Eyðslutölur í evrópu
Ég er núna búinn að keyra nokkur þúsund kílómetra á BMW-inum mínum hér í frakklandi. Ég verð að segja að ég er ekkert smá sáttur við eyðsluna, alveg magnað eiginlega. Þegar ég sótti bílinn keyrði ég 1200km frá Rotterdam og til Grenoble og bíllinn eyddi rétt undir 8 á hundraði og ég var að halda 140km/klst. "Innanbæjar" þ.e. þegar ég keyri í skólann og heim (sem eru 20 km aðra leið) þá er bíllinn að eyða að meðaltali 10 á hundraði. Ég verð bara að segja húrra fyrir 323 vélinni, alveg eðal. Eyðir litlu og er fínn kraftur. 
