögðu að bíllinn væri í topp ásigkomulagi og þætti þeim mjög ótrúlegt að hann gæti verið skrúfaður niður!! Þegar ég kaupi bílinn þá var hann ,,ekinn" 86 þús, í ljós kom að hann var ekinn 80 þús meira........Taka skal fram að það fylgdi ekki með honum þjónustubók.....en síðan fann ég upprunalegu bókina undir varadekkinu tveimur mánuðum eftir kaup.......FÁRÁNLEGT |
Author: | bebecar [ Wed 21. Jan 2004 11:01 ] |
Post subject: | |
LOL þvílíkt klúður að skilja upprunalegu bókina eftir undir varadekkinu! En hvernig lyktaði þessu máli? Krafðist þú endurgreiðslu af seljanda? |
Author: | Leikmaður [ Wed 21. Jan 2004 11:29 ] |
Post subject: | |
neibbz... Málið var þannig að ég kaupi hann af bílasölu hérna´uppi á höfða, en bíllinn var í eigu sparisjóðs HFJ (minnir það, allaveganna einhver banki í hfj)!! Gæjinn sem að átti bílinn hafði líklegast verið í einhverju peningarugli og bankinn eignaðist bílinn.... En allaveganna þá brá mér heldur betur í brún þegar að ég sé helvítis þjónustubókina í skottinu. Þá fór ég einmitt að spá í hvað ég ætti að gera í málinu, en það hefði verið mjög erfitt að gera eitthvað vesen út í bankann útaf þessu og líklegast hefðu þeir voða lítið getað gert og bara bent á hvorn annan.... ...Þannig að ég átti bílinn bara eitthvað áfram (virkilega góður bíll) og seldi hann svo seinna. Reyndar mjög illa gert af mér, ég seldi bara bílinn og þagði við kaupandann, sagði bara að það væri engin þjónustubók með bílnum...Ég fékk bílinn á MJÖG góðu verði þegar ég kaupi bílinn og jújú að sjálfsögðu fannst mér skítalykt af honum, en bíllinn engu að síður í góðu lagi.... ...Þannig að ég seldi bílinn á Mjög góðru verði aftur og gæjinn sáttur, hann fór meira að segja á því verði sem að hann hefði getað selst á ekinn 100 þús meira....... |
Author: | fart [ Wed 21. Jan 2004 12:23 ] |
Post subject: | |
Kaninn er alveg með þetta. Ef þú hefur VIN númer bílsins (17 stafir) þá getur þú fengið ítarlega ferilskrá / tjónatékk /lemontékk o.s.frv. á netinu fyrir 14 bucks.. t.s. www.carfax.com. Þar er eigendaferill skráður ásamt kílómetrafjölda við hver skipti eða þegar lán er sett á hann. En ef það er einn eigandi og bíll er ekinn óeðlilega lítið, þá er náttúrulega ekkert hægt að gera við því. Þá sést ekki að bíllinn sé skrúfaður niður. En óvenju lítið ekinn bíll með lélegum sætum, sléttu stýri, eða slitnum teppum vekur alltaf grunsemdir. Svo er annað í þessu, menn hérna heima hafa nú verið duglegir í því að taka hraðamælirinn úr sambandi og keyra svo bílana sína heilu og hálfu árin ![]() ![]() |
Author: | Bjarki [ Wed 21. Jan 2004 13:05 ] |
Post subject: | |
Held það geti verið mjög erfitt að sanna að bíll sé skrúfaður niður þetta er örugglega í flestum tilfellum 3. aðili erlendis sem skrúfar bílinn niður með þartilgerðum tölvubúnaði sem tengist í socketið í vélarúminu og skilur engin ummerki eftir sig. Þá er þjónustubókin örugglega alltaf látin hverfa. Það náðist ekki að sanna það þegar íslenskur bílainnflytjandi ((Einar) Jóhann Stefánsson) bjó til reikninga sjálfur fyrir þeim bílum sem hann flutti inn! Hann var ekki sakfelldur fyrir það atriði ákærunnar. Sat þó inni. Held að tímareim sé 50þús km partur en keðjuna þarf sjaldnast að skipta um. Það er viðmiðunarregla ef keyptur er bíll með tímareim og ekki vitað hvenær var skipt um hana seinast að skipta um hana. Í Þýskalandi er allt hægt eins og í mörgum öðrum löndum ef viljinn er fyrir hendi! Það er fullt af t.d. Tyrkjum sem eru með bílasölur og kaupa bíla af fólki og "hressa" aðeins upp á þá og selja svo aftur á hærra verði. Hef séð bíl á bílasölu á ákveðnu verði og svo fundið hann á autoscout25.de, bíllinn var 40% dýrari hjá bílasalanum! Samt hafði aksturinn ekkert lækkað í því tilfelli. Það er best að kaupa bíla af einstaklingum og þá Þjóðverjum. Í Þýskalandi er nánast alltaf tekið fram hvort bílar séu tjónabílar eða ekki og það hefur alltaf staðist hjá mér að bílar séu tjónlausir. Staðfesting fæst eftir lakkþykktarmælingu. Mér finnst eins og 200þús km múrinn sé eitthvað sem fólk óttast mjög mikið í BMW a.m.k. mikil sálfræði á bak við þetta! Það er nánast vonlaust að finna 10ára bíl eða eldri með þjónustubók frá upphafi frá BMW. Það er einfalt reiknidæmi að menn fara ekki með bíl sem kostar 4000EURO í skoðun árlega sem kostar kannski 800EURO a.m.k. ekki langflestir Þjóðverjar. En það sem skiptir máli er að upprunulega þjónustubókin fylgi bílnum kannski upp í 100-140þús og aksturinn eftir það geti staðist m.v. árlegan akstur. Hægt er að bera saman búsetu fyrri eiganda, og hvar bíllinn hefur verið þjónustaður, ekki trúverðugt ef bíllinn er þjónustaður 700km frá heimili eiganda. Oft fylgja gögn frá öðrum aðilum t.d. AutoTeiliUnger eða PitStop sem sýna að bíllinn hafi verið smurður. Einnig eru menn sem kaupa oft notaða bíla fljótir að sjá það út ef eitthvað er ekki eins og það á að vera. Maður fer alltaf með bíla út á hraðbraut í reynsluakstri og tekur vel á þeim. Þjóðverjar eru margir þannig að ef komið er að því að kaupa ný dekk, smyrja og laga bremsur þá selja þeir frekar bílinn og kaupa nýjan. Það eru alltaf einhverjir sem eru tilbúnir til þess að gera sig ómerkilega fyrir peninga. Maður verður alltaf að fara verlega. Fullt til að bílabröskurum með sparsl í annari og sparslspaðann í hinni! |
Author: | bebecar [ Wed 21. Jan 2004 13:18 ] |
Post subject: | |
Með sparsl í annarri og sparslspaðann í hinni ![]() Jújú svona er þett anú og allt hægt. Ég held nú reyndar einmitt að sjaldnast séu bílar skrúfaðir niður hérna heima heldur nánast alltaf erlendis. Og svo finnst mér nú ekki bókin skipta öllu máli en hún hjálpar vissulega til og skiptir miklu máli og auðvitað er mjög gott að hafa söguna sem lengst. Það er fullkomlega eðlilegt að menn þjónusti bíl ekki stíft þegar þjónustan kostar fjórðung af verði bílsins. En bottom line er þetta; ávinningurinn af þessu er ekki það mikill að menn eigi að vera að standa í þessu. Svo þarf heldur ekkert að dæma menn til þess að þeir geti tapað orðsporinu eins og flestir vita. Þetta er hin mesta synd, en menn verða líklega að sætta sig við það að þetta er eins og hvað annað brask sem hægt er að græða pening á eins og með fasteignir og hlutabréf. |
Author: | Leikmaður [ Wed 21. Jan 2004 13:41 ] |
Post subject: | |
...jammz sammála!! En menn verða hafa það í huga að eins og þjóðverjar hugs (fáránlega vel um hlutina), þá er nánast ALLTAF sema ð góð þjónustubók sem á að vera með bílnum að utan.....annað er eitthvað skrítið!! Því þeir hugsa MARGFALT betur um bílana en við klakamennirnir, samt sem áður höldum við þjónustubók ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |