Page 1 of 1

Alphand vinnur aðra sérleiðina á þremur dögum "á BMW X5

PostPosted: Thu 15. Jan 2004 22:00
by bebecar
Frakkinn Luc Alphand, fyrrverandi heimsmeistari í bruni á skíðum, varð hlutskarpastur á 14. sérleið Dakarrallsins í dag. Þetta er annar sérleiðarsigur hans á þremur dögum en hann keppir á BMW-bíl.
Alphand ók hina 548 km sérleið milli Ayoun El Atrous og Tidjikja í Máritaníu á 6:51,07 klukkustundum. Annar varð Skotinn Colin McRae rúmum 14 mínútum á eftir á Nissanbíl en hann freistaði þess að vinna annan daginn í röð.

Alphand og McRae tókust á um forystu í rallinu í dag. „Ég sá McRae framundan í sandöldunum og hugsaði með mér: „ég ætla að reyna að koma honum á óvart og taka fram úr. Það gerði ég en ég held ég hafi vakið gremju hjá honum í stað aðdáunar því hann tók fram úr mér aftur síðar. Í markinu sagði hann við mig: ég hélt þú værir skíðamaður," sagði Alphand um slaginn við McRae.



Tekið af http://www.mbl.is

PostPosted: Thu 15. Jan 2004 22:26
by Svezel
Ha komst McRae í mark án þess að setja bílinn í döðlur :lol:

Way to go BMW!

PostPosted: Fri 16. Jan 2004 09:05
by Jss
Hef einmitt verið að fylgjast með þessu og hæstánægður með það hvernig okkar menn eru að standa sig. :D