Page 1 of 2

Ebay bremsudiskar í bmw

PostPosted: Tue 25. Aug 2009 22:19
by Aron M5
Þar sem ég er búinn að vera bíða soldið lengi eftir Bremsudiskum hjá TB og ekki virðast þeir vera á leiðinni
og eg er ekki að tíma kaupa þá í B&L þar sem þeir kosta 93 þus en 38 þus i TB

þá var ég að spá hvort einhver hafi reynslu af svona Ebay bremsudiskum

eins og þessi

http://cgi.ebay.com/ebaymotors/BMW-545i ... 06.c0.m245

á ég að gleyma því að pæla í þessu eða er þetta ok :?

Re: Ebay bremsudiskar í bmw

PostPosted: Tue 25. Aug 2009 22:25
by Einarsss
myndi hætta á þetta frekar

http://cgi.ebay.com/ebaymotors/BMW-Genu ... .m20.l1116

gott feed back og segir að þetta eigi að vera oem diskar

Re: Ebay bremsudiskar í bmw

PostPosted: Tue 25. Aug 2009 22:40
by Aron M5
já þetta lítur aðeins betur út

Takk væni

Re: Ebay bremsudiskar í bmw

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 02:52
by BlitZ3r
ATH Þetta er aðeins 1 diskur !!!! stendur þarna :D

Re: Ebay bremsudiskar í bmw

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 05:09
by maxel
Ekki heldur kaupa boraða diska.

Re: Ebay bremsudiskar í bmw

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 08:09
by SteiniDJ
Stilling eru með eitthvað af BMW diskum, ertu búinn að tala við þá?

Re: Ebay bremsudiskar í bmw

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 10:35
by IvanAnders
Talaðu við AB varahluti!!

Re: Ebay bremsudiskar í bmw

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 13:29
by Aron M5
BlitZ3r wrote:ATH Þetta er aðeins 1 diskur !!!! stendur þarna :D


já ég tók eftir því :) endar soldið dyrt komið heim

en eg var ekki buinn að profa tala við AB og Stillingu bjalla á þá á eftir :)

Re: Ebay bremsudiskar í bmw

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 15:24
by Maddi..
Annars skilst mér að TB sending sé farin af stað, kannski diskarnir þínir séu þar?
Keypti mína diska annars hjá Stillingu.

Re: Ebay bremsudiskar í bmw

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 15:26
by Aron M5
AB varahlutir virðast vera búnir að redda þessu 8)

17 þus kall stykkið

Re: Ebay bremsudiskar í bmw

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 18:29
by Axel Jóhann
AB varahlutir eru með mega úrval í nánast alla bíla. :thup: OG ÓDÝRIR.

Re: Ebay bremsudiskar í bmw

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 18:49
by Stefan325i
Aron, Poulsen eru líka með bremsuvörur og hef séð mjög góð verð hjá þeim.

S:5305900

Re: Ebay bremsudiskar í bmw

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 19:43
by Jónas Helgi
Keypti mér boraða&rákaða diska hjá AB, 36.000Kr.- að framan og sama að aftan, nokkuð ánægður með það.
Svo á maður eftir að reynslu aka þessi kvikindi :) virðast vera pottþéttir þegar maður skoðar þetta nánar (National-auto)

Re: Ebay bremsudiskar í bmw

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 20:28
by Aron M5
ég náði í diskana áðan 35.970 kvarta ekki yfir því :o

svo bara vona að þetta passi,lenti í því að diskarnir sem eg keypti hjá TB voru gallaðir og þurfti að láta renna mína og það dugði svona líka vel

Re: Ebay bremsudiskar í bmw

PostPosted: Thu 27. Aug 2009 00:46
by IvanAnders
Snillingar í AB 8)