Sæl veriði
Ég er að spá í að kaupa beinskiptan '87 325i með blæju sem mér líst ágætlega á, en er þó svolítið hræddur við mögulegt viðhald. Mig langaði því að leita ráða hjá ykkur reynsluboltum til að athuga hvað þarf sérstaklega að varast þegar um svona eldri kagga er að ræða.
Nokkrir punktar:
+ Verð er ca 200þús
+ Hann lekur talsvert af olíu, eigandi segist setja tæplega lítra á hann á ca 1500 km fresti
+ Eigandinn bætir á gírkassaolíu á ca 3 mánaða fresti
+ Kúplingin virkar fín, ég fann amk ekki fyrir miklu snuði
Ég tók ekki eftir hvítum eða bláum reyk úr pústinu, en hvað haldiði með olíulekann, er þetta ekki eitthvað til að hafa áhyggjur af?
kv,
Svenni


