Page 1 of 1

Svartir listar á E34

PostPosted: Sun 11. Jan 2004 22:31
by Jón Ragnar
Hvar fæ ég svollis lista? shadowline 8)

PostPosted: Mon 12. Jan 2004 01:06
by Benzer
Þú getur auðvita látið sprauta þá :)

Það er allavega ein tillaga :wink:

PostPosted: Mon 12. Jan 2004 08:58
by bebecar
Ef þeir eru sprautaðir þá flagnar þetta allt af á NO TIME!

Það er best að athuga með þetta hjá umboðinu. Ef það er of dýrt eða ekki til þar þá er verkstæði hér í bænum sem að afkrómar nýja bíla og það heitir Tengsli.

Þetta er hinsvegar ekki ódýrt því þetta er gífurlegt vandaverk og mjög vandlega gert.

Í þetta er notuð filma (eins og í myndavélar) og límd á mjög kyrfilega og vandlega. Ég veit um forstjóra hér í bæ sem lætur gera þetta við alla sína bíla (eftir að fyrirtækið hætti að versla við B&L (ekkert Shadowline í boði nema þar)) og þetta er óaðfinnanlega gert og ekki séns að ná þessu af! Semsagt, steinkast hefur ekkert í þetta að segja og aðferðin er jafn örugg og aðferð framleiðandans.

PostPosted: Mon 12. Jan 2004 20:01
by Djofullinn
Þú færð þetta hjá www.bmwspecialisten.dk

Pr. sæt (i alt 12 dele)
Pris kr. 2.395,- € 317,2
Excl. moms

Kannski ódýrara að láta gera þetta hjá Tengsli...

PostPosted: Sun 25. Jan 2004 18:48
by Jón Ragnar
hmm takk bebecar, var ekki búinn að kíkja á þetta

PostPosted: Sun 25. Jan 2004 21:23
by Bjarki
Bara vangavelta!
Af hverju ætti viðloðunin að verða það léleg að svarti liturinn flagni af? Ef maður tekur alla listana af og vandar vel til verka í undirvinnunni og notar svo eitthvað gott hálfmatt lakk. Ég hef sprautað svart plast á stuðara sem upprunalega var svart ósprautað en var orðið mjög þreytt eftir 13 ár. Árangurinn var mjög góður bara hreinsa allt mjög vel með réttu efnunum sprauta svo plastgrunni yfir, svo fylligrunni og svo lit.
Hef sjálfur oft hugsað um svona shadowline breytingu og séð þennan pakka hjá Specialisten. Man að ég ætlaði að athuga með þetta á þýskri partasölu en svo varð ekkert af því þegar ég seldi bílinn minn (730iA)

PostPosted: Sun 25. Jan 2004 21:30
by Jón Ragnar
held að það gæti bara orðið drullutöff á bimmanum, var svo að spá í að setja á hann V8 nýru :)

PostPosted: Sun 25. Jan 2004 21:34
by Bjarki
Jón Ragnar wrote:held að það gæti bara orðið drullutöff á bimmanum, var svo að spá í að setja á hann V8 nýru :)


Felgur, shadowline uppfærsla, v-8 nýru/húdd myndi fullkomna fallegan bíl :P

Verst með nýrun að maður þarf að skipta út húddinu.....

PostPosted: Sun 25. Jan 2004 21:50
by Jón Ragnar
er það ? crap!

PostPosted: Mon 26. Jan 2004 01:31
by arnib
Auðvitað er það rétt að svart lakk flagnar af listunum ef að maður tekur sig til og sprautar beint yfir krómið.

Ég tel að aðferðin hans Bjarka sé skotheld, þ.e.a.s. góð undirvinna, plastgrunnur og þetta.

PostPosted: Mon 26. Jan 2004 21:55
by Schulii
Jón Ragnar wrote:er það ? crap!


jamm.. línurnar á húddinu skerast inní nýrun. Þ.e.a.s þar sem nýrun enda. Það á mikinn þátt í að setja þennan sterka svip sem breið nýru gera.. svo er annað mál hvort mönnum finnst það flottara...

ég vona að ég eigi ekki von á því að það fari að flagna hjá mér nýrun. Hann kom til landsins með krómnýrum en Dinan lét sprauta þau svört