Page 1 of 1

Nýr BMW þristur og M3 GTS

PostPosted: Fri 06. Nov 2009 00:14
by Nökkvi
Í netútgáfu Auto Motor und Sport voru að birtast myndir af næstu kynslóð af þristi sem gert er ráð fyrir að komi á markað 2012. Nýjung verður 340i sem verður 326 hö og 6 strokka. Einnig er planað að koma með hybrid útgáfu.
Hér er ein tölvugerð mynd:
Image
Og svo nokkrar hérna til viðbótar þar sem bíllinn er í felubúningnum:
http://www.auto-motor-und-sport.de/news/erlkoenig-bmw-3er-erwischt-das-ist-der-neue-bmw-3er-1450456.html

Einnig var verið að kynna nýjan M3 GTS. Þetta er brautarbíll sem má þó skrá til almennrar notkunar. Ýmislegt er gert til að létta hann t.d. er pústkerfið úr títan, sérstkalega létt efni notuð í miðjustokk og hurðaspjöld, engin aftursæti og minni hljóðeinangrun. Bíllinn á að vigta 1.490 kg. Í bílnum er 4,4l V8 sem er 450 hö. Lippið að framan er stillanlegt svo og spoilerinn að aftan en hann kemur úr World Touring Car Championship keppninni (sem E30 M3 var upphaflega smíðaður fyrir). Gripurinn á að kosta 115 þús EUR. Aukalega er svo hægt að panta ýmislegt sem getur komið sér vel á brautinni eins og veltibúr.
Image
Fleiri myndir:
http://www.auto-motor-und-sport.de/news/bmw-m3-gts-m3-rennsportversion-fuer-die-strasse-1450434.html?item=0

Re: Nýr BMW þristur og M3 GTS

PostPosted: Fri 06. Nov 2009 00:19
by rockstone
UGLY - http://img2.auto-motor-und-sport.de/BMW ... 234978.jpg

En þessu appelsínuguli m3 er 8) 8) 8)

Re: Nýr BMW þristur og M3 GTS

PostPosted: Fri 06. Nov 2009 00:22
by SteiniDJ
Frekar töff, nýi þristurinn. Hugsaði C-Class Benz fyrst samt, en á að sjálfsögðu eftir að sjá betri myndir.

Re: Nýr BMW þristur og M3 GTS

PostPosted: Fri 06. Nov 2009 09:37
by GunniT
er ekki alveg að fíla húddið á nýja þristinum :?

Re: Nýr BMW þristur og M3 GTS

PostPosted: Fri 06. Nov 2009 12:45
by JoeJoe
340i :o

Re: Nýr BMW þristur og M3 GTS

PostPosted: Fri 06. Nov 2009 20:58
by Papa.V
GunniT wrote:er ekki alveg að fíla húddið á nýja þristinum :?


x2

en appelsínuguli er illa svalur!

Re: Nýr BMW þristur og M3 GTS

PostPosted: Sun 08. Nov 2009 02:50
by HAMAR

Re: Nýr BMW þristur og M3 GTS

PostPosted: Sun 08. Nov 2009 09:21
by Hlynzi
Ekki batnar hann.

Virðist vera að hallast í áttina að C-class Merc.