bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW 530D E39 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=39381 |
Page 1 of 1 |
Author: | Leikmaður [ Tue 25. Aug 2009 13:56 ] |
Post subject: | BMW 530D E39 |
Heilir og sælir. Ég hef augastað á BMW 530D E39 beinskiptum - hrikalega gaman að keyra þetta. Ég hef aldrei átt diesel bíl áður - er e-ð annað og sérstakt sem maður þarf að varast varðandi þessa bíla? Hann er ekinn heldur mikið eða 204 þús. (ætlaði mér aldrei að eignast bíl yfir 200 þús), en það er alls ekki að finna í akstri. Kv. JKH |
Author: | Axel Jóhann [ Tue 25. Aug 2009 19:23 ] |
Post subject: | Re: BMW 530D E39 |
Ég myndi helst horfa eftir því hvort það sé búið að skipta um turbínu og láta jafnvel umboðið eða Eðalbíla yfirfara hann. Þetta er það sem ég veit, ég vona það gagnist þér eitthvað. Enn það er alveg rétt hjá þér, þetta eru þrususkemmtilegir bílar, nóg afl og skemmtilegt að hafa þetta beinskipt. Eyðir líka mjög litlu. ![]() |
Author: | thisman [ Tue 25. Aug 2009 20:45 ] |
Post subject: | Re: BMW 530D E39 |
Tek undir með að athuga hvort búið er að skipta um eða fara eitthvað í túrbínuna - ef ekki þá kýla verðið þeim meira niður. Einnig alveg möst að hann hafi farið í Inspection I og II á réttum tíma. Ekkert að því að kaupa bíl sem er mikið ekinn en það er óþolandi mikið af BMW þarna úti sem hafa bara alls ekki fengið eðlilegt viðhald. Þetta er líka rétti tíminn til að vera picky og sætta sig ekki við eitthvað rugl. Síðan er bara málið að fara alltaf með bíla í söluskoðun, það bara maaaargborgar sig ef maður er ekki þeim sleipari sjálfur þegar kemur að stálinu. |
Author: | dabbiso0 [ Tue 25. Aug 2009 22:01 ] |
Post subject: | Re: BMW 530D E39 |
Túrbínuskipti eru mega dýr. Túrbínan á það til að endast í 100þ. til 150þ.+. Besta leiðin til að láta hana endast er að leyfa túrbínunni alltaf að kólna eftir góða keyrslu áður en að þú drepur á. Og að skipta um olíuöndun yfir í e60 öndunina. Minn er einmitt nýkominn í 205þúsund. Og þetta er bara algert yndi. Persónulega myndi ég frekar vilja bílinn sjálfskiptann. Togið í vélinni er svo mega skemmtilegt. Maður getur sprautast áfram án þess að láta hana snúa sig of mikið. |
Author: | Schulii [ Tue 25. Aug 2009 22:11 ] |
Post subject: | Re: BMW 530D E39 |
Bestu bílar heims. |
Author: | IvanAnders [ Wed 26. Aug 2009 10:34 ] |
Post subject: | Re: BMW 530D E39 |
Iss piss, kaupa þér 530i Skilja d-ið eftir á ljósum, vera með hljóðlátari bíl, vera kominn með heita miðstöð eftir 3 mínútur en ekki 15 mínútur, og þarft aldrei að hafa áhyggjur af túrbínu eða spíssum ![]() |
Author: | Svezel [ Wed 26. Aug 2009 10:47 ] |
Post subject: | Re: BMW 530D E39 |
Mér finnst reyndar alveg glatað að hafa þessa bíla bsk, gerir nákvæmlega ekkert fyrir þessa vél og gerir endursölu bara erfiðari. Annars eru þetta hörku góðir bílar ef þeir eru nýrri en 2000 (193hö), þræl vinna og nota eldsneytið almennilega. Myndi ekki láta sjá mig á bensín E39 nema 540 eða M5 eftir að hafa prófað diesel. Skoðaðu þjónustubókina bara vel og fáðu einhvern færan til að skoða bílinn með þér, það er dýrt að kaupa köttinn í sekknum. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |