Page 1 of 7

BMW + Citroen/Peugeot

PostPosted: Wed 05. Aug 2009 04:42
by maxel
http://mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2009 ... r_hja_bmw/
Þýski bílaframleiðandinn BMW hagnaðist um 121 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi, sem er langt umfram það sem búist hafði verið við. Almennt höfðu sérfræðingar búist við aðsjá tap upp á um 25 milljónir evra á tímabilinu. Til samanburðar þá er þetta 76% minna en 507 milljóna evra hagnaður framleiðandans á sama tíma í fyrra.

BMW tapaði um 152 milljónum evra á fyrsta fjórðungi þessa árs.

Fram kemur að tekist hafi að mæta minnkandi sölu með því að lækka kostnað á móti.

Bílaframleiðandinn er í viðræðum við franska bílaframleiðandann PSA, sem framleiðir m.a. Citroen og Peugeot.

Re: BMW + Citroen/Peugeot

PostPosted: Wed 05. Aug 2009 11:36
by Bjöggi
það er þá vonandi bara að þeir nái að hífa citroen og peugeot á hærri stall, þetta hafa verið hálfgerðar niðurlægingarbifreiðar undanfarin ár.

Re: BMW + Citroen/Peugeot

PostPosted: Wed 05. Aug 2009 11:52
by Kristjan
Hvaða vitleysa, Citroén framleiða fallega og ágæta bíla. Svolítið stelpulegir oft á tíðum en ég væri alveg til í að eiga til dæmis Citroén C4 Picasso undir fjölskylduna.

Re: BMW + Citroen/Peugeot

PostPosted: Wed 05. Aug 2009 12:20
by Steini B
Kristjan wrote:Hvaða vitleysa, Citroén framleiða fallega og ágæta bíla. Svolítið stelpulegir oft á tíðum en ég væri alveg til í að eiga til dæmis Citroén C4 Picasso undir fjölskylduna.

:rofl:


Þetta er klárlega versti bíllinn sem ég hef keirt sem kemur frá Citroen...
Maður td. dettur út um framrúðuna í hvert skipti sem hann skiptir um gír :lol:

Venjulegur C4 er miklu skárri...

Re: BMW + Citroen/Peugeot

PostPosted: Wed 05. Aug 2009 14:17
by Kristjan
Hvað meinarðu dettur útúr framrúðunni?

Re: BMW + Citroen/Peugeot

PostPosted: Wed 05. Aug 2009 15:22
by siggik1
ssk í picasso er rusl, keyrði svona á spáni, þetta er svakalegt að finna þetta skipta

Re: BMW + Citroen/Peugeot

PostPosted: Wed 05. Aug 2009 16:19
by Einsii
siggik1 wrote:ssk í picasso er rusl, keyrði svona á spáni, þetta er svakalegt að finna þetta skipta

Bsk kassinn í Vinnu bílnum (Citroen Berlingo) er ótrúlega ræfilslegur og eiginlega bara óþæginlegur.
Citroen má samt eiga það að þetta eru mjúkir og þægilegir bílar fyrir þá sem það vilja.

Re: BMW + Citroen/Peugeot

PostPosted: Wed 05. Aug 2009 16:29
by totihs
Einsii wrote:
siggik1 wrote:ssk í picasso er rusl, keyrði svona á spáni, þetta er svakalegt að finna þetta skipta

Bsk kassinn í Vinnu bílnum (Citroen Berlingo) er ótrúlega ræfilslegur og eiginlega bara óþæginlegur.
Citroen má samt eiga það að þetta eru mjúkir og þægilegir bílar fyrir þá sem það vilja.



Ég er líka með eitt stk svona berlingo. Ekkert smá næs bíll af sendibíl að vera,, fyrir utan helvítis kassan,, sem er algjört drasl.

Re: BMW + Citroen/Peugeot

PostPosted: Wed 05. Aug 2009 18:35
by Axel Jóhann
totihs wrote:
Einsii wrote:
siggik1 wrote:ssk í picasso er rusl, keyrði svona á spáni, þetta er svakalegt að finna þetta skipta

Bsk kassinn í Vinnu bílnum (Citroen Berlingo) er ótrúlega ræfilslegur og eiginlega bara óþæginlegur.
Citroen má samt eiga það að þetta eru mjúkir og þægilegir bílar fyrir þá sem það vilja.



Ég er líka með eitt stk svona berlingo. Ekkert smá næs bíll af sendibíl að vera,, fyrir utan helvítis kassan,, sem er algjört drasl.




Já sammála, var að vinna smá tíma á svona og það eru bara leiðinlegir kassar í þessu en gott að keyra og ekkert steingeldir.

Re: BMW + Citroen/Peugeot

PostPosted: Sun 09. Aug 2009 17:44
by sindrib
hvað er þetta puggarnir eru nú ágætis bílar, þeir eru að reyna að fraleiða bíla sem eiga að endast, ég veit t.d um tvo 406 pugga sem eru komnir yfir 300 þús km og eru í góðu yfirlæti,,

Re: BMW + Citroen/Peugeot

PostPosted: Mon 10. Aug 2009 11:43
by gunnar
Vá, einhvern veginn finnst mér eins og Peugoet og ending ekki eiga heima saman í einni setningu :lol:

Þeir frönsku bílar sem ég hef umgengist hafa einmitt skitið feitt í buxurnar þegar bíllinn er runninn úr ábyrgð og endalaust af litlum fylgikvillum sem geta verið ansi dýrir.

Neita því samt ekki að það er mjög þægilegt að keyra þessa frönsku bíla iðulega.

Re: BMW + Citroen/Peugeot

PostPosted: Mon 10. Aug 2009 12:19
by ValliFudd
Ég átti í smá tíma Renault Megane, hann var 3-4 ára gamall þegar ég átti hann, fór eina ferð til Akureyrar, eftir þá ferð fékk hann að standa á sölu þar til hann seldist :lol:

Frekar labba ég.. Ég þurfti nokkru sinnum á leiðinni að gíra niður í annan gír upp brekkur.
Þetta var 1,4 bsk, yaris 1,0 er mun kraftmeiri en það fjós :lol:

Re: BMW + Citroen/Peugeot

PostPosted: Thu 13. Aug 2009 22:17
by sindrib
renoult eru lika skíta bílar,, að mínu mati eru peugeot einu frönsku bílarnir sem eitthvað er varið í..

Re: BMW + Citroen/Peugeot

PostPosted: Fri 14. Aug 2009 16:38
by Jónki 320i ´84
sindrib wrote:renoult eru lika skíta bílar,, að mínu mati eru peugeot einu frönsku bílarnir sem eitthvað er varið í..



Ekki vera með svona vitleysu, Renault er það eina vitræna sem hefur komið frá Frakklandi, já og Peugeot 205 GTI.

Re: BMW + Citroen/Peugeot

PostPosted: Fri 14. Aug 2009 16:44
by SteiniDJ
Jónki 320i ´84 wrote:
sindrib wrote:renoult eru lika skíta bílar,, að mínu mati eru peugeot einu frönsku bílarnir sem eitthvað er varið í..



Ekki vera með svona vitleysu, Renault er það eina vitræna sem hefur komið frá Frakklandi, já og Peugeot 205 GTI.


Tæknilega séð er Bugatti Automobiles franskt.