Page 1 of 1

330DX Touring

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 13:42
by JOGA
Þá er kallinn kominn heim á skerið og byrjaður að leita að næsta bíl. Er hugsanlega að fara að flytja út á land þar sem að fjórhjóladrif kemur sér afar vel og datt því niður á 330dx Touring sem mig langar í. Ætlaði fyrst að kaupa eitthvað ódýrt en bara finn ekki neitt á skikkanlegum prís sem hentar mér.

Getið þið sagt mér eitthvað um þetta. Þessi er 02/2001 og er víst með gömlu vélinni (184hö). Er það ekki ágæt vél?

Hér er bíllinn:
http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1

Einhver sem þekkir til þessa bíls kannski eða hefur reynslu af svona bíl.

Þætti líka gaman ef þið segðuð ykkar skoðun á verðlagningu svona bíls.

Re: 330DX Touring

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 13:46
by Aron Andrew
Þekki þessa bíla ekki neitt en þetta finnst mér vera díll sem er vert að skoða
viewtopic.php?f=10&t=30047

Re: 330DX Touring

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 13:49
by JOGA
Aron Andrew wrote:Þekki þessa bíla ekki neitt en þetta finnst mér vera díll sem er vert að skoða
viewtopic.php?f=10&t=30047


Já ég sá þennan. Finnst hann mjög spennandi en því miður þá þurfum við Touring vegna margra ástæðna. Held líka að dísel kæmi sér betur fyrir okkur að þessu sinni. En hann er augljóslega ofarlega á blaði ef að þetta breytist eitthvað.

Re: 330DX Touring

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 13:53
by Saxi
Það er allavega svona vél í X5 hjá foreldrunum. Ekin eitthvað um 220 þúsund og verið alveg til friðs (7-9-13). Nánast eingöngu langkeyrsla. Skemmtilegar vélar.

Re: 330DX Touring

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 14:49
by jens
Þekki ekki bílinn en mjög flottur af myndum og þú á touring aftur er alveg málið :)

Re: 330DX Touring

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 14:52
by Leikmaður
Pabbi átti þennan bíl í um árabil (tók hann upp í jeppa sem hann átti). Hann ætlaði sér ekki að eiga hann neitt, en endaði svo á að vera á honum í u.þ.b. ár. Bíllinn var mjög þéttur og góður í þann tíma og eyddi ekki miklu + þá virkar helvítis X-ið alveg fáránlega vel, það var gaman að vera á honum í snjónum.

Pabbi endaði svo á að setja hann upp í annan jeppa sem þá var í eigu Heklu. Hekla setti bílinn í söluskoðun, en fann ekki nokkuð teljandi að bílnum. En ég veit að sá sem keypti bílinn svo af Heklu eyddi einhverjum pening í viðhald/skipti á slithlutum í hjólabúnaði - eðlilegt viðhald m.v. keyrslu.

Re: 330DX Touring

PostPosted: Wed 04. Nov 2009 15:02
by dabbiso0
Mæli með þessari vél allavega. Þrátt fyrir að þetta sé aflminni týpan. Þá er alveg meiriháttar tog í þessu, og hvað þá í svona litlum bíl!

Re: 330DX Touring

PostPosted: Thu 05. Nov 2009 10:03
by bjornod
Sæll,

Þetta eru topp bílar. Hjólabúnaðurinn að framan útheimtir svolítið viðhald og allt er dýrara í þessa bíla heldur en venjulega 320D. Stærri bremsur, öðruvísi spyrnur ofl. Fjórhjóladrifið og skriðvarnirnar eru að svínvirka.

Þó hann sé lítill, þá er hægt að koma ótrúlega miklum farangri í þessa bíla. Persónulega finnst mér hann mun sportlegri en Fimma. Þær eru mun stærri og þunglamalegri.

Hann eyðir í meðaleyðslu 11.5 L/100 (meiri hluti innanbæjar) en dettur niður í 7.5-8L á langkeyrslu.

Aflið er fínt og togið gott.

Varðandi verðið, þá eru 1.5-2.0 M bara sanngjarnt.

P.s ef þú ætlar að strauja malarvegi, þá mæli ég með minni felgum og belgmeiri dekkjum. Tók mig dágóðan tíma að komast að sundlauginni í Þjórsárdal. Þetta er jú enginn Subarú!!

Re: 330DX Touring

PostPosted: Thu 12. Nov 2009 20:11
by JOGA
Jæja, skoðaði þennan loksins í dag. Var erfitt að ná á eiganda.
Var ekki jafn góður og ég var að vonast eftir.

Orðinn svolítið sjúskaður og keyrður orðinn 178þús.

Ekkert yfirstíganlegt en missti áhugann.

Fínt að keyra þetta samt.


Held að ég sé lenda á því að kaupa mér eitthvað Sjúbarú dót bara ( :aww: ) og eiga þá efni á BMW spari bíl flótlega :thup:

Re: 330DX Touring

PostPosted: Thu 12. Nov 2009 22:25
by gardara
Sat í 330ix touring um daginn... Kom mér á óvart hvað það var gourmet bíll 8)