Ég var búin að svara hér á einhverjum söluþráðnum þar sem Bjarki og Jss voru að ræða þessi mál. Svarið var orðið svo langt og því datt me´r nú í hug að flytja þetta hingað.
Þetta er mesta meinið á bílaflutningi til Íslands. Maður heyrir "sögur" af því að nánast allir innfluttir bílar séu skrúfaðir niður en við vitum auðvitað að svo er ekki.
Maður ber traust til ákveðinna innflytjenda og ég hef séð bílana sem þú flytur inn t.d. og þeir líta bara út fyrir að vera eknir það sem þeir eru eknir!
Einnig finnst mér ótrúlegt að menn taki hreinlega þessa áhættu fyrir kannski 100 þús km, hvað er það 300 þúsund kall í virði í mesta lagi en þú ert að brjóta af þér og ég veit ekki betur en að þetta sé refsivert.
Svo er nú annað að menn taka mikla áhættu með þessu og rústa gjörsamlega orðspori sínu þegar þetta kemst upp. Einnig geta menn lent í því að hlaupa að ástæðulausu yfir mikilvæga skoðun og af því geta hlotist skemmdir. Það væri hægt að taka ýkt dæmi af BMW t.d. sem að á að fara í skipti á tímareim/keðju á 150 þús km fresti..., hann er skrúfaður niður um 100 þús, niður í 100 þús t.d. úr 200 þús. Það er því líklegt að nýji eigandinn fari 50 þús fram yfir skiptin. Ef að tjón verður af þeim völdum þá er seljandi auðvitað ábyrgur fyrir því sem og verður hann að bæta skaðann eða taka bílinn tilbaka (skemmdan)...
Auðvitað er svo ennþá verra að geta fengið bók með bílnum þrátt fyrir allt, það er ennþá sterkari ásetningur og ekkert frábrugðið því t.d. að fela skemmdir á fasteignum í sölu og auðvitað er þetta ekkert annað en hreinn og beinn þjófnaður!
Ég held því að menn hljóti að gera kröfu um annað tveggja, víðtæka ástandsskoðun, bók og ferilsskrá annarsvegar og hinsvegar verulegan afslátt líkt og um tjónabíl sé að ræða ef að engar eru upplýsingarnar.
Auðvitað má svo meta önnur atriði, það er nú staðreynd að ekki hirða menn alltaf um bók þó svo bíllinn fái góða umhirðu, ég hef oft séð það t.d. á bílum sem eru talsvert mikið eknir en kannski samt bara einn eða tveir eigendur að bílnum. Það út af fyrir sig er nokkuð traustvekjandi þó bókina vanti og eins og áður sagði þá er auðvitað hægt að fá falsaða bók.
Persónulega er ég ekkert voðalega smeykur við að kaupa vel viðgerðan tjónabíl t.d. eða mikið keyrðan bíl, en ég vil vita hvað ég er að kaupa og ég vil borga rétt verð en ekki uppsprengt verð vegna svika. Ég er viss um að engin hér vill kaupa niðurskrúfaðann bíl nema þá á því verði sem sanngjarnt er og afsláttur verulegur.
Svo væri nú gaman að fá viðbrögð og svör og hvort einhverjir hafa lennt í þessu.
Sjálfur hef ég ekki keypt niðurskrúfaðann bíl, en einu sinni keypt tjónabíl af Toyota umboðinu. Ég fékk afslátt fyrir vikið en sölumaðurinn laug að mér eiganda fjöldanum. Hann sagði að það væru tveir eigendur fyrir utan þá en svo þegar ég reyndi að setja bílinn uppí BMW 320i E36 hjá IH (1993 gerist þetta) þá kemur í ljós að það voru 12eigendur að þessum 3 ára gamla bílá undan mér!!! Ég fór beint niður í Toyota og skilaði bílnum (var búin að eiga hann í tvö ár!!!) og þeir gátu ekkert annað gert en að taka við honum. Þetta var reyndar mjög góður bíll og klikkaði aldrei en verðið sem ég keypti hann á var ekki í samræmi við þá voru sem ég var að kaupa...

