Ég vaknaði í morgun og ætlaði í gymið fyrir vinnu. Röllti út í skúr og á leiðinni heyrði ég svona hissing hljóð og skildi ekki hvaðan þetta var að koma.
Opnaði skúrinn og sá að það hafði sprungið garðslanga út af þrýsting og vatn sprautaðist út um gatið. Ekki kannski stórmál fyrir utan að hurðin á z3 var opinn og vatn í nánast upp að hurðastaf bílstjóramegin.
Ég sleppti því að fara í gymmið og í staðinn þurfti ég að fara að ausa úr bílnum eins og lekum bát.

Náði megninu með ausu, svamp og þerraði svo slatta meira með handklæðum.
Task fyrir kvöldið: sækja vatnssugu til að ná meiri bleytu úr teppinu og svo verður ráðist á að taka það úr til að þerra það.
Áhugaverð byrjun á deginum, svo ekki sé meira sagt.
