Page 1 of 2

525i '92 verð

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 16:34
by sjonni93
er einhver sem veit á hvaða verðbili '92 árg af bmw 525i er í dag? :)

Re: 525i '89 verð

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 16:44
by Jón Ragnar
200-300k eftir ástandi og útbúnaði

Re: 525i '89 verð

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 16:50
by Lindemann
15-300 þús svona frekar held ég


margir svona bílar sem eru ekki mikið meira en 100k virði

Re: 525i '89 verð

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 17:05
by JOGA
Lindemann wrote:15-300 þús svona frekar held ég


margir svona bílar sem eru ekki mikið meira en 100k virði


Held nú samt að botninn fyrir svona bíl sem fer í gang sé ekki mikið undir 100þús. Mikið af hlutum í þessu sem sótt er í.
Svo fer þetta náttúrulega allt eftir ástandi en verður ekki mikið hærra en 300-400þús tops fyrir eðalkerru.

Re: 525i '89 verð

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 17:12
by sjonni93
ókei, en ef tímakeðjan er farin í honum og hugsanlega einhverjir ventlar. Haldiði að það borgi sig að gera við hann og reyna að selja hann svo eða er sniðugara að selja hann í þessu ástandi sem hann er í.

Re: 525i '89 verð

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 17:21
by JOGA
Það eiginlega ómögulegt að segja kall. Ef bíllinn er með eitthvað spennandi fyrir utan mótor. S.s. m-kit, sportstóla eða leður, læst drif, felgur og þess háttar væri kannski hægt að fá nokkrar krónur fyrir þetta með keng mótor. Án e-h spennandi er þetta því miður ekki mikils virði. Mest fengir þú ef þú seldir spennandi parta staka en það krefst vinnu og aðstöðu að sjálfsögðu.

En í allri hreinskilni er mótorinn það sem flestir eru á höttunum eftir og því kannski ekki mikið af verðmætum eftir ef hann er farinn.

Að gera vel við þetta verður líklegast ekki fjárhagslega hagkvæmt heldur nema bíllinn sé mjög flottur. Og svo er erfitt að finna annan mótor hefði ég haldið og ekki sérlega ódýrt heldur.

Svo ætti reyndar að vera tímareim í þessum bíl en ekki keðja en það breytir því ekki að ef hún fór þá er líklegast margt að angra grey mótorinn.

Re: 525i '89 verð

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 17:30
by Alpina
sjonni93 wrote:ókei, en ef tímakeðjan er farin í honum og hugsanlega einhverjir ventlar. Haldiði að það borgi sig að gera við hann og reyna að selja hann svo eða er sniðugara að selja hann í þessu ástandi sem hann er í.


E34 525 89 er EKKI með tímakeðju,, heldur reim

ef hún er slitin er líklega flest í heddinu ónýtt

Re: 525i '89 verð

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 17:38
by sjonni93
Ég hringdi í BMW viðgerðarsvæðið og þeir sögðu að það væru 2 kæðjur í honum.. ég veit voða lítið um það sjálfur :?

Re: 525i '89 verð

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 17:58
by Alpina
sjonni93 wrote:Ég hringdi í BMW viðgerðarsvæðið og þeir sögðu að það væru 2 kæðjur í honum.. ég veit voða lítið um það sjálfur :?


89 árgerð ... 2 tímakeðjur

:lol:

Re: 525i '89 verð

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 18:59
by Axel Jóhann
Alpina wrote:
sjonni93 wrote:Ég hringdi í BMW viðgerðarsvæðið og þeir sögðu að það væru 2 kæðjur í honum.. ég veit voða lítið um það sjálfur :?


89 árgerð ... 2 tímakeðjur

:lol:




Það er BS það er tímareim í þessu.

Re: 525i '89 verð

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 21:03
by sjonni93
en hver er helsti munurinn á tímakeðju og tímareim?

Re: 525i '89 verð

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 21:16
by Axel Jóhann
Fyrir utan það að tímareim er úr gúmmíi en tímakeðja er KEÐJA úr stáli. :lol:

Re: 525i '89 verð

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 21:19
by sjonni93
hahaha já fyrir utan það :D

Re: 525i '89 verð

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 22:51
by 300+
sjonni93 wrote:en hver er helsti munurinn á tímakeðju og tímareim?


Þetta er einhvernvegin svona:

Keðja: Aðeins meiri hávaði í vélinni og framleiðandi selur lítið af heddum og varahlutum í það sökum þess að keðjan á að duga í 250-300þús km

Reim: Minni hávaði í vél og framleiðandi selur meira af heddum og varahlutum í það sökum styttri endingartíma á reim.

Re: 525i '89 verð

PostPosted: Sun 26. Jul 2009 22:55
by sjonni93
300+ wrote:
sjonni93 wrote:en hver er helsti munurinn á tímakeðju og tímareim?


Þetta er einhvernvegin svona:

Keðja: Aðeins meiri hávaði í vélinni og framleiðandi selur lítið af heddum og varahlutum í það sökum þess að keðjan á að duga í 250-300þús km

Reim: Minni hávaði í vél og framleiðandi selur meira af heddum og varahlutum í það sökum styttri endingartíma á reim.



ókei takk fyrir þetta :D