bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Búið að opna 900M GO-KART braut á Korputorgi https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=38937 |
Page 1 of 4 |
Author: | kd [ Sat 01. Aug 2009 20:35 ] |
Post subject: | Búið að opna 900M GO-KART braut á Korputorgi |
Opið alla helgina til klukkan 22.00! http://www.gokart.is Brautin Við höfum opnað glæsilega GO-KART braut á bílaplaninu við Korputorg. Þetta er sú allra stærsta GO-KART braut sem hefur verið sett upp hér á landi. 900 m löng, allt að 12 m breið og situr á rúmlega 3.500 fm svæði. Þetta er engin smá smíði, um 1.500 dekk hafa farið í að byggja hana og rúmlega 3 km af öryggisborðum. Það eru 17 begjur af öllum stærðum og gerðum í þessari braut og má segja að hún taki annsi vel í eftir 10 mín akstur. Bílarnir Bílarnir sem við bjóðum upp á eru hágæða Dino Lesure körtur, en þær eru frá þekktasta GO-KART bíla framleiðanda heims. Dino er Bentley-inn í GO-KART heiminum. Þeir eru keyrðir áfram af aflmiklum og áreiðanlegum HONDA GX 200 mótorum. Sem skila 6.5 hö eða 200cc. Hámarkshraði bílanna getur verið allt að 80 km hraði, en brautin sem við hönnuðum við Korputorg hefur margar begjur og er þar af leiðandi ekki háhraða braut. Hámarkshraði á brautinni við Korputorg er um 50 km hraði á 2 köflum brautarinnar. Verð við höfum þetta einfalt og engar hækkanir hjá okkur, sama gamla verðið og er búið að tíðkast í gokart síðustu 6 árin, þrátt fyrir gífurlegar hækkanir á rekstrarkostnaði. 5 mín – 2.900 Kr 10 mín – 3.900 Kr Lítið Race – 6.900 Kr (væntanlegt) Stórt Race – 9.900 Kr(væntanlegt) Opnunartímar Go-kart Brautarinnar Mán. – Föst. Opi ð. 15.00 – 21.00 Laugardag. Opið. 11.00 – 22.00 Sunnudag. Opið. 14.00 – 22.00 Staðsetning Korputorg Blikastaðavegur 2-8 112 Rvk Hafa samband S:771-2221 Gokart@gokart.is fyrir bókanir bokanir@gokart.is http://www.gokart.is |
Author: | gstuning [ Sat 01. Aug 2009 21:48 ] |
Post subject: | Re: Búið að opna 900M GO-KART braut á Korputorgi |
Afsláttur fyrir meðlimi kraftsins? Annars þarf að færa þetta í flóamarkað samkvæmt reglunum. |
Author: | Kristjan [ Sun 02. Aug 2009 12:02 ] |
Post subject: | Re: Búið að opna 900M GO-KART braut á Korputorgi |
Kraftsmót? Fá góðan díl fyrir meðlimi? |
Author: | Alpina [ Sun 02. Aug 2009 14:05 ] |
Post subject: | Re: Búið að opna 900M GO-KART braut á Korputorgi |
Lofar góðu ![]() |
Author: | Danni [ Mon 03. Aug 2009 08:20 ] |
Post subject: | Re: Búið að opna 900M GO-KART braut á Korputorgi |
ÉG ÞANGAÐ! Á þriðjudaginn þegar ég klára hringferðina. Langt síðan ég hef farið í gókart, var einmitt að hugsa um daginn hvað mig langaði mikið í gókart.... |
Author: | Alpina [ Tue 04. Aug 2009 19:33 ] |
Post subject: | Re: Búið að opna 900M GO-KART braut á Korputorgi |
Eru fleiri búnir að fara ?? |
Author: | Joker [ Tue 04. Aug 2009 19:41 ] |
Post subject: | Re: Búið að opna 900M GO-KART braut á Korputorgi |
maður þarf að kíkja á þetta |
Author: | Aron Fridrik [ Tue 04. Aug 2009 20:12 ] |
Post subject: | Re: Búið að opna 900M GO-KART braut á Korputorgi |
mættum á áðan.. náunginn sem var að vinna þarna sagði að hann næði ekki í yfirmann sinn og gat ekki opnað.. svo hringdum við aðeins seinna og þá ákváðu þeir bara að hafa lokað í dag ![]() ![]() ![]() |
Author: | Roark85 [ Sat 08. Aug 2009 20:34 ] |
Post subject: | Re: Búið að opna 900M GO-KART braut á Korputorgi |
Kannski er það útaf því að það opnaði ekki formlega fyrr en í gær (föstudaginn 7ágúst) Ég er búin að fara þarna nokkrum sinnum og djöfull er þetta skemtileg braut,endalust af beygjum og brautin er nokkuð breið og góð og lítið mál að taka frammúr og svona;) reynir vel á hverju góður ökumaður þú ert! |
Author: | Aron M5 [ Sat 08. Aug 2009 21:15 ] |
Post subject: | Re: Búið að opna 900M GO-KART braut á Korputorgi |
Myndir!!!!! |
Author: | Grétar G. [ Sat 08. Aug 2009 21:24 ] |
Post subject: | Re: Búið að opna 900M GO-KART braut á Korputorgi |
Afhverju er ekki búið að færa þetta úr almennum umræðum... Tengist BMW ekki á nokkurn hátt. |
Author: | birkire [ Sat 08. Aug 2009 21:33 ] |
Post subject: | Re: Búið að opna 900M GO-KART braut á Korputorgi |
Grétar G. wrote: Afhverju er ekki búið að færa þetta úr almennum umræðum... Tengist BMW ekki á nokkurn hátt. SATT, nú get ég ekki sofið á nóttinni !!! ![]() |
Author: | kd [ Thu 13. Aug 2009 03:15 ] |
Post subject: | Re: Búið að opna 900M GO-KART braut á Korputorgi |
Strákar mínir. Auðvitað tengist þetta bmw. Við setjum upp bmw krafts reis. Tökum fullt race. upphitun. tímataka og svo race Fullt verð Er 6.900 kr að fara í lítið race og 9.900 kr að fara í stórt. Við ættlum að gera race fyrir krafts meðlimi, sem verður kynnt síðar í þessari viku. En það hljómar mjög kræsilega. Og gæti verið jafnvel ein sú skemmtilegasta samkoma krafts manna, ef mæting verður góð. Ég set þetta race upp og pósta því hér inn þegar allt er klár. Gokart.is S:771-2221 |
Author: | gardara [ Thu 13. Aug 2009 03:39 ] |
Post subject: | Re: Búið að opna 900M GO-KART braut á Korputorgi |
Hljómar vel ![]() |
Author: | arnibjorn [ Thu 13. Aug 2009 10:56 ] |
Post subject: | Re: Búið að opna 900M GO-KART braut á Korputorgi |
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... orputorgi/ Ég ELSKA ELSKA ELSKA moggabloggara svo mikið!! http://riddaralidid.blog.is/blog/riddar ... ry/930081/ ![]() ![]() ![]() |
Page 1 of 4 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |