Hér er ein tölvugerð mynd:

Og svo nokkrar hérna til viðbótar þar sem bíllinn er í felubúningnum:
http://www.auto-motor-und-sport.de/news/erlkoenig-bmw-3er-erwischt-das-ist-der-neue-bmw-3er-1450456.html
Einnig var verið að kynna nýjan M3 GTS. Þetta er brautarbíll sem má þó skrá til almennrar notkunar. Ýmislegt er gert til að létta hann t.d. er pústkerfið úr títan, sérstkalega létt efni notuð í miðjustokk og hurðaspjöld, engin aftursæti og minni hljóðeinangrun. Bíllinn á að vigta 1.490 kg. Í bílnum er 4,4l V8 sem er 450 hö. Lippið að framan er stillanlegt svo og spoilerinn að aftan en hann kemur úr World Touring Car Championship keppninni (sem E30 M3 var upphaflega smíðaður fyrir). Gripurinn á að kosta 115 þús EUR. Aukalega er svo hægt að panta ýmislegt sem getur komið sér vel á brautinni eins og veltibúr.

Fleiri myndir:
http://www.auto-motor-und-sport.de/news/bmw-m3-gts-m3-rennsportversion-fuer-die-strasse-1450434.html?item=0










