Page 1 of 1

Hver er sagan bak við YR-999

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 01:19
by sissco
Langaði eiginlega að forvitnast hvort einhverjir hér þekki þennan bíl eitthvað.

YR-999 E32 750i

Sennilega margir búnir að eiga hann og brasa eitthvað við hann og í honum.

Það er allavega læst drif í honum ( M5 býst ég við )
Og mér var sagt að það væri "líklega" búið að setja tölvu kubb(a) í hann sem ég veit ekkert hvort sé satt.
Var helvíti hress þangað til að skiptinginn ákvað að deyja alveg í síðustu viku. (fer önnur í um helgina + minna ekinn vél)

Allavega væri gaman að fá einhverjar upplýsingar, sögur, Myndir eða eitthvað sniðugt um þennan 750 Bimma.

Re: Hver er sagan bak við YR-999

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 01:29
by ///M

Re: Hver er sagan bak við YR-999

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 21:00
by ValliB
Sá þennan á Akureyri í fyrradag minnir mig, vel surtaðan og dröggdíler-legan

Snéri nett upp á hálsinn :thup:

Re: Hver er sagan bak við YR-999

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 21:16
by Jón Ragnar
Þetta var allavega snarskemmtilegur bíll eftir að hann fékk Camaro moddið :lol:

Re: Hver er sagan bak við YR-999

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 21:21
by Svezel
Hef aldrei átt bíl sem spólaði eins svakalega og þessi, kláraði 8 afturdekk á einum vetri eftir drifskiptin :lol:

Re: Hver er sagan bak við YR-999

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 21:51
by Alpina
Þetta vann allavega hörkuvel

Re: Hver er sagan bak við YR-999

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 23:44
by gardara
Held að það sé búið að taka all hressilega á þessari græju... Hef annars ekki hugmynd um hvernig henni hefur verið haldið við

Re: Hver er sagan bak við YR-999

PostPosted: Fri 17. Jul 2009 02:38
by sissco
mymojo wrote:Sá þennan á Akureyri í fyrradag minnir mig, vel surtaðan og dröggdíler-legan

Snéri nett upp á hálsinn :thup:


Skiptingin dó í honum á föstudag eða laugardag í síðustu viku. Þannig að annað hvort er þig að misminna eða þú hefur verið að dást að öðrum 7 bimma.

Reyndar er hann pínu dröggdíler-legur núna svona svargrár á samlitum felgum. Svo ég held að ég bíði með að filma hann þar til eftir versló. :lol:

Re: Hver er sagan bak við YR-999

PostPosted: Sun 19. Jul 2009 20:00
by alpina.b10
þegar ég átti þennan bíl eyddi ég um 900 þúsund í hann, setti annað drif í hann ekki lsd úr m5. frændi minn flutti hann inn 98-99 ótjónaðann var hann þá keyrður 160 þúsund, þegar ég seldi hann var hann keyrður 215 þúsund og allann þann tíma fékk hann alla þá umhyggju og varahluti sem hann þarfnaðist.

Væri samt alveg til að fá Alpina felgurnar mínar aftur fyrir sanngjarnt verð :)

Re: Hver er sagan bak við YR-999

PostPosted: Sun 19. Jul 2009 20:46
by Lindemann
Sveinbjörn svezel setti m5 drifið í hann