Page 1 of 3
Getur maður einhvað gert???

Posted:
Tue 21. Jul 2009 20:02
by bmw-stelpa
Kaupti mér bmw 525d e39 2001 af manni á 950þús í peningum og viku seinna bilar bílinn olíu dælan fór og kostaði 86þús viðgerðin og núna má ég ekki fara undir 15litra á bilnum þá stoppar hann því það er svo mikil drulla í tankinum, hann sagði mér að hann keypti bilinn á 1300þús og væri í toppstandi var að finna blað í bílnum áðan sem stendur að þetta sé tjónabíll og hann hefði keypt bílinn á 650þús á uppboði, og hann vill ekki taka þátt í viðgerða kostnaði og núna skellir hann bara á mig, get ég einhvað gert því ég keypti bílinn ekki af bílasölu?
Re: Getur maður einhvað gert???

Posted:
Tue 21. Jul 2009 20:11
by Einarsss
fórstu með hann í ástandskoðun og var gert afsal?
Re: Getur maður einhvað gert???

Posted:
Tue 21. Jul 2009 20:27
by saemi
Þetta er erfitt mál ef salan fór ekki í gegnum bílasölu....
Ef salan fór í gegnum bílasölu áttu kannski séns. Annars held ég að þú verðir bara að kyngja því að hafa ekki kynnt þér dæmið nógu vel, því miður

Re: Getur maður einhvað gert???

Posted:
Tue 21. Jul 2009 20:28
by bmw-stelpa
einarsss wrote:fórstu með hann í ástandskoðun og var gert afsal?
ja það var gert afsal og fór með hann í ástandskoðun og eina sem var sagt utá væri grjótbarið húddið
Re: Getur maður einhvað gert???

Posted:
Tue 21. Jul 2009 20:32
by slapi
Ef það kemur ekki fram í afsalinu að þetta sé tjónabíll ættirðu að vera í ansi góðri stöðu að láta kaupin ganga til baka.
Re: Getur maður einhvað gert???

Posted:
Tue 21. Jul 2009 21:04
by saemi
og það heitir eitthvað

Re: Getur maður einhvað gert???

Posted:
Tue 21. Jul 2009 21:30
by slapi
saemi wrote:og það heitir eitthvað


Re: Getur maður einhvað gert???

Posted:
Tue 21. Jul 2009 21:39
by arnibjorn
slapi wrote:saemi wrote:og það heitir eitthvað


Í fyrirsögninni.
Ekki einhvað heldur eitthvað.
Re: Getur maður einhvað gert???

Posted:
Tue 21. Jul 2009 21:56
by Zed III
Þetta er nú ekki home run þó bíllinn hafi farið í ástandsskoðun. Ef gaurinn segist ekki vilja láta þetta ganga til baka, hvað þá ?
Re: Getur maður einhvað gert???

Posted:
Tue 21. Jul 2009 21:57
by IngóJP
Zed III wrote:Þetta er nú ekki home run þó bíllinn hafi farið í ástandsskoðun. Ef gaurinn segist ekki vilja láta þetta ganga til baka, hvað þá ?
Annað hvort fara í mál eða fá mann í verkið sem er mun skárri kostur
Re: Getur maður einhvað gert???

Posted:
Tue 21. Jul 2009 22:01
by Zed III
IngóJP wrote:Zed III wrote:Þetta er nú ekki home run þó bíllinn hafi farið í ástandsskoðun. Ef gaurinn segist ekki vilja láta þetta ganga til baka, hvað þá ?
Annað hvort fara í mál eða fá mann í verkið sem er mun skárri kostur
Það eru nú ekki allir sem eru til í að fá mann í verkið (pús það kostar) og að fara í mál er ekki minna vesen.
Re: Getur maður einhvað gert???

Posted:
Tue 21. Jul 2009 22:04
by Freyr Gauti
Hringja í FÍB og fá að tala við lögfræðing hjá þeim, spurja hann út í málið.
Re: Getur maður einhvað gert???

Posted:
Tue 21. Jul 2009 22:07
by Zed III
Freyr Gauti wrote:Hringja í FÍB og fá að tala við lögfræðing hjá þeim, spurja hann út í málið.
Það hljómar skynsamlega
Re: Getur maður einhvað gert???

Posted:
Tue 21. Jul 2009 22:08
by slapi
arnibjorn wrote:slapi wrote:saemi wrote:og það heitir eitthvað


Í fyrirsögninni.
Ekki einhvað heldur eitthvað.
Ég var alveg týndur

Re: Getur maður einhvað gert???

Posted:
Tue 21. Jul 2009 22:14
by Einarsss
skrítið að það sé ekki athugað hvort bílar sé skráðir tjónabílar í ástandsskoðun
