bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Hvernig vetrardekk ert þú með ?
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=3982
Page 1 of 2

Author:  Gunni [ Mon 12. Jan 2004 19:00 ]
Post subject:  Hvernig vetrardekk ert þú með ?

Langaði aðeins að sjá hvernig vetrardekk menn eru með undir bílunum sínum. Það kom upp umræða í byrjun vetrar um þetta, en það skiptir ekki máli.

Endilega merkiði við í könnuninni og segiði hvernig dekk þið eruð með Tegund/gerð og stærð, negld/ónegld.

Ég byrja bara;

Ég keypti mér BFGoodridge Winter 2 dekk í stærðinni 205/65/15, ÓNEGLD. Þetta eru geðveik dekk, grípa alveg massíft og heyrist nánast ekkert í þeim. Gangurinn kostaði mig heilar 34.600 kr undir komið með öllu!

Author:  Alpina [ Mon 12. Jan 2004 19:15 ]
Post subject: 

Það var rétt þetta Gunni........
Taka ónegld
Það hefði ég gert líka í þínum sporum,,margfalt notalegri í akstri og ekki þessi leiðinda hvinur :wink: :wink:

Sv.H

Author:  Bjarki [ Mon 12. Jan 2004 19:27 ]
Post subject: 

Ég er á ónegldum dekkjum sem voru undir bílnum þegar ég keypti hann þetta er Hankook dekk. Þetta er allra seinasti veturinn sem eftir er í þessum dekkjum. Nota þau í sumar og kaupi svo eitthvað ónegld og gott. Maður verður að fara varlega á þessum dekkjum þau eru svo léleg er með dekkjahreinsi í skottinu. Maður hugsar um það þegar færðin er erfið hverstu gott það væri að vera með læst drif!

Author:  srr [ Mon 12. Jan 2004 19:37 ]
Post subject: 

Ég er með nelgd dekk undir báðum bílunum mínum. Taka það fram að ég bý á Akureyri, þeirri yndislegu vetrarparadís......
Annar gangurinn er Hankook 175/70 R13 og hinn sóluð frá Gúmmívinnustofunni 185/65 R14. Hefur gefið massívt grip handa mér hér í öllu ógeðinu.

Author:  Svezel [ Mon 12. Jan 2004 19:42 ]
Post subject: 

Ónegld 215/40 16 Toyo SnowProx, grípa fínt í snjó en alveg svakalegu á auðu

Author:  Elli Valur [ Mon 12. Jan 2004 19:49 ]
Post subject: 

óneld hankook 205/70 R14 og virka fint en þarf að setja neld undir núna ér á leyðini á mívatn þori eiginlega ekki að fara óneldur þangað

Author:  bebecar [ Mon 12. Jan 2004 20:00 ]
Post subject: 

Ég er í annað skiptið á æfinni á nelgdum. Í fyrsta skiptið sem ég vel það sjálfur.

Ég keyri bílinn frekar lítið en það hafa komið upp aðstæður nokkrum sinnum þar sem ég held hreinlega að ég hefði ekki komist á ónelgdum. Ef ég hefði læsingu þá væri það annað mál.

ÉG keyrði M5 bílinn alltaf á ónelgdum.

Author:  Logi [ Mon 12. Jan 2004 20:13 ]
Post subject: 

Ég er nú bara á 17" Dunlop SP Sport 9000 sumardekkjunum mínum. Og nota bílinn ekki nema færð leyfi....

Author:  bjahja [ Mon 12. Jan 2004 20:15 ]
Post subject: 

Ævinni ;)
En ég er ekki á vetrardekkjum :oops: bara 235/45 17 BFgoodrich Profiler-G sumardekkjum :? En ég tek það fram að ég keyri bílinn bara ef það er EKKERT frost, snjór, hálka eða slabb. Þannig að ég er mest brunandi um á toyotunni hennar mömmu :twisted:

Author:  grettir [ Mon 12. Jan 2004 20:16 ]
Post subject:  Re: Hvernig vetrardekk ert þú með ?

Gunni wrote:
Ég keypti mér BFGoodridge Winter 2 dekk í stærðinni 205/65/15, ÓNEGLD. Þetta eru geðveik dekk, grípa alveg massíft og heyrist nánast ekkert í þeim. Gangurinn kostaði mig heilar 34.600 kr undir komið með öllu!


Ég er með sömu týpu, breidd 195. Þau eru reyndar negld, en það var bara af því mig vantaði felgur líka og fékk pakkann með engum fyrirvara ( þegar það varð ófært ). Alltaf á síðustu stundu hann ég :D

En þetta eru svaka dekk. Verst með naglahávaðann, ég er að keyra á nöglum í fyrsta skipti í 7 ár. Var búinn að gleyma hvað það er mikill hávaði í þessu. Spurning um að plokka þetta úr eitthvað kvöldið.

Author:  bimmer [ Mon 12. Jan 2004 20:19 ]
Post subject: 

Keypti undir minn Cooper 215/60 R16, negld.

Virka fínt so far.

Hins vegar er skelfing að sjá bílinn miðað við sumarganginn,
245/45 R18 Michelin Pilot Sport á M5 felgum :)

Author:  Jss [ Mon 12. Jan 2004 20:23 ]
Post subject: 

bjahja wrote:
Ævinni ;)
En ég er ekki á vetrardekkjum :oops: bara 235/45 17 BFgoodrich Profiler-G sumardekkjum :? En ég tek það fram að ég keyri bílinn bara ef það er EKKERT frost, snjór, hálka eða slabb. Þannig að ég er mest brunandi um á toyotunni hennar mömmu :twisted:


BFGoodrich Profiler-G dekkin eru líka mjöög hörð og grípa varla neitt í snjó.

En ég er á Michelin Pilot Alpin (ónegld) í stærðinni 225/45 17" og þau alveg þrælvirka. :D En gangurinn kostar reyndar sitt, 99.000 kr. í heildsölu. :?

En veit að þau eiga eftir að duga vel og lengi. :D

Author:  Haffi [ Mon 12. Jan 2004 20:52 ]
Post subject: 

Ég er á HARÐNEGLDUM DEKKJUM <<<<<<<<<<<<<<< Og er með keðjur í skottinu :)

Author:  Kristjan [ Mon 12. Jan 2004 21:02 ]
Post subject: 

Ég er á Bridgestone Blizzak, ætlaði að vera voðalega mikill enviromentalist en sé örlítið eftir því, búinn að brenna mig á því að keyra þessi dekk á þurru malbiki. Það kom hret í sept og síðan þvílíka blíðan, ég hefði betur beðið smá með að kaupa þessi dekk.


Ég var á 50 km hraða og bremsuvegalengdin mældist 20 metrar!

Author:  Jss [ Mon 12. Jan 2004 22:08 ]
Post subject: 

Kristjan wrote:
Ég er á Bridgestone Blizzak, ætlaði að vera voðalega mikill enviromentalist en sé örlítið eftir því, búinn að brenna mig á því að keyra þessi dekk á þurru malbiki. Það kom hret í sept og síðan þvílíka blíðan, ég hefði betur beðið smá með að kaupa þessi dekk.


Ég var á 50 km hraða og bremsuvegalengdin mældist 20 metrar!


Það er ekkert þannig vandamál með Michelin dekkin, allavega ekki svo ég viti. :D Þau grípa mjög vel á þurru malbiki. :D

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/