Page 1 of 1

Á leið inn í skúr

PostPosted: Mon 24. Aug 2009 20:53
by JoeJoe
Jæja nú er fákurinn að fara í vetrardvala og verður ekkert hreyfður yfir veturinn. Þetta er hinnsvegar fyrsta skiptið sem ég er að fara geyma bíl í sona langan tíma, eru þið með einhver tips um hvernig ég ætti að ganga frá honum? Það fyrsta sem ég ætla að gera er allavega taka geyminn úr sambandi og setja "segl" yfir hann. Eitthvað meira sem ég ætti að hafa í huga?

Re: Á leið inn í skúr

PostPosted: Mon 24. Aug 2009 21:08
by IceDev
Skella honum á búkka til að hindra flat spots á dekkjum

Re: Á leið inn í skúr

PostPosted: Mon 24. Aug 2009 21:14
by ömmudriver
IceDev wrote:Skella honum á búkka til að hindra flat spots á dekkjum


Og tekur álagið af hjólalegunum og fjöðruninni.


Setja ísvara í bensíntankinn og fylla hann af bensíni.

Skipta um olíu og síu á mótor.

Re: Á leið inn í skúr

PostPosted: Mon 24. Aug 2009 21:29
by Lindemann
fer eftir húsnæðinu sem þú ert með, ef þú ert með hann í upphituðum skúr myndi ég ekki setja segl yfir hann en allt í lagi að nota einhverja ábreiðu sem andar. Hafðu svo smá rifu á allavega einum glugga.

svo er bara að skipta um allar olíur sem eru gamlar, skipta svo um á mótor áður en þú ferð að nota hann aftur.

dekk skemmast við að bíllinn standi í hjólin í svona langan tíma, þannig ef hann er á dýrum dekkjum skaltu annaðhvort láta hann bara standa á búkkum eða setja einhverjar tuðrur undir hann

Re: Á leið inn í skúr

PostPosted: Mon 24. Aug 2009 21:42
by Einsii
Lindemann wrote:fer eftir húsnæðinu sem þú ert með, ef þú ert með hann í upphituðum skúr myndi ég ekki setja segl yfir hann en allt í lagi að nota einhverja ábreiðu sem andar. Hafðu svo smá rifu á allavega einum glugga.

svo er bara að skipta um allar olíur sem eru gamlar, skipta svo um á mótor áður en þú ferð að nota hann aftur.

dekk skemmast við að bíllinn standi í hjólin í svona langan tíma, þannig ef hann er á dýrum dekkjum skaltu annaðhvort láta hann bara standa á búkkum eða setja einhverjar tuðrur undir hann

Skipta áður, svo allt ógeðið sem er í gömlu olíuni komi sér ekki bara betur fyrir inní mótornum.
Það var mér allavega kent. Þá er hann líka klár í rúnt strax og plöturnar koma á :)